45% taka ekki afstöðu nú - hver verður afstaða þeirra í kosningum?

Það er nokkur vinstri sveifla í þessari könnun Fréttablaðsins þó margir hafi bent á að þetta sé frekar lítil breyting frá síðustu könnun sem gerð var fyrir fall bankanna. Helstar eru breytingarnar sagðar á höfuðborgarsvæðinu og kemur það ekki á óvart enda vegur bankahrunið þyngst þar.

Stærsti hópurinn er sá sem ekki tekur afstöðu eða 45,1%

Eingöngu 30,6% sem ekki taka afstöðu styðja ríkisstjórnina en 63,5% studdu hana í Júní - þetta er mikil breyting.

Nú er stóra spurningin hvert mun fylgi þeirra fara?


mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki til Samfylkingar eða Sjálfstæðisflokks svo mikið er víst

Kveðja

Æsir (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 12:01

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

sæll Eyþór Samfylkingin mun ekki halda þessu fylgi. Ég skrifaði pistil um þetta sem þú ættir að kíkja á.

Sigurður Þórðarson, 26.10.2008 kl. 12:22

3 Smámynd: Heidi Strand

Ef ég þekki íslendingum rétt, verður fastir liðir eins og venjulega með pínu skekkju.

Þetta minnir mig á heimilisofbeldi þar sem eiginkonan snýr alltaf aftur heim . (Ég er ekki að bera þetta saman en þetta bara kom upp í hugann mín.)

Heidi Strand, 26.10.2008 kl. 14:41

4 Smámynd: Einar G. Harðarson

Út í lönd. Svo koma flestir aftur eftir c. 10 á og búnir að gleyma.

Einar G. Harðarson, 26.10.2008 kl. 18:17

5 Smámynd: nicejerk

Úrvalið er nú ansi aumt. Það vill væntanlega enginn fá sama 'fjölskyldupakkann" yfir sig aftur á þing.

Eru þeir óákveðnu ekki bara að bíða eftir einhverjum öðrum og betri valkosti. Ekki þarf mikið til ;-)

nicejerk, 26.10.2008 kl. 18:22

6 Smámynd: Elías Theódórsson

Getur einhver tjáð mér hvenær það var til ríksistjórn án aðkomu sjálfstæðisflokks sem, 1. sat út 4 árin? 2. Gerði eitthvað að viti? Er fólk búið að gleyma R-listanum sáluga og hvernig hann skildi við?

Elías Theódórsson, 26.10.2008 kl. 18:23

7 Smámynd: Fannar frá Rifi

Samfylkingin er að sækja á með ESB trúboði. enda eru esb löndin skrefi á eftir okkur í kreppunni og þannig virðast lönd esb hafa það aðeins betra þó svo að atvinnuleysi þar sé ennþá margfalt á við Ísland hefur verið í mörg á nær tífalt.

Fannar frá Rifi, 26.10.2008 kl. 18:57

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Rétt hjá þér Fannar, þeir eru skrefi á eftir okkur og verður fróðlegt að fylgjast með næstu 1-2 vikur. Atvinnuleysið verður sko, ekki eina vandamálið sem ESB mun hafa við að glíma.

Ragnhildur Kolka, 26.10.2008 kl. 19:08

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Stokka upp, burtu með flokkakerfið. Veljum einstaklinga.

Guð veri með þér og þínum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.10.2008 kl. 21:37

10 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Synir að þjóðin hefur trú a að það se verið að vinna í málunum

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.10.2008 kl. 22:12

11 Smámynd: Fannar frá Rifi

ESB sinnar boða galdralausn. reddingu á öllum málum. viljum við reddingu eina ferðina enn? ESB umsókn í dag myndi redda okkur kannski í viku en síðan færi allt norður og niður því engin myndi hafa trú á okkur því við hefðum það ekki sjálf.

Fannar frá Rifi, 26.10.2008 kl. 22:45

12 Smámynd: Stefanía

Við erum svo svakalega fljót að dæma !

Ég sé ekkert skárra í stöðunni, en minn Sjálfstæðisflokk !

Stefanía, 26.10.2008 kl. 23:36

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Niðurstöður þessarar könnunar segja tvennt: Fólk veit ekki sitt rjúkandi ráð og að stjórnmálamenn hafa gersamleg misst alla tiltrú kjósenda.  Það er slæmt veganesti fyrir þjóð sem vill byggja allt sitt á lýðræði.

Guðni telur líklegast að hann fái þessi óvissuatkvæði blessaður. Samfylkingin telur sig vera með pálmann í höndunum og hætta á að hún ofmetnist og slíti stjórnarsamstarfi og boðað verði til kosninga mitt í öllu havaríinu. Það myndi staðfesta tækifærismennsku þá er einkennir þann flokk.  Ásteitingarsteinarnir eru nægir, evrópusambandspillan og allrameinabótin, sem engin veit hvernig á að virka á þetta mein. Svo er það Davíð...hann situr enn eins og Neró, gersamlega vitit firrtur.

Frmasókn klofnaði enn í dag, þegar maður hélt að ekki væri hægt að kljúfa ekkert mikið oftar. Ályktunin fyrir norðan er eins og afrit af viðtali við Halldór Ásgríms í DR um daginn, svo það eru fleir flokkar en sjálfstæðisflokkur, sem eru andsetnir gömlum draugum, sem öllu virðast ráða.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.10.2008 kl. 01:31

14 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

VG virðist vera eini flokkurinn sem ekki er klofinn eða að klofna. Það er skondin staða. Maður hlýtur þá að spyrja sig hvort VG hafi raunhæfa stefnu í málunum, hvort VG sé með svar við vandanum. Ég er ekki sannfærður um það heldur!

Vésteinn Valgarðsson, 27.10.2008 kl. 03:12

15 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Það er nokkuð ljóst að bankahrunið verður til þess að pólítísk umræða breytist til muna. Flokkarnir verða að fara í gegn um nýja stöðu og endurmeta málin út frá nýjum raunveruleika. Mörg loforð munu ekki standa vegna þess að umhverfið er gjörbreytt. Þá verður fróðlegt að sjá hvernig fjölmiðlarnir þróast á næstunni þegar þeir verða ekki í eigu bankaeigendanna. Margt er breytt.

Eyþór Laxdal Arnalds, 27.10.2008 kl. 10:27

16 identicon

Já - þetta er skrítin staða sem komin er upp og ekki séð fyrir endann á þessari þróun ennþá eða hvar við lendum.

Ása (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 12:14

17 identicon

Sæll Eyþór minn, ég vil biðja þig um að lesa þennan pistil minn http://gunnarwaage.blog.is/blog/gunnarwaage/entry/689086/

Ég get ekki sagt að hér sé jákvæð þróun að eiga sér stað.

sandkassi (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 12:56

18 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæll Gunnar. Þakka pistilinn. Það er margt að breytast og því þurfa allar stofnanir þjóðfélagsins að taka mið af breyttri stöðu. Það þarf ekki að vera alslæmt.

Eyþór Laxdal Arnalds, 27.10.2008 kl. 14:15

19 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég styð valdarán, svo mikið er víst !

— ICELAND'S MOST WANTED —

GORDON BROWN
Wanted, alive and preferably in working order - for treason and severe plotting against the innocent Icelandic nation. Also wanted for sheep theft, tekið héðan  en myndin er ekki sú sama.

Er að skipuleggja aðgerðina "Víkingur Delta 2" "Operation Viking Delta 2"  Endilega ef þú getur að aðstoða mig með því að smella á linkinn hér fyrir ofan og tilgreina í hvaða hryðjuverkastétt þú ert í, með fyrirfram þökk. Sævarinn hryðjuverkaatvinnulausi.

 

Sævar Einarsson, 27.10.2008 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband