Er Samfylkingin 4. stærsti flokkur landsins?

Ef marka má þessa könnun felast í henni nokkur skilaboð. VG eru með 28%, D með 24%, B með 17% og svo S með 16% eða minna fylgi en Framsókn. Stökk Framsóknar og fall Samfylkingar eru tíðindi.

Turnarnir eru því tveir: VG og D.
Háhýsin eru tvö: S og B

Könnunin er gerð á sama tíma og Samfylkingin klofnar í afstöðu sinni til landsmálanna.
Vika er langur tími...


mbl.is Framsókn með 17% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Framsóknarmenn eru að ná athyglisverðum árangri í skoðanakönnunum. Að hluta til er þetta að þakka vaxandi skilningi þeirra á ríkjandi peningastefnu. Þetta ættu Sjálfstæðismenn að taka til fyrirmyndar.

Torgreind peningastefna (discretionary monetary policy) er andstæð hugsjónum Sjálfstæðismanna um frjálsan markað. Undir Myntráði verður rekin reglu-bundin peningastefna (rule-bound monetary policy), sem felur í sér að peningamagn og vextir ákveðast af þörfum markaðarins.

Frelsið lifi, burt með Seðlabankann !

Loftur Altice Þorsteinsson, 22.1.2009 kl. 13:07

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Samfylkingin með 16.% fylgi. Bestu fréttir dagsins, það hefur verið hálf óhuggulegt að sjá flokk sem hefur haft það eitt á stefnuskrá sinni að koma okkur inn í ESB og strax þegar hefur komið að erfiðum ákvörðunum í ríkisstjórn þá hefur komið flótti í liðið. Mér hefur lengi fundist Samfylkingin ekki stjórntæk, þess vegna er ég farinn að aðhyllast kosningar fljótlega þó það sé raunar grábölvað,að eyða kröftum í slíkt.

Ragnar Gunnlaugsson, 22.1.2009 kl. 14:28

3 identicon

Ég vona innilega að nýr formaður líti dagsins ljós á landsfundi sjálfstæðisflokksins.  Bjarni Ben er gott efni í slíkann.  Framsókn er að sækja í sig veðrið og samstarf ríkisstjórnarinnar og samfylkingarinnar hangir á bláþræði ásamt.  Það sama má segja um samfylkinguna en hún gæti verið að sundrast og sögusagnir herma að Ingibjörg þurfi að víkja vegna heilsufarsástæðna.

Það eru spennandi tímar framundan.    Það fer eftir því hver framvinda á landsfundi verður hvort ég styðji sjálfstæðisflokkinn áfram.  Ef Geir verður formaður áfram kýs ég flokkinn ekki.   Mitt atkvæði færi þá að öllum líkindum líkindum til framsóknar en ég get þó ekki sagt til um það að svo stöddu.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 15:03

4 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæll. Langt síðan ég hef kíkt á þig. Hvernig gengur guðfræðin?

Vegna Framsóknar, þá tel ég skýringuna vera þá að fólk virði þá ákvörðun flokksmanna að segja skilið við fortíðargreifa flokksins. Bara það að sitjandi ritari missi embætti sitt og nýr tekur við með 74% atkvæða, segir að fólkið í flokknum ætlaði ekki að sitja undir því rugli sem búið er að vera í flokknum og ádeilum sem skemmt hafa hann.

Það allra besta er að flokkurinn er óhræddur að viðurkenna mistök sín og lærir af því sem fór verr! Það eitt gefur hverjum öðrum aðila gildi til að hugsa sinn gang með Framsókn. En auðvitað verður framtíðin að leiða það í ljós.

Bestu kveðjur á Selfoss,

Sveinn Hjörtur , 22.1.2009 kl. 17:18

5 Smámynd: Jón Sigurðsson

Fortíðarlaus framsóknarmaður er lausnarorðið. Skjálfandi Samfylkingarmaður er ekki að gera sig sem er í sjálfu sér gott. Vinstri grænir á vaktinni, búnir að vera með kosningafundi vikulega um all langt skeið og það virðist skila sér um þessar mundir. Seinþreyttir sjálfstæðismenn eru ekki að "meika" það. Þannig er nú það þessar stundirnar. Það gildir aldrei sem fyrr " Guð blessi Ísland"

Jón Sigurðsson, 22.1.2009 kl. 17:53

6 identicon

Guð á svo sannarlega eftir að blessa landið, það er ég alveg viss um.

En fyrst við erum að þessi setning hans Geirs barst til tals þá rakst ég á soldið skondna teikningu í dag

http://www.mbl.is/halldor/2009/01/08/gud/

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 17:59

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

13-16% svo stjórnin hefur aldrei raunverulega verið sterk. 

Júlíus Björnsson, 22.1.2009 kl. 21:02

8 Smámynd: Davíð Þór Kristjánsson

Ný forysta er lykilatriði í endurreisn flokksins.

Davíð Þór Kristjánsson, 23.1.2009 kl. 11:50

9 Smámynd: Þór Jóhannesson

Flokksræðið kemur í veg fyrir lýðræðið - það sést best á því að ný öfl eiga ekki séns, meira að segja í þessu ástandi. Þetta er sjúkleg aðför að lýðræðinu og þessu þarf að breyta strax með nýrri stjórnarskrá - ellegar er hætt við að allt sjóði aftur upp úr.

Þór Jóhannesson, 23.1.2009 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband