Vinur er sá sem til vamms segir

Ég vona að Eva Joly fái þessa grein birta í fleiri blöðum. Helst belgískum, breskum, hollenskum og víðar.

Hér er horft til stóru myndarinnar en ekki verið að klára mál í hasti sem kunna að vera "hangandi yfir okkur". 

Það er óvenjulegt að ráðgjafi saksóknara sem ráðinn er af ríkisstjórn skuli tala með þessum hætti en kannski getur Eva ekki orða bundist. 

Sú leið að taka lán hjá AGS, skuldbinda Ísland fyrir Icesave upp í topp og ganga þannig stórskuldug í Evrópusambandið er að mörgu leyti stórfurðuleg leið til að endurreisa efnahag Ísland. - Súrrealísk reyndar. 


mbl.is Stöndum ekki undir skuldabyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Eva var ráðin fyrir hvatningu og milligöngu Egils Helgasonar.  Hún er í raun eina stjórnarandstaðan á Íslandi.

Sigurður Þórðarson, 1.8.2009 kl. 09:20

2 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Egill á heiður skilinn fyrir að fá Evu.

Eyþór Laxdal Arnalds, 1.8.2009 kl. 09:32

3 identicon

En stjórnarandstaðan, hvað á hún skilið.  Af hverju er hún ekki niðri á Austurvelli að öskra og kasta grjóti í Alþingishúsið?

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 11:54

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Svar EU við einkabanka væðingu 1994 vegna þess að  þetta tók nokkurn tíma þá vor tildæmis þjóðverjar órólegir.

Hversvegna ríkið ber ekki ábyrgð á innstæðum innlánara í fjármálastofnunum Meðlimaríkja EU eða aðildarríkja að EU efnahagsvæðinu? Tilskipun EU frá um 1994 svarar  undir hvaða kringumstæðum ríkinu ber slíkt ekki með Málsgrein tveggja "conditional" [skilyrði, aðstæður] setninga, sem hefjast á þar eð [= þar sem] og úr því að [= fyrst].

Bein þýðing tekið tillit til setningafræði og lögfræði merkinga er að kröfu réttaríkisins Franska vel skilgreind og auðskiljanleg málsgrein:

Þar eð þessi tilskipun getur EKKI skuldbundið meðlimaríkin eða lögmæt yfirvöld þeirra hvað varðar innlánara,

úr því að þau hafa séð um stofnun eða opinbera viðurkenningu eins eða fleiri kerfa

sem ábyrgjast innistæðurnar eða lánastofnanirnar sjálfar

og

sem tryggja skaðabæturnar eða vernd innlánaranna

í aðstæðum sem þessi tilskipun skilgreinir;   

  

Samanber franska lagatextann:

Considérant que la présente directive NE peut avoir pour effet d'engager la responsabilité des États membres ou de leurs autorités compétentes à l'égard des déposants,

dès lors qu'ils ont veillé à l'instauration ou à la reconnaissance officielle d'un ou de plusieurs systèmes

garantissant les dépôts ou les établissements de crédit eux-mêmes

et

assurant l'indemnisation ou la protection des déposants dans les conditions définies par la présente directive;

Hver er ábyrgur á meintri þýðingu sem fylgir er stór spurning í ljós þess misskilnings hún hefur leitt til hjá miður lærðum. 

Tilskipun þessi getur EKKI gert aðildarríkin eða lögbær yfirvöld þeirra ábyrg gagnvart innstæðueigendum ef þau hafa séð til þess að koma á einu eða fleiri kerfum viðurkenndum af stjórnvöldum sem ábyrgjast innlán eða lánastofnanirnar sjálfar og tryggja að innstæðueigendur fái bætur og tryggingu í samræmi við skilmálana í þessari tilskipun.

Eva Joly er á face book og Ég er fan. Jón Baldvin hvernig túlkaði hann þetta?

EVA Joly í ljós þess hve hátt komst upp í Frakklandi með þeirra síu kerfi þá er hún yfir meðalgreind og læs á lagmál. Hinsvegar eru margir hér landi í lögfræðistétt sem hafa með yfir lýingum sínum og þögn gerst upplýstir að miklu vanhæfi.

Hver er röð þeirra sem geta orðið valdis lausafjárskreppu í Banka.

1. Bankastjórn á ábyrgð eigenda

2. Fjármáleftirlit sem lætur múta sér og þá neita aðrir bankar tryggingarsjóðsins að blæða

3. Ráðherra kippir unda stafsemi eins banka hleypir in tollfrjálsum kartöflum þá neita hinir bankarnir  tryggarsjóðsins að taka á sig lánskostnaðinn.

4. Seðlabanki sem heldur útlánsvöxtum og lengi niðri þannig að vaxtamunur út og innlána veldur lausfjárskorti fyrst hjá minstu bönkunum. 

Hinsvegar eru öllu fyrirtæki sem þenjast fljótt yfirleitt mjög vinsæl og ekkert þak er sett á hámarksstærð í EU. Ef allir vaxa álíka hratt þá er samkeppni í lagi.

Bankarnir munu hafa verið grunaðir um að tappa reiðufé út úr kerfinu en ekki hafa átt mikið af bréfum í USA. Þess vegna voru þeir svo kurteisir í USA að benda á stærð bankanna. Hversvegna EU lokaði bankalínum er annað mál.

Júlíus Björnsson, 1.8.2009 kl. 12:08

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

yfirlýsingum sínum.

Júlíus Björnsson, 1.8.2009 kl. 12:15

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hún er frábær, ég vil ráða fagmenn til að stjórna landinu ekki stjórnmálamenn.Góða helgi og kveðja til fjölskyldunnar.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.8.2009 kl. 12:49

7 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Eina hlutverk IMF hér er að bjarga og verja gjalmiðil okkar krónuna og risaláni er aðeins og eingöngu til að vera gjaldeyrisvarsjóður eða böffer fyrir krónuna. Það hefði því augljóslega verið mikil gæfa okkar ef við hefðum haft evru þegar kreppan knúði dyra því þá ætti IMF ekkert erindi hingað. Ábyrgð þeirra sem árum saman vísuðu á bug kröfum um aðildarviðræður við ESB með þeim rökum að ekki væri rétti tíminn til þess þegar allt léki í lyndi eins og Geirr H Haarde gerði marg oft er augljóslega gríðaleg.

Helgi Jóhann Hauksson, 1.8.2009 kl. 14:16

8 Smámynd: Bjarni Þór Hafsteinsson

"Sú leið að taka lán hjá AGS, skuldbinda Ísland fyrir Icesave upp í topp og ganga þannig stórskuldug í Evrópusambandið er að mörgu leyti stórfurðuleg leið til að endurreisa efnahag Ísland. - Súrrealísk reyndar."

Það verður engin endureisn á Íslandi ef kúgun og niðulrlæging ráða för. Að fara niður á fjóra fætur eins og barinn rakki er ekki vænlegt til árangursríkrar endurreisnar.

Bjarni Þór Hafsteinsson, 2.8.2009 kl. 00:39

9 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Evrópa og AGS munu koma Íslandi á vonarvöl og börnunum okkar í skuldafangelsi ef heldur sem horfir.

Ísleifur Gíslason, 2.8.2009 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband