Svei ykkur Bretar

Þetta er sama ríkisstjórnin og setti hryðjuverkalög á Ísland.


Þetta eru sömu menn og töldu Íslendinga bera siðferðislega skyldu til að greiða þeim stríðsskaðabætur vegna einkarekinna banka.
Sama ríkisstjórn og ábyrgist innistæður á stóru eyjum Bretlands en ábyrgjast ekki Guernsey og Isle of Man og sakar svo Ísland um að mismuna eftir staðsetningu útibúa banka. 

Þetta eru sömu ráðherrar og misbeittu AGS og ESB í að innheimta skuld sem íslenska ríkið bar ekki ábyrgð á.

Nú kemur í ljós að þeir hafa sleppt eina manninum sem var dæmdur fyrir Lockerbie fjöldamorðin til að tryggja stöðu breskra olíufyrirtækja.


Og að þeir reyndu að hylma yfir og segja ósatt.

Svei.

 


mbl.is Viðskiptahagsmunir höfðu áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Eyþór, þetta er góð grein hjá þér en því miður þá heyrir bresk alþýða ekki þó einhverjir uppi á Íslandi tuði yfir þessu á moggablogginu. Gætir þú ekki bloggað þessa grein á ensku við fréttina hjá Telegraph.  Mér finnst hún þurfi að heyrast.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.9.2009 kl. 08:54

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Eyþór, þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem stundarhagsmunir Breta eru látnir ráða fremur en réttlæti og sanngirni. Við höfum líka orðið varir við þessi vinnubrögð.

Sigurður Þorsteinsson, 5.9.2009 kl. 09:00

3 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Góður punktur Rafn. Við eigum sem flest að láta í okkur heyra sem víðast.

Eyþór Laxdal Arnalds, 5.9.2009 kl. 09:26

4 identicon

Hvenær hefur réttlæti skipt stjórnmálamenn miklu máli, þegar fjárhagshagsmunir eru annars vegar? Ég bara spyr... Hvar í veröldinni?

Skorrdal (IP-tala skráð) 5.9.2009 kl. 09:48

5 Smámynd: el-Toro

Eyþór minn.  þessi lýbíu maður er hvort eð er jafn saklaus og ég og þú yfir þessu blessaða icesave.  endilega lestu þér til um þessa hluti.  ég hef bloggað nokkrum sinnum um þetta atvik.  þú getur séð bloggin hjá mér t.d. ef þú hefur þá áhuga á að kynna þér þessa hluti.

lýbíu maðurinn var dæmdur til að friða almenning sem hafði misst ástvini sína.  þetta er í raun svokölluð aðgerð þar sem leiniþjónusturnar leifa hlutum að gerast og bakvið tjöldin styðja þau.  ekkert ósvipað og fangaflug CIA, 9/11, 7/7 í london og fleira og fleira.

þetta eru ekki torsóttar upplýsingar, en þær birtast að sjálfsögðu ekki í fjölmiðlaveitunni sem sér öllum dagblöðum á vesturlöndum fyrir samskonar fréttaflutningi.

el-Toro, 5.9.2009 kl. 12:25

6 Smámynd: el-Toro

esb er fyrir löngu búið að fá ísland til að bíta á.  eins og laxin, þá þarf að þreita hann og gefa eftir til skiptis.  síðan á endanum þá er laxin dregin upp á land eftir mikla mæðu.  heldur einhver að það sé einhver tilviljun að fjármálamarkaðir heims hafi allt í einu opnast íslandi og íslendingum.  öll lán sem íslendingar tóku voru seld erlendis.  hvað gerist svo þegar eitthvað byrjar að bjáta á og menn vilja fá selja bréfin/lánin.

við erum á endastöð sem þjóð.  því þegar við erum komin inn í esb, þá verðum við það sem eftir er.  fólkið á þingi mun vera dæmt fyrir það í komandi framtíð, hvort sem það hefur góð eða slæm áhrif á þjóðina.  AGS er hellvíti á jörðu fyrir þjóðir sem búa yfir auðlyndum s.s. ísland og fiskurinn.

el-Toro, 5.9.2009 kl. 12:30

7 identicon

Hey ekki gleyma sjálfstæðisflokknum!!!

DoctorE (IP-tala skráð) 5.9.2009 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband