Blað allra landsmanna

Morgunblaðið hefur löngum verið helsta blað á Íslandi. Það hefur notið trausts hjá meirihluta landsmanna og á ég ekki von á öðru en svo verði áfram. Ekkert blað hefur verið jafn opinn vettvangur fyrir ólíkar skoðanir með margar síður undir aðsendar greinar á hverjum degi auk lesendabréfa og launaðra pistlahöfunda. Þá hefur enginnn miðill náð eins miklum árangri á Netinu og Morgunblaðið með mbl.is og blog.mbl.is

Lýsing Davíðs Oddssonar ritstjóra um fjölmiðlun á vel við: „Blað gengur út á að koma gagnrýnisröddum að svo allir geti komist að eigin niðurstöðum þegar öll sjónarmið hafa fengið framgang,"

Er ekki rétt að gefa nýjum ritstjórum tækifæri á að sýna hvað í þeim býr?

Ég óska þeim farsældar í nýju starfi.


mbl.is Nýir ritstjórar til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Um nokkuð langt skeið hefur mér líkað við Moggann, hann var óútreiknanlegur, slegið til hægri og vinstri, bæði stjórn og stjórnarandstaða fengu á baukinn. Það líkaði mér en ég óttast að hér verði stórfelld breyting á. Flokksmálgagn er tímaskekkja, ekki vildi ég sjá Tímann, Þjóðviljann eða Alþýðublaðið endurvakin. Þetta er nú viðhorf mitt sem er óflokksbundinn með öllu.

Finnur Bárðarson, 25.9.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Arthur Páll Þorsteinsson

Hver var þá tilgangur með uppsögn ritstjóra blaðsins, og hver var tilgangur með ráðningu Davíðs og Haraldar.

Hvað knúði á með þessi skifti, hvað var svo slæmt við fyrri ritstjórn.

Skil ekki neitt.

Arthur Páll Þorsteinsson, 25.9.2009 kl. 16:13

3 identicon

Ég ætla mér ekki að dæma hvort það hafi verið rétt ákvörðun að segja upp fyrrverandi ritstjóra. Er ekki nógu kunnugur málavöxtum, en ég óska Davíð velfarnaðar í nýju starfi og vona að það verði til hagsældar fyrir blaðið.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 21:26

4 identicon

Af hverju er fólk að missa vatn yfir ráðningu Davíðs sem ritstjóra?  

Af hverju ætti Davíð að breyta blaðinu í málgagn Sjálfstæðisflokksins frekar en t.d Þorsteinn Pálsson sem ritstjóri Fréttablaðsins eða aðrir forverar Davíðs á Morgunblaðinu sem allir voru Sjálfstæðismenn?

Hvað gerir það að verkum að allt í einu núna hlaupi allir upp til handa og fóta og óttist að blaðið muni stunda áróðursskrif og verði sett til höfuðs ríkisstjórninni?  Af hverju þessi paranoja?
Ég varð ekki vör við þessa hræðslu manna þegar Þorsteinn tók við ritstjórn fréttablaðsins.   Ekki hef ég heldur heyrt menn viðra neinn ótta yfir því að eigendur 365 miðla noti fjölmiðla sína sér og sínum hagsmunum til framdráttar. 

Af hverju ætti Davíð að vera öðruvísi en allir þeir menn sem áður hafa ritstýrt Mogganum eða Fréttablaðinu?

Davíð hefur skoðanir,  en það höfðu hinir líka.  Ólafur leyndi ekki skoðunum sínum á ESB eða ríkisstjórninni í leiðurum blaðsins og því skyldi Davíð eiga að vera hlutlaus maður í sínum skrifum?

Ég treysti Davíð fullkomlega til að sinna þessu starfi af fagmennsku.   Ég treysti einnig því að hann láti sínar skoðanir í ljós og dragi ekkert undan þó einstaka vinstri menn séu kjökrandi yfir því að hann skuli vera komin með málið aftur.  

Hrafna (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband