"Við viljum vinna!"

Slagorð ASÍ 1. maí var "Við viljum vinna!". Þetta er skýr og góð krafa enda er fjölda-atvinnuleisið óþolandi ástand. Í Árborg eru 510 manns án atvinnu eða 9,5% allra á aldrinum 15-70 ára. Þessi tala er mun hærri en almennt gerist á Suðurlandi og er óásættanleg. 

Við fall bankanna varð ljóst að nú myndu hjólin stöðvast. Það var því mörgum gleðifregn þegar bæjarstjórnarmeirihluti Árborgar kynnti stórtæk áform á blaðamannafundi þann 11. nóvember 2008 í Tryggvaskála. Ríkisútvarpið og aðrir fjölmiðlar sögðu samviskusamlega frá þeim fagnaðar-fréttum að nú yrði ráðist í „Þekkingargarða“ á Selfossi. Eða eins og sagði í fréttum RÚV: „Á milli tvö og þrjú hundruð ný störf verða til á Selfossi með byggingu Þekkingargarðs í miðbænum. Byggja á 6000 fermetra hús í fyrsta áfanga þar sem starfsemi mun hefjast eftir tvö ár.“ Nú eru þau brátt liðin þessi tvö ár og ekkert hefur orðið af þessu framtaki. Því miður.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem ekkert verður af boðuðum „görðum“ því skemmst er að minnast mikilla „Vatnagarða“ sem hér áttu að rísa. Ekkert kom út úr þeirri fyrirætlan nema ferð bæjarfulltrúa til Danmerkur. Þau tvö hundruð til þrjú hundruð störf sem heitið var með byggingu „Þekkingargarða“ af hálfu bæjarstjórnarmeirihlutans hefðu lækkað atvinnuleysið um helming.Betra er að lofa sem minnstu og vekja ekki væntingar sem ekki verður staðið við. Í staðinn er vænlegra að hlusta á þarfir atvinnurekenda, vinna að lausnum en stilla sköttum og öðrum álögum í hóf. Sveitarfélagið á að auðvelda fyrirtækjum að hasla sér völl og forðast að leggja stein í götu þeirra.

Tækifærin í atvinnumálum felast ekki síst í samstöðu Sunnlendinga sem er sérlega mikilvæg þegar ríkið er annars vegar. Hér á ég sérstaklega við stækkun Litla-Hrauns, tvöföldun Suðurlandsvegar, orkufrekan iðnað og Heilbrigðisstofnun Suðurlands.Í kreppunni þarf ekki síður að hlú að þeirri starfssemi sem hér er og standa vörð um þau störf sem hér eru. Gleymum því ekki.


mbl.is Atvinnuleysi 9%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Er ekki hægt að fjölga því sem var kallað klepparastörfum í gamladaga. Fjármálgeirinn skilað hagnaði á síðasta ári er ekki hægt að fjölga störfum þar? 

Júlíus Björnsson, 12.5.2010 kl. 21:54

2 Smámynd: Sveinn Tryggvason

Það er rétt sem þú segir, Eyþór, að atvinnuleysi er óþolandi ástand. Það er hins vegar misskilningur að stjórnmálamenn eigi að "skapa störf" eða geti "skapað störf". Sú hugmynd er sennilega eitt algengasta dæmið um hvernig rökvillan um brotna gluggann þvælist fyrir stjórnmálamönnum. Slík "sköpun" fer gjarnan fram með því að skattleggja (eða taka lán og þannig skattleggja framtíðina) og þar með eyðileggja ósýnileg störf víða í samfélaginu til að til þess að skapa sýnileg störf t.d. við að byggja tónlistarhús.

Nú skal ég ekki segja til um hvort þau störf sem talið er að "verði til" við byggingu Þekkingargarðs séu betri eða verri en þau störf sem er "fórnað" með skattlagningu og/eða lántöku. Ég leyfi mér þó að efast um að það sé ráðlegt að láta stjórnmálamenn skera úr um það. Ég myndi gjarnan vilja sjá Sjálfstæðisflokkinn stuðla að því að raunveruleg verðmætasköpun geti átt sér stað á þessu landi. Það er nóg framboð af stjórnlyndum flokkum sem vilja skattleggja og planleggja líf okkar frá vöggu til grafar.

Sveinn Tryggvason, 13.5.2010 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband