Glaðir miðlarar....hitastigið og olíuverð hækka

Olíuverð hefur lengst af verið í kringum 20 dali. Það að verðið sé komið yfir 130 eru slæmar fréttir fyrir fjölskyldur og fyrirtæki sérstaklega til skemmri tíma litið.

Of mikil hækkun olíu kallar á að mannkynið fari að auknum krafti í endurnýjanlega orkugjafa.
Hér hefur Ísland bæði tækifæri og hlutverk.

Stutt er í að dísel fari í 200 kr líterinn.
Ekki verða vörubílstjórar ánægðir með það.

Nú er spurning hvað við getum gert með rafmagni, metan, vetni og öðrum leiðum.
Skattlagning farartækja getur tekið mið af þessu með því að lækka gjöld enn frekar á umhverfisvæna kosti.

Það gæti líkað slegið á viðskiptahallann.


mbl.is Verð á olíu yfir 130 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

Mikilvægt er að ráðstafa ekki meginhluta af okkar bestu virkjanakostum til fyrirtækja sem greiða verð , við eða undir kostnaði og eru með lítinn virðisauka fyrir okkur.

Verðmæti orkunnar fer ört vaxandi.  

Við unnum stórvirki með hitaveituvæðingunni- enginn smá olíusparnaður við þá framkvæmd.

Nú eru það fartækin okkar - að nýta innlenda orku til að drífa þau. 

Við erum í raun öfundsverðir, íslendingar , að eiga alla þessa orku .  

Notum hana skynsamlega og rösum ekki um ráð fram.

Sævar Helgason, 21.5.2008 kl. 10:57

2 Smámynd: Liberal

Vetni er ekki orkugjafi, vetni er flutningsmiðill á orku.  Það kostar meiri orku að búa til vetni sem hægt er að nýta sem aflgjafa í bíl en sú orka sem til verður, þannig að vetni hefur alla tíð verið fáránlegur valmöguleiki ef menn kunna smávegis fyrir sér í efnafræði.

Etanól er viðlíka vonlaus valmöguleiki, því etanól er unnið úr jurtum sem taka landrými frá annars konar ræktun, og minnka þar með jarðnæði til framleiðslu matvæla.  Af hverju ætli verð á hrávörum sé að hækka svona mikið?  Jú, minna er ræktað af matvælum en meira til eldsneytisframleiðslu.  Það er eitthvað svo týpíst Samfylkingin að boða það að slá aðeins á mengun heima fyrir en gefa skít í umheiminn.  

Sennilega er skynsamasta leiðin að efla annars vegar þróun bensínvéla og gera þær sparneytnari, og þá taka inn blendingsvélar sem ganga fyrir rafmagni/bensíni. 

Annars er Sævar með sama sönginn sem heyrist frá vinstrivængnum, nú þegar almennt fólk er hlynnt því að nýta þær auðlindir sem við eigum (vinstrimenn hafa aldrei verið hrifnir af því).  Nú á að bíða endalaust, því þetta hækkar bara í verði... svona eins og að verða gríðarlega ríkur af því að eiga svo mikinn óinnleystan hagnað.  Sennilega fóru vinstrimenn í fjármálaskóla DeCode.

En Eyþór, því fyrr sem stjórnmálamenn átta sig á því hvaða leið þeir eiga að fara, en ekki vera að halda öllum möguleikum opnum eins lengi og hægt er, þeim mun fyrr getum við orðið leiðandi á þessu sviði.  Við verðum ekki leiðandi á sviði jarðvarma þegar við getum ekki orðið sammála um að nýta neitt hérna heima fyrir, og við verðum ekki leiðandi á sviði vistvænna lausna á ökutæki fyrr en við veljum eitt og stöndum við það.  Og þá gildir öllu að hætta að hlusta á vinstrimennina sem virðast ófærir um að taka ákvarðanir um eitt eða neitt. 

Liberal, 21.5.2008 kl. 15:33

3 Smámynd: Sævar Helgason

Þó að ég svari ekki nafnleysingjum hér á blogginu- er rétt að gera undantekningu hjá þeim sem kallar sig Liberal.

Ég hef lifað og starfað í tengslum við orkugeirann í tæp 40 ár sem frumherji við álvinnslu á Íslandi.  Ég hef því haft nægan tíma og reynslu til að mynda mér nokkra skoðun á greininni í víðu samhengi.

Sævar Helgason, 21.5.2008 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband