Vafasöm aðgerð Breta

Margir erlendir sjómenn þurftu að kveðja Íslandsmið þegar við færðum út landhelgina. Þeir sem komu með herskip voru Bretar. Nú völdu þeir þann kostinn að beita Ísland hryðjuverkalögum, sennilegast til að slá sig til riddara í kvöldfréttunum. Tjónið verður illa bætt og bitnar harðast á lífeyrissjóðunum sem fjárfestu í Kaupþingi banka.

Ef eitthvað er lýðskrum hlýtur það að vera misneyting laga um hryðjuverk á friðsamri þjóð sem nú á í vök að verjast. Vinur er sá sem er vinur í raun.


mbl.is Mjög óvinveitt aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Bretar beittu Íslendinga ekki hryðjuverkalögum. Bretar beittu okkur sambærilegum lögum og FME á Íslandi hefur rétt til að beita í dag.

Árni Matt ásamt Davíð Oddssyni eru væntanlega einu mögulegu tengslin við "hryðjuverk" í þessu samhengi. Því miður.

Baldvin Jónsson, 9.10.2008 kl. 16:16

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það getur meira en verið að Árni segi eitt og annað ógáfulegt. Það breytir ekki  því að framganga Bretana varmjög óhefluð og raunar ruddaleg í okkar garð.  Þeir gerðu raunar meira en að senda herskip, þeir sendu dráttarbáta sem buffuðu varðskipin sundur og saman., meðan herskipin beindu byssum  að okkur.  Í 50 mílna deilunni létust 2 menn við skyldustörf og einn beinlínis vegna svona árásar. Það var ekki  Bretum að þakka að ekki  dóu fleiri heldur snarræði íslensku sjómannanna og hreinni heppni. Ég var t.d. á björgunarskipi Norðlendinga, Albert,  sem var ekki nema 200 tonn. Okkur var haldið í nokkurs konar "herkví" þangað til Loydsman sem var 24000 tonn kom á fullri ferð til að buffa okkur.  En það sem varð okkur til bjargar var að frákastið frá skipinu var svo mikið að við köstuðumst frá þeim eins og okkur væri lyft af risastórri öldu. Svona gekk þetta nokkrum sinnum þangað til þeir náðu loksins að laska okkur og koma okkur úr leik. Ég hlustaði á lýsingu af þessum atburði í BBC og hef ekki treyst þeirri stöð síðan.  

Sigurður Þórðarson, 9.10.2008 kl. 22:22

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

Það lýtur allt út fyrir að Bretar séu okkar messtu óvinir.

Þeir hafa í raun verið óvinir okkar með nokkrum milli köflum. 

Fannar frá Rifi, 9.10.2008 kl. 22:49

4 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Nú eru viðsjárverðir tímar og þá ríður á að þjóðin standi saman.

Eyþór Laxdal Arnalds, 9.10.2008 kl. 22:49

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Davíð má eiga það svikalaust að hann er þjóðernissinni og er mjög annt um hag sinnar þjóðar. Davíð er ekkert um EB gefið enda ber hann hag sjávarútvegs fyrir brjósti  þó hann sé með sömu meinloku og Fannar vinur minn gagnvart kvótakerfinu. Ég hugsa að helsta ástæðan fyrir því að við sem erum í öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokknum gagnrýnum Dabba óvægilega er sú að hann er að hann var verðugur andstæðingur, sem menn báru virðingu fyrir. Annars er ég sammála Eyþóri auðvitað stöndum við saman þegar mikið ríður á.  Ég minnist þess að hún Guðrún amma þín sagði mér að synir hennar (Ragnar og Jón) hefðu aldrei verið sammála við eldhúsborðið en svo brosti hún og sagði að það væri sterkur strengur.  Þannig held ég að við séum flest Íslendingar.

Sigurður Þórðarson, 10.10.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband