Jóhanna og Obama

Nú taka þau við Jóhanna og Obama við erfiðar aðstæður í sínum löndum. Bæði brjóta þau blað hvort á sinn hátt en jafnframt eru bundnar gríðarmiklar væntingar til þeirra. Jóhanna hefur vakið heimsathygli vegna kynhneigðar og Barack Obama hefur á sinn hátt látið draum Marin Luther King rætast. Bæði eru þau afar vinsæl og hafa því mikið "pólítískt kapítal" eins og það er kallað til að takast á við erfið verkefni. Bæði vilja þau efla samfélagsþjónustu á sama tíma og minna er um fjármagn. Obama er að vísu nýbúinn að vinna kosningar en Jóhanna er að hefja sína kosningabaráttu fyrir vorið. Þótt ólík séu af mörgu leyti er freistandi að sjá hvað er sameiginlegt með þeim.  

Nú er að sjá hvernig til tekst. . .  


mbl.is Jóhanna vekur heimsathygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Notalegt að lesa svona jákvæðan pistil frá pólitískum andstæðingi þú færð hrós frá mér Eyþór.

Finnur Bárðarson, 29.1.2009 kl. 16:40

2 identicon

Enda nýtur Jóhanna alþýðuhylli á Íslandi, ef marka má skoðanakönnun um vinsældir hennar sem stjórnmálamanns. En ég hef margtuggið það. Þessi kona á að mínu viti enga samleið með flokki eins og Samfylkingunni.  Hún er stjórnmálaforingi og á að leiða sinn eigin flokk.  Sem hún reyndar reyndi.  En það er hægara sagt en gert, eða var hægara sagt en gert.  En gæti verið hægt á næstu misserum. En hún er samt byrjuð að slá af, miðað við yfirlýsingar hennar fyrir stjórnarslit.  En að auka velferð í landinu með minna fjármagn hlýtur að vera verðugt viðfangsefni.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 17:27

3 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Góður Eyþór. Ég verð að játa að var ekki búin að sjá þessa samnefnara.  Ég er hræddur um að það sé samt ekki hægt að gera neina kröfur á Jóhönnu við þessar aðstæður, þetta er bara bráðabyrðaríkistjórn og í raun umboðslaus með öllu. Ég hefði vilja sjá hana  sem forsætisráðherra í alvöru ríkistjórn með ykkur sjálfstæðismönnum eftir næstu kosningar.

Guðmundur Jónsson, 29.1.2009 kl. 19:37

4 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Þetta eru spennandi tímar, magnþrungnir - gaman væri að horfa ofan af fjallinu eftir 200 ár og sjá hvað sagnfræðingar þess tíma segja um október 2008.

Varðandi Jóhönnu, þá brá mér þegar ég heyrði frétt RUV þar sem fjallað var um kynhneigð Jóhönnu eins og við séum í einhverju kapphlaupi, já - Ísland í fyrsta sæti, á ekki að spila þjóðsönginn? Finnst bara gott og blessað að Heilög Jóhanna búi með konu, hafði sjálfur ekki hugmynd um það og hélt að þannig væri um marga aðra. Mér er spurn, hvenær hefur Jóhanna gert kynhneigð sína að söluvöru? Aldrei! Rétindabarátta samkynhneigðra, snýst þetta um það? Hvað segir Jóhanna sjálf málið? Eitthvað fannst mér öfugsnúið í þessari frétt og er næstum því :) viss um að það helgast ekki af hommafóbíu hjá mér.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 30.1.2009 kl. 02:22

5 Smámynd: Hallur Magnússon

Munirinn er reyndar sá að Obama er Framsóknarmaður, en Jóhanna krati eins og Gordon Brown.

Veðja því frekar á að Obama nái árangri en Jóhanna við þessar aðstæður - nema Jóhanna fylgi aðgerðaráætlun Framsóknarmanna!

Hallur Magnússon, 30.1.2009 kl. 09:49

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Kæri frændi.

Fyndin ertu frændi að bera þau saman. Ég auðvita set spurningar um ýmislegt varðandi Jóhönnu því við eigum víst að heita kristin þjóð. En hún hefur barist fyrir þeim sem minna mega sín. Ekki bara í orðum heldur einnig í verki. Hefði framkvæmt meira ef að væru ekki bremsur á henni úr öllum áttum.

Við verðum að vona til Guðs að allt fari vel.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.1.2009 kl. 14:13

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þetta er allt í fínum málum næstu 4 árin er bara um að ræða 34% heildarneysluskerðingu íslensku þjóðarinnar eða 10% á ári.  1.500.000 x 66% = 990.000- svo ekki þurfum við að kvarta. Jóhanna þarf að standa við stóru orðin ef skerðingin á ekki að verða meiri. Ég óska henni góðs gengis og systur hennar ISG.

Júlíus Björnsson, 30.1.2009 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband