Kemur ekki á óvart

Hafi verið "gjá milli þings og þjóðar" í fjölmiðlamálinu ógæfulega var hún enn stærri hér.
Ákvörðun forsetans að synja fjölmiðlalögunum var fordæmalaus.
Ég hafði enga trú á því að forsetinn myndi synja lögunum staðfestingar.
mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson

Það skiptir engu máli hvora afstöðuna forsetinn hefði tekið það hefði alltaf verið gjá.

Grétar Einarsson

Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 2.9.2009 kl. 12:41

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Hann hefði átt að bjóða þjóðinni að velja - eftir þoturferðir og önnur flotheit hræðist hann vini sína á kostnað hins almenna íslendings

ég er enn undrandi yfir "áhugaleysi" stærsta hluta Sjálfstæðismanna að hafa setið hjá við kosningu um þetta mál á þinginu.

Jón Snæbjörnsson, 2.9.2009 kl. 12:42

3 Smámynd: Páll Blöndal

Eyþór,
Bjarni Ben. þinn foringi vildi ekki sjá að forsetinn vera
að skipta sér af, hvorki í þessu máli né öðru.

Er gjá á milli ykkar Sjálfstæðismanna.

Páll Blöndal, 2.9.2009 kl. 12:52

4 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæll Grétar,

forsetinn hefði ekki þurft að taka afstöðu til málsins með því að skjóta því til þjóðarinnar.

Jón: Ég hefði viljað sjá fleiri nei.

Páll: Bjarni sagði sína skoðun afdráttarlaust. Það breytir því ekki að misræmi er í vinnu forsetans í Icesave og Fjölmiðlamálinu.

Eru ekki annars allir orðnir sammála um að fjölmiðlalögin áttu fullan rétt á sér?

Eyþór Laxdal Arnalds, 2.9.2009 kl. 13:04

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Eyþór, ég mun ekki erfa þetta neitt sérstaklega við Sjálfstæðisflokkinn, en tel þó að best sé að vera röskur í framgöngu, heiðarlegur, staðfastur og öruggur.

hvað varðar spurninguna; þá skil ég ekki þessa "gungu" nú og skildi hana ekki þá

Jón Snæbjörnsson, 2.9.2009 kl. 13:29

6 Smámynd: Páll Blöndal

Eyþór,
Ég hefði persónulega vilja sjá synjun, en það eru rök með og á móti.
Og finnst mér afstaða forsetans skiljanleg.

en varðandi fjölmiðlamálið:
þá var forsetinn var bara að koma í veg fyrir að einræðisherrann næði hér alræðisvaldi.
Að láta sér detta í hug að takmarka eignaraðild við 5% eins og einræðisherrann vildi
Þú veist alveg að það var bara bull.

Eyþór, þú veist það vel að þó svo að forsetinn synji lögum þá er hann einungis að vísa málinu til þjóðarinnar?
eða varstu að vonast til þess að forsetinn gæti STOPPAÐ Icesave?

Davíð Oddson & co vildu EKKI að þjóðin segði sitt álit á fjölmiðlalögunum.
Davíð þorði ekki fyrir sitt litla egó að fá álit þjóðarinnar.

Páll Blöndal, 2.9.2009 kl. 13:52

7 Smámynd: 365

Ykkur ferst að tjá ykkur um þetta mál.  Þið sem viljið bera kápuna á báðum herðum, sátuð hjá nema tveir úr ykkar röðum, og svo eruð þið undrandi á afstöðu órg, ja hérna.

365, 2.9.2009 kl. 14:56

8 Smámynd: 365

Tek reyndar fram að fjöllmiðlalögin áttu fullan rétt á sér ma. vegna krosseignatengsla og fl.

365, 2.9.2009 kl. 14:58

9 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Páll Blöndal - með sömu heimskulegu rökunum getur þú sagt að forsetinn hafi ekki viljað að ÞJÓÐIN segði sitt álit.

Þá hefði hann þurft að segja af sér !! 

Sigurður Sigurðsson, 2.9.2009 kl. 15:42

10 Smámynd: Vilhjálmur Sveinn Björnsson

Forsetinn var að verja Útrásavíkingana í fjölmiðlafrumvarpinu það vita allir!!!!!!!!

Vilhjálmur Sveinn Björnsson, 2.9.2009 kl. 19:46

11 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæll "365".

Ég hef verið á móti ríkisábyrgð á Icesave frá upphafi og flutti tillögu þess efnis á landsfundi Sjálfstæðisflokksins ásamt Pétri Blöndal og fleirum.

Eyþór Laxdal Arnalds, 2.9.2009 kl. 20:00

12 Smámynd: Halla Rut

Forsetinn og þinn formaður eru alveg sammála. Þú hlýtur því að vera glaður með forseta vor. Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá að mestu og lét lítið bera á sér í málinu svona alveg eins og Ólafur. Það eru æði margir sem eru hér til skammar, nokkuð sem verður minnst á og munað alla tíð.

Einhvernvegin finnst mér formaður Sjálfstæðisflokksins algjörlega úr takt við flokkinn og ætti kannski best heima í samfylkingunni. Reyndar á það við um varaformann ykkar líkar. Vel á minnst. Hvar er hún eiginlega? 

Halla Rut , 2.9.2009 kl. 21:23

13 Smámynd: Páll Blöndal

SISI hin ofurgáfaða,
synja lögum er undantekning ef þú hefur ekki áttað þig á því.
Af hverju vildi DO ekki lát þjóðina kjósa um fjölmiðlafrumvarpið?

Páll Blöndal, 2.9.2009 kl. 21:57

14 Smámynd: Byltingarforinginn

Það lá alltaf fyrir að ÓRG myndi skrifa undir. Þessi gjá er líklega breiðari en sú sem var þegar fjölmiðlafrumvarpið var og hét... en þessi er búin til af vinstri mönnum. Óli eeeelskar svoleiðis gjár!

Byltingarforinginn, 2.9.2009 kl. 23:02

15 identicon

Byltingarforinginn

Elskar Óli gjár á milli hans (forseta Ísl. ) og  almennings?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 3.9.2009 kl. 00:18

16 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég fæ ekki betur séð en Sjálfstæðisflokkurinn beri mikla sök á afdrifum Icesave-málsins.

  • Hvers vegna var ekki þingflokkurinn allur anvígur Icesave-ábyrgðinni með skilyrðum ?
  • Hvers vegna rauk Bjarni Bnediktsson í fjölmiðla og hvatti Ólaf Ragnar til að skrifa undir ?

Fullnægjandi svör við þessum spurningum hafa ekki borist. Frekari umfjöllun mín er hér:

 http://altice.blog.is/blog/altice/entry/941691/

Loftur Altice Þorsteinsson, 3.9.2009 kl. 20:46

17 Smámynd: Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson

Hvernig var þetta aftur með Sjálfstæðisfl.: Samþykktu (kannski með semingi þó) tillöguna úr nefndinni, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, hvöttu forsetann til að segja já, en óskuðu sér að Hollendingar og Bretar segðu nei. Er nema að maður hvái??? 

Annars er bara ekki ein einasta góð leið í þessu máli. æEg öfunda ekki þingmenn að þurfa að taka afstöðu í þessu. Það er nákvæmlega sama hvaða afstöðu þeir taka þeir eru um leið bæði "skúrkar" og "hetjur".  

 Annars held ég að fáir þurfi að éta eins mikið ofan í sig af vitleysu og Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Það stendur ekki steinn yfir steini af allri vitleysunni sem hann hefur gubbað út úr sér á undaförnum árum. Hvað, til hvers og af hverju var hann í bankastjórn seðlabankans? 

 Grétar Einarsson

Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 4.9.2009 kl. 12:19

18 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ekki er nú rétt með farið hjá ykkur Grétar & Óskar. Sjálfstæðisflokkurinn var aðal-höfundur skilyrðanna við ábyrgð Icesave-samningsins. Þar átti Pétur Blöndal stærsta þáttinn, ef ég hef skilið rétt. Hins vegar er nærstum rétt hjá ykkur, að:

  • Þingflokkurinn sat hjá við endanlega atkvæðagreiðslu, nema Birgir Ármannsson og Árni Johnsen.
  • Bjarni Benediktsson hvatti forsetann til að skrifa undir ábyrgðar-lögin.

Fulltrúar þingflokksins hafa gengið útfrá því sem staðreynd, að skilyrðin við ábyrgðina væru breyting á samningnum og þar af leiðandi myndu Bretar og Hollendingar vilja taka upp viðræður. Heiður xD liggur við, að þetta verði raunin. Því hef ég talað um að þeir hafi tekið mikla áhættu, bæði persónulega pólitíska áhættu og áhættu fyrir hönd þjóðarinnar.

Ég vil benda á, að allt þetta ferli hjá þingmönnum xD er rökrétt, svo framarlega sem menn telja að ríkinu beri skylda til að taka ábyrgð á innistæðu-tryggingunum, eða að við séum neydd til þess af Bretum og Hollendingum. Þær skýringar hafa hins vegar ekki heyrst frá Sjálfstæðismönnum. Það er þetta ósamræmi á milli orða og gerða sem ég hef verið að hrella menn með.

Loftur Altice Þorsteinsson, 4.9.2009 kl. 13:36

19 Smámynd: Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson

Takk fyrir þetta Loftur. Það er sem ég segi; er nema von að maður hvái? Því verður ekki á móti mælt að Sjálfstæðisflokkurinn gengur ekki heilshugar í þessu máli. En sennilega gera það fæstir flokkar í raun.

Grétar Einarsson

Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 5.9.2009 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband