Kvennafylgi hverfur - Ingibjörg komin á Kanarí

Nú er búið að greina hvaða fylgi hefur helst verið að kvarnast úr Samfylkingunni og eru það helst konur sem hafa hætt við að kjósa S. Þetta kemur mörgum á óvart, enda nýbúað að kjósa konu sem formann, en hún var áður borgarstjóri í Reykjavík og hefur verið kynnt sem "forsætisráðherraefni" í tvígang.

Það vakti athygli í gær að á sameiginlegum blaðamannafundi formanna stjórnarandstöðuflokkanna var Össur mættur í forsvari fyrir Samfylkinguna. Svar við spurningu gærdagsins (Hvar er Ingibjörg?) er að finna hér: Hún er á Kanarí.


Þó margir Íslendingar fari í skammdeginu á Kanarí, er alls óvíst að atkvæðaveiðar á Las Palmas séu sterkasti leikurinn í stöðunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ansi er þetta langt seilst! Spurt er: Ertu með eða á móti því að ISG fari í frí? Jössess.

Gott að þú fylgist með ferðum fólks Eyþór, annars hefði ég verið gjörsamlega "blanco" varðandi ferðir ISG um heiminn. Kommon

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.3.2007 kl. 15:38

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Það er greinilegt að herkænska Guðna Ágústssonar hefur smitað út frá sér og sennilega ekki langt í að allir forystumennirnir sem eftir eru renni sér í sólina og lesi yfir liðinu á Klörubar. 

Halldór Egill Guðnason, 6.3.2007 kl. 17:22

3 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Já manni finnst þetta "ansi langt seilst" hjá Ingibjörgu. Klörubar er greinilega að verða hið íslenska Iowa. Eða hvað?

Eyþór Laxdal Arnalds, 6.3.2007 kl. 17:32

4 Smámynd: Vilborg G. Hansen

Já það er athyglisvert að þegar Ingibjörg Sólrún hefur verið kynnt í tvígang sem forsætisráðherraefni samfylkingar þá hlaupa konurnar úr flokknum!  Það virðist því fokið í flest skjól hjá henni blessaðri og kannski þess vegna er síðasta hálmstráið, Klörubar á Kanarí!  Ætli hún nái fylginu á Kanarí frá Framsókn...þeir verða að fara að passa sig og drífa sig á eftir henni 

Vilborg G. Hansen, 6.3.2007 kl. 18:28

5 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Er hún ekki bara að sópa upp mylsnuna sem Guðni skildi eftir...

Allt er hey í harðindum.

Júlíus Sigurþórsson, 6.3.2007 kl. 19:11

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Jenný mín, þú hefur ekki lesið vel pistilinn, þá hefðirðu getað séð hvaðan upplýsingarnar um ferðir ISG voru komnar.  Mér þætti bara allt í lagi að leyfa henni að vera á Klörubar fram í júní, hér gagnast hún ekki S né öðrum flokkum.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.3.2007 kl. 20:58

7 Smámynd: Kristján Pétursson

Stöðugar árásir og níð íhaldsins um áraraðir í  Staksteinum Morgunblaðsins og víðar á ISG hafa sýnilega borið árangur.Það er enginn svo sterkur stjórnmálamaður,sem ekki er hægt eyðileggja með  langtíma skipulögðu níði.Suma þarf ekki að eyðileggja,þeir gera það sjálfir.

Kristján Pétursson, 6.3.2007 kl. 21:09

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit núna kæra Ásdís að það er Klörubar á Kanaríeyjum, að Guðni skildi eftir sig mylsnu og að það er einhver skjálfti í fólki.  Nú er ég ekki í Samfylkingu en finnst  bara út í hött að gera að umtalsefni að fólk bregði sér af bæ og þá er mér slétt sama hvaðan upplýsingar um ferðalag konunnar komu upphaflega. Ég er að bregðast við þessum pistli hans Eyþórs gott fólk!

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.3.2007 kl. 21:10

9 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Það er nú bara þannig að jafnvel stjórnmálamenn þurfa stundum, eins og allir aðrir, að fara í frí. Það þurfa ekki allir lögregluhjálp til þess!!!

Konur eru ekki að flýja eitt eða neitt, allra síst Samfylkinguna. Konur eru hinsvegar upp til hópa skynsamar og eru ekki endilega alltaf að gefa það upp hvað þær kjósa. Við skulum bíða til kosninga og sjá til hvernig þetta fer.  

Samfylkingin er eini kosturinn í stöðunni enda eini jafnaðarmannaflokkur Íslands. Við skulum ekki gleyma því heldur að það er hægt að vinna þó maður tapi, sbr. Liverpool í kvöld!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.3.2007 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband