Spádómur Jóhönnu

Fyrir tólf árum síðan voru niðurstöður Alþingiskosninga þær að Alþýðuflokkur fékk 7 þingsæti, Framsókn 15, Sjálfstæðisflokkur 25, Alþýðubandalag 9, Þjóðvaki hreyfing fólksins 4 og svo Samtök um kvennalista 3.

Stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks stóð tæpt og fór svo að mynduð var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.  -  Það samstarf hefur haldið síðan.

"Jóhanna Sigurðardóttir sagði fréttamönnum, að það yrðu vonbrigði ef Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu ríkisstjórn og það myndi leiða af sér tímabil stöðnunar."

Á þessum tólf árum hefur margt breyst á Íslandi og er eitt víst sama hvar í flokki menn standa og hvaða skoðanir þeir kunna að hafa: Það hefur ekki ríkt stöðnun á Íslandi.

Kaupmáttur hefur stóraukist, fyrirtækin hafa eflst, menntun hefur vaxið, ríkissjóður er skuldlaus við útlönd. - Velferð þjóðarbússins er undirstaða velferðarþjóðfélagsins. 
 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur meðal annars ríkt stöðnun í jafnréttismálum, heilbrigðismálum, félagsmálum og málum aldraðra og öryrkja.

Lífið snýst um svo miklu meiri en peninga þeirra sem eiga þá.

Ríkissjóður er ekki skuldlaus við útlönd.

Skuldir heimilanna eru 1200 milljarðar og yfirdráttur (neyslulán) 75 milljarðar. Kaupmátturinn er fjármagnaður með lánum.

Ástæðan fyrir því að fólk fjármagnar neyslu með lánum er sú að ríkisstjórnin er alltaf að tala um allt sé svo frábært og að við eigum svo mikinn auð. "Ríkasta þjóð í heimi", "sjáið þið ekki veisluna, strákar" osfrv. Væntingarnar verða óhjákvæmilega óraunhæfar.

Getur ekki verið að þetta sé ofmat?

Stýrivextir eru til dæmis heimsmet og hafa verið um langt skeið.

Ástæðan er mögulega óraunsæjar væntingar og stórframkvæmdir.

Og hverjar eru skuldir Landsvirkjunnar, þær er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Þetta er líklega stærsta atvinnubótaverkefni heims síðan sóvét læt moka skurði með handafli. Það merkilegasta er að vinnuaflið í þetta byggðarbótaverkefni þurfti að koma erlendis frá.

Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 09:45

2 Smámynd: Anna

Ah, nú skil ég hvað Sjálfstæðisflokkurinn á við með velferð, það er sumsé velferð þeirra sem eiga peninga, ekki velferð hinna fátækari, hinna eldri, þeirra sem þurfa einhvers konar aðstoð í lífinu og þeirra sem minna mega sín á einhvern hátt.

Samkvæmt þeirri skilgreiningu hefur núverandi stjórn náttúrulega staðið sig einstaklega vel við að byggja upp öflugt velferðarkerfi...

Anna, 9.5.2007 kl. 11:00

3 Smámynd: Auðun Gíslason

Málefnafátækt Sjálfstæðismanna er svo mikil að þeirra helsta vopn í baráttunni er sagnfræði!  Minnir helst á gamla sveitamenn sötrandi kaffisopann af undirskál!

Auðun Gíslason, 9.5.2007 kl. 11:25

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

já Baldvin það má vel vera að þú haldir það. Ef hér væri allt í kaldakolum. Efnahagurinn að hruni kominn eða hruninn eftir vinstrióstjórn. Þá myndi ekki nokkur maður spá í  jafnréttismálum, heilbrigðismálum, félagsmálum og málum aldraðra og öryrkja. Þetta eru velferðarmál sem koma þegar við höfum nóg milli handana. Síðan er þetta bara ekki rétt hjá þér. Þó svo að hér hafi ekki verið komið á kynjalögum sem neyða fyrirtæki til þess að ráða konur bara útaf kyni þá þýðir ekki að það sé stöðnun. Hvernig er hlutfallið milli karla og kvenna í Háskólum landsins? segðu svo að það sé stöðnun.

Fannar frá Rifi, 9.5.2007 kl. 12:52

5 Smámynd: Sigurjón

Eftir stendur að það er ekki stöðnun á landinu eins og Eyþór sagði.

Anna:  Þetta er alveg rétt.  Sjálfstæðisflokkurinn er uppbyggður af ríkum fitubollum eins og mér til að gera okkur enn ríkari og feitari.  Pahaha!

Sigurjón, 9.5.2007 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband