Ítalskur tónn í sveitarstjórn

 

Ég var á ferð með bandarískum og ítölskum mönnum í Þorlákshöfn í gær og kveikti á útvarpinu. Þar hljómuðu öskur og óp úr Ráðhúsi Reykjavíkur. Mennirnir spurðu hvað væri í gangi. Ég velti fyrir mér hvort ég gæti sagt þeim sannleikann. Ég var nýbúinn að dásama Ísland og hér ríkti stöðugleiki, samningar væru virtir og orð héldu. Var að spá í að segja þeim að þetta væri kappleikur, en sagði þeim loks hvað væri að gerast. Þeir voru vægast sagt hissa, en Ítalirnir sögðu þetta vera eins og hjá sér, en þar hafa ríkisstjórnar oft ekki lifað árið. Táknrænt að Prodi og BIngi sögðu af sér sama dag. Ítalirnir sögðu okkar að venjast þessu því það væri erfitt að komast út úr svona lágkúru. Líklegt væri að persónupólítík muni ráða ríkjum og fjölmiðlum.

Lætin í borgastjórn Reykjavíkur hafa verið með miklum eindæmum:

Fyrst var stofnað til vinstri meirihluta um REI. Þá var haldinn eigendafundur REI og honum frestað í margar vikur. (Mér vitanlega er honum enn ekki lokið). Þá var rifist um 2 hús á Laugavegi. Ekkert var ákveðið. Þá gafst Ólafur F Magnússon upp og tók að sér að vera borgarstjóri með stuðningi Sjálfstæðismanna. Var þá smalað á pallana í Ráðhúsinu og baulað. Að mínu mati hafa allir sett niður og pólítíkin í heild. Traust á stjórnmálum hlýtur að hafa minnkað til muna.

Þeir stjórnmálamenn sem telja þetta heppilega atburðarrás eða fagna baulurunum sérstaklega ætti að hugsa sinn gang. Sveitarstjórnmönnum er sett sú skylda að sitja án kosninga í fjögur ár. Þetta vita menn og verða að sætta sig við.

Samstarf margra flokka gerir þetta alltaf erfiðara, en atburðarrásin í Reykjavík minnir á valdaskiptin í Árborg 2006 þegar þrír bæjarstjórar voru á launum og sá flokkur sem mestu tapaði í kosningunum(Samfylkingin) tók sér bæjarstjóraembættið. Var það lýðræðislegt?. Reyndar er það ansi sérstakt að Samfylkingingarfólk á borð við Dag og Ingibjörgu skuli gagnrýna borgarstjóraskiptin miðað við það að hafa sjálf stundað það í Árborg og farið beinlínis gegn vilja kjósenda og niðurstöðu kosninga.

Kannski við sjáum þetta smita yfir í landsmálin?
Svandís boðar að minnsta kosti "óvæntan ávöxt"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvaða sannleika sagðirðu Ítölunum? Þann sannleika að flokksfélagar þínir hefðu framið valdarán í Ítölskum stíl?

Sagðirðu þeim að þeir hefðu gert mann að borgarstjóra sem hefur fylgi við pilsnermörk og laug að fyrrum samstarfsfélögum sínum?

Sagðirðu þeim að leiðtogi sjálfstæðismanna í borgarstjórn hafi verið hársbreidd frá því að selja orkuauðlindir reykvíkinga í hendur á bröskurum, var margsaga um málið og er algerlega rúinn trausti?

Sagðirðu að sami maður hafi rænt völdum í borginni og gert sjálfan sig að borgarstjóra yfir borg sem hann hefur algerlega brugðist og sýnt fádæma afglöp í starfi?

Ef þú hefur sagt Ítölunum þetta þá er ég ekki hissa að þeir skyldu verða hissa. 

Theódór Norðkvist, 25.1.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Já Thor. Útsendingin var nokkuð sem margir hlustuðu á forviða hvort sem þeir voru við tölvu, sjónvarp eða útvarp. Við vorum að keyra þrengslin og hlustuðum á útvarpið.  

Eyþór Laxdal Arnalds, 26.1.2008 kl. 00:38

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þetta er laukrétt Theódór, ef hann Eyþór hefur sagt þeim hvernig þetta bull hefur gengið fyrir sig er ég viss um að þeir hafa skilið lætin. Mér finnst hinsvegar af hans lýsingu á viðbrögðunum að hann hafi ekki sagt þeim það sem á undan er gengið...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 26.1.2008 kl. 01:26

4 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Það sem að ég verð að segja um allt þetta, hvort heldur nú er um Árborg eða Reykjavík, er að það er knýjandi nauðsyn á að breyta þessu kosningarfyrirkomulagi.
Það er eðlileg, og lýðræðisleg, krafa að efnt skuli til kosninga þegar meirihlutar springa og mál eru þannig komin að minnihluti er farinn að ráða. Að einungis skuli kosið á fjögurra ára fresti, sama hvernig viðrar, er bara fáránleg regla.

Þór Ludwig Stiefel TORA, 26.1.2008 kl. 13:31

5 Smámynd: Heimir Tómasson

Arnþór, það er ekki lýðræði að mínu viti ef að fólk hefur uppi hávaða á pöllum og truflar störf kosinna fulltrúa. Það eru skrílslæti. Að vera með dólgslæti er hreinlega óvirðing, óvirðing bæði við meiri og minnihluta, þeir voru jú kosnir í sömu kosningum, ekki satt? En mótmæli eiga alltaf rétt á sér. En mótmælin verða að vera á þeim nótunum að þingræði sé virt, annars er til lítils að vera með allar þessar reglur.

En það má kannski benda á það einnig að alltaf (að mig minnir - gætu verið frávik) þegar ólæti eru annaðhvort á áhorfendapöllum alþingis eða á áhorfendapöllum borgarstjórnar - þá eru það að jafnaði vinstrimenn sem að halda þeim hávaða uppi. Mig rekur ekki minni til að Heimdellingar og sjálfstæðismenn hafi rofið þinghelgi með skrílslátum.

Og Laissez, ég botna ekkert í hvað þú átt við.

Heimir Tómasson, 27.1.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband