Verkefna er þörf

Nýting auðlinda er lykilatriði í þeirri uppbyggingu sem nauðsynleg er á Íslandi. Það er ekkert að því að hafa trú á framtíðinni og þeim tækifærum sem þar geta falist. Olían er slíkt tækifæri. Útlitið er nógu dökkt þó við séum ekki að tala niður þau sóknarfæri sem við höfum eða kunnum að fá.

Öflun gjaldeyris hefur sjaldan verið mikilvægari og því hljóta slík verkefni að vera forgangsverkefni fyrir Ísland. Grunnatvinnuvegirnir eru besta undirstaðan undir þjónustu hvort sem um er að ræða almenna þjónustu og velferðarþjónustu.

Vöxtur er í Asíu og í Kína takast menn á við efnahagssamdrátt með fjárfestingu í innviðum eins og þjóðvegum og flugvöllum. Verkefni á borð við virkjanir og þjóðvegi eiga vel við á Íslandi þar sem þau eru innviðir uppbyggingar og gjaldeyrissköpunar eins og iðnaðar og ferðamennsku. Nú er mikilvægt að við tökumst á við vandann með sókn í nýsköpun og undirstöðu.


mbl.is Í draumi sérhvers manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

"Verkefni á borð við virkjanir og þjóðvegi eiga vel við á Íslandi" á meðan ekki þarf að fá lánaðan gjaldeyri upp á milljarða. Það er líka mikilvægt að setja ekki öll eggin í sömu álkörfuna.

Villi Asgeirsson, 25.11.2008 kl. 19:54

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þessu Eyþór,þetta er alveg numer eitt/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 25.11.2008 kl. 23:23

3 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Eyþór, þarna kemur þú að kjarna málsins. Við verðum að nýta okkur þær auðlindir sem við eigum til að búa til gjaldeyrir þannig að við getum unnið okkur hratt út úr þessum ósköpum. Það má ekki gleyma því að við erum örfá og við þurfum svo lítið til að snúa öllu aftur í gang. Við eigum að vera óhrædd að taka fé að láni til slíkra arðsamra framkvæmda. Slíkar framkvæmdir skapa mörg störf. 20% af framkvæmdakostnaði kemur beint inn í ríkissjóð sem virðisaukaskattur. Auk tekjuskatts af launum starfsmanna við framkvæmdir og við framleiðsluna. Við eigum ekki að láta rithöfunda, þó góðir séu,  afvegaleiða okkur í atvinnumálum.

Það er bara hræðilegt ef stefna aðgerðarleysis með tilheyrandi atvinnuleysi verður áfram hér ofaná. Allstaðar eru ríkisstjórnir að lækka vexti og koma með fjármagn beint og óbeint inn í atvinnulífið til að halda hjólunum í gangi. Ekkert bólar á slíku hér. Þvert á móti.

Engin aðgerðaáætlun hefur enn litið dagsins ljós. Á meðan hrynja heilu atvinnugreinarnar eins og byggingaiðnaðurinn er nú að gera. Það eina sem forystumenn okkar eru að gera er að tala um niðurskurð. Það er eins og þeir séu að koðna niður, útbrunnið fólk og kreppan varla byrjuð. Mér finnst því miður það vanti allan kraft, alla framtíðarsýn og þann dugnað og atorku sem við þurfum á að halda til að vinna okkur út úr þessu.

Þá er ég farinn að óttast hvað mun gerast ef enginn verður látinn axlað ábyrgð á þessu bankahruni. Við sjáum hvernig mótmælin eru að stigmagnast. Ég er ekki sammála þeim flokkssystkinum mínu í Sjálfstæðisflokknum sem fynnast spennandi tímar framunda. Ég held að einn róstusamasti og erfiðasti vetur okkar kynslóðar sé framundan.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 26.11.2008 kl. 00:06

4 Smámynd: Magnús Þór Friðriksson

Akkúrat! Auðvitað verður að horfa fram á veginn, og ekki sleppa því að skoða neina möguleika. En maður spyr sig ósjálfrátt að því hvort það sé eitthvað lánsfé að fá til stórframkvæmda? Er ekki lánshæfismat okkar komði í "þrefaldan B-flokk".

Nú veltir maður því fyrir sér hvort þessi risavaxni lánapakki sem við eigum von á frá IMF og nágrannaþjóðum sé allur eyrnamerktur Icesave reikningum og flotholti til handa krónunni.

Hefur nokkuð annað komið fram?

Magnús Þór Friðriksson, 26.11.2008 kl. 08:27

5 Smámynd: Héðinn Björnsson

Við verðum samt að skifta aðgerðum upp eftir tímaskala. Olíuvinnsla er á tímaskalanum 5-20 ár alveg eins og ESB aðild. Það gerir slík mál ekki virðislaus en fyrst verðum við að tryggja að hér verði eitthvað samfélag eftir 5-20 ár sem gæti nýtt sér slík verðmæti. Það vanntar skammtímaátlun um hvernig við fáum verðmætasköpun úr starfskrafti þeirra 20.000 íslendinga sem munu missa vinnuna á fyrsta ári kreppunnar. Ekki dugar að láta svo stóran hóp sitja heima næstu árin þangað til við kannski finnum olíu.

Héðinn Björnsson, 26.11.2008 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband