Enron - Ísland

Margir horfa sjálfsagt á heimildarmyndina um Enron sem sýnd er á RÚV. Þessa mynd sá ég á sínum tíma og nú hefur hún nýjar skýrskotanir; bankar um heim allan og svo Ísland.

Ágætur maður kallaði FL Group "FL-ENRON" - það þótti gróft á sínum tíma en þykir sjálfsagt ekki lengur. Stjórnendur Enron fóru í fangelsi en enn er óvíst hvort framin voru lögbrot hjá fjármála- og fjárfestingafélögunum. Engu að síður var hvoru tveggja byggt á sandi og hrundi hratt þegar á reyndi. Snillingar reyndust gamblerar.

Sagan af Enron er saga af hroka og græðgi. Sama má segja um íslenska "útrásarævintýrið". Þetta eru ekki ný sannindi heldur gömul og sígild þar sem dramb er falli næst.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Tómasson

Hafi maður verið vænissjúkur gagnvart útrásarvíkingum áður þá hefur sú tilfinning ekki minnkað við að horfa á þennan þátt. Ótrúlega margt sem manni finnst maður hafa heyrt áður, bara í innlendu samhengi.

Hjalti Tómasson, 1.3.2009 kl. 23:54

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Maður verður bara miður sín og uggandi um framtíð íslensks samfélags. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.3.2009 kl. 01:47

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Í Enron skandalnum voru menn teknir og settir í tuktús, eins og heimtað er hér. Það sefaði mestu reiðina.  Engu eða fáu var þó breytt í reglum og lögum, sem m.a. hafði alveg verið sleppt lausum fyrir tilstuðlan þessara manna og vina þeirra í hæstu stöðum. (öðruvísi gat þetta ekki gerst)

Það varð að sjálfsögðu til þess að sömu hlutir gerðust aftur og nú í miklu stærra samhengi, rétt eins og Enron hafi verið generalprufa fyrir það, sem koma skildi. Hver veit.

Sama gerðist einnig hér og það að setja menn í tuktús yrði eingöngu táknræn athöfn. Við skulum því gæta þess vel að breyta allri lögjöf og stoppa í öll göt, sem gerðu þessu kleyft að fara svona. Annars munum við ekkert af reynslunni læra og þetta endurtaka sig.

Það er kannski vert að hafa í huga við rannsóknina hvort einhverjar lagabreytingar hér og liðkanir hjálpuðu þessu að gerast og þá í framhaldi að finna út hver rak þær í gegnum löggjafann og undir hverra áeggjan. Þannig má kannski finna hina raunverulegu sökudólga í stað táknrænna blóraböggla.  Það breytir engu að brenna tuskubrúður.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.3.2009 kl. 06:33

4 Smámynd: Snorri Hrafn Guðmundsson

Þegar ég var í Boston í MBA, þá voru þar á sama tíma FL Group og leiðandi Kaupþingsmenn. Umræðan þar snerist um hvernig ætti að taka á ofurlaunum stjórnenda þar sem upp hafði komið sú staða að þeir hreinlega eyðileggðu fyrirtækin með því að einblína á hámörkun hlutabréfaverðs og rýrðu félögin svo þau voru að hruni komin eftir aðeins fáein ár af slíkum aðgerðum. Svo þegar þetta fór allt af staðfannst mér eins og ég væri kominn í tímavél ... allt sem Kaninn hafði varað við var að gerast hér enda regluverkið svo skammt á veg komið að hægt var að spila með það að vild.

Spurning er samt hvort ætlunin hafi verið að koma málum svo hærðilega fyrir eins og raunin varð.  Ég tel að enginn hafi ætlað sér að hanna þessa efnahagssprengju, en samkeppni innan bankageirans um að vera stærstur, arðsamastur og bestur hafi gert að misst var sjónar á raunverulegum tilgangi fyrirtækjareksturs. Þetta eru í raun bestu menn sem rötuðu í ógöngur vegna samkeppni sín á milli. Það getur gerst á bestu bæjum.

Þetta gæti verið áhugavert fyrir einhverja: Skuldsetning heimila og fyrirtækja

Snorri Hrafn Guðmundsson, 2.3.2009 kl. 07:02

5 Smámynd: Dunni

FL-ENRON er svo nálægt sannleikanum aðþað gæti sem best verið kópíað og peistað úr heilagri ritningu.

Dunni, 2.3.2009 kl. 07:19

6 identicon

Margir af Enron víkingunum fóru í fangelsi.  En Kenny boy slapp, hann lést úr hjartaáfalli.  Heppileg tilviljun.  Ætli hann baki sig ekki bara í sólinni í Paraguay og ylji sér við peningahrúguna sem öll var horfin?

Gullvagninn (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 08:55

7 Smámynd: Dexter Morgan

Jæja, það er gott að einhver sér ljósið. Einhver sjálfstæðismaður, á ég við. Þú sérð þessa mynd sem skírskotun til m.a. Íslands. Það er mikið rétt. En eitt er þó sem er öðruvísi farið. Þessir menn báru ábyrgð, fóru fyrir dómstóla og voru dæmdir í fangelsi, þrátt fyrir að finnast þeir EKKERT hafa gert nokkuð rangt (sem er fjári líkt formanni Sjálfst.fl.) Hver hefur borið ábyrgði á efnahagsstefnu og fjármálum Íslands s.l. áratugi, ég bara spyr ? Nú er rétti tíminn til að gera upp þessi mál. Eða á ég að trúa því að sjálfstæðimenn og forysta þeirra sé jafn siðblind og stjórnendur ENRON.

Dexter Morgan, 2.3.2009 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband