Ísinn á Suðurskautinu - "nýjar myndir" frá 2005

Það kann að hljóma annannalega að tala um nýjar myndir, en þessar gervihnattamyndir eru tveggja ára gamlar og sýna bráðnun á Suðurheimskautinu - Antartíku - á nokkrum stöðum. Suðurheimsskautið geymir gríðarlegan vatnsforða og er svæðið sem er merkt á myndinni stærra en Kalífornía. Hér er svo grein um málið frá því í gær.

antartica

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Mesta bráðnunin á suðurskautslandinu er á tanganum þarna ofarlega til vinstri á myndinni. Vegna hlýnandi loftslags hefur meiri raki myndast og komist lengra inn á meginlands suðurskautslandsins. meginlandið er þurrari en Sahara. Af þessum sökum hefur magn þess vatns sem bundið er í ís aukist en ekki dregist saman eins margir vísindamenn og umhverfissamtök vilja meina. 

Fannar frá Rifi, 17.5.2007 kl. 11:09

2 Smámynd: Dofri Hermannsson

Upplífgandi tilbreyting að sjá sjálfstæðismann velta þessu fyrir sér með fordómalausum hætti. Komdu fagnandi í hópinn.

Dofri Hermannsson, 17.5.2007 kl. 11:44

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

 Sæll Eyþór

Það hefur verið að kólna á Suðurskautslandinu undanfarna áratugi, nema við Suðurskauts-skagann sem nær langt til norðurs.

Sjá t.d. þessa síðu frá NASA Earth Observatory:
http://earthobservatory.nasa.gov/Newsroom/NewImages/images.php3?img_id=17257

 Eins og sjá má, þé hefur mestallt Suðurskautslandið farið kólnandi.

Eða hér:
Guess what? Antarctica's getting colder, not warmer
http://www.csmonitor.com/2002/0118/p02s01-usgn.html

Hvað veldur þessari kólnun ?

Ágúst H Bjarnason, 17.5.2007 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband