Framsókn.is og æðruleysisbænin

Skrif Jón Sigurðssonar á www.framsokn.is eru með þeim ólíkindum að ég þurfti að lesa þau sjálfur til að trúa þeim. Í gær fullyrti sami Jón að enginn trúnaðarbrestur væri á milli hans og Geirs. Nú snýr hann við blaðinu í sínu fyrsta bloggi. Jafnframt þessu bjóða Framsóknarmenn upp á forsætisráðherraefni sitt: Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, eins og Jón formaður bendir sjálfur á í pistli sínum. Ekki finnst mér þetta vera björguleg byrjun á endurskipulagninu og uppbyggingarstarfi Framsóknarmanna sem eru í bullandi afneitun eftir erfið úrslit. Jón er vandaður maður og ætti ekki að benda á aðra eða kenna þeim um stöðu Framsóknar.

Minni á æðruleysisbænina sem inniheldur góðan og gagnlegan sannleik:

Guð - gef mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bryndís Guðmundsdóttir  (Binna)

Er það ekki eðlislægt hjá okkur mannfólkinu að bregðast svona við þegar að okkur er vegið, eða að okkur finnist að okkur sé vegið. Vona bara að þið bjóðið ekki Ingibjörgu S. upp á þann möguleika að fá að verma forsætisráðherra stólinn. En þetta var klókur leikur hjá sjálfstæðinu ef að þið voruð með það í huga að passa það að hún fengi ekki þann stólinn

Bryndís Guðmundsdóttir (Binna), 18.5.2007 kl. 19:38

2 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þó Jón sé fúll, Eyþór minn þá er þetta ekki í höfn, framsókn  bjargar málum ef illa fer. Það er málið.

Eiríkur Harðarson, 18.5.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Jón var lítill fyrir,en er nú agnarsmár í dag.Það eru allir vondir við hann.

Kristján Pétursson, 18.5.2007 kl. 22:42

4 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Ég veit ekki hvort þér er það ljóst Eyþór allavega er það kýrskýrt í mínum huga að menn bregðast misvel við mótlæti, svo ekki sé talað um ef menn verða fyrir höfnun. Mætustu menn og konur með fullt af reynslu og þekkingu missa kúlið og dómgreindin fer. Að halda pókerandlitinu í pólitík er ekki öllum gefið og þegar öllu er á botninn hvolft þá er það kannske bara ofur manneskjulegt að breytast í fúlan á móti á stundum sem þessum. Það er mikið á stjórmálamenn lagt að halda í völd og missa völd. Ég held því að stundum væri ágætt fyrir okkur sem fylgjumst með hildarleiknum úr fjarlægð að gefa stjórmálamönnum og konum færi á því að vera ofurlítið brothættum án þess að dæma hart.  Æðruleysisbænin virkar afar vel, en þó aðallega á mann sjálfan.

Pálmi Gunnarsson, 19.5.2007 kl. 00:00

5 Smámynd: Ólafur Björnsson

Er Geir ekki að leika sama leik með því að draga Jón á asnaeyrunum einn daginn og niðurlægja hann svo þann næsta. Í mínum huga þá voru viðbrögð Jóns ekki verri en ræfilsleikur Geirs. 

Sjálfstæðismenn mega læra það að líta í eigin barm áður en þeir dæma aðra.  

Ólafur Björnsson, 19.5.2007 kl. 01:03

6 Smámynd: Guðjón Sigurðsson

Tek undir þetta hja þer,einn daginn var Geir maðurinn sem Jon treysti 100% nu þegar Geir hættir við skiljanlega þa eru bara vondir menn þarna a ferð. Þetta með bænina þa tek eg undir það að hun er goð fyrir mann sjalfann

Guðjón Sigurðsson, 19.5.2007 kl. 07:58

7 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Er þetta ekki bara dæmigert fyrir Frammarana? Ég er búinn  að eyða svo mörgum setningum hérna sem ég er búinn að skrifa en fæ ekki af mér að birta að það  er bara ekki fyndið. Ef að ég segði minn hug yrði ég líklega tekinn af lífi - á Austurvelli.

Líklega vil ég halda vinnunni því ég starfa í skjóli flokksbræðra Eyþórs. Ég er reyndar afar stoltur af því að vera bloggvinur þinn Eyþór, finnst það frásagnarhæft.

Ingi Geir Hreinsson, 19.5.2007 kl. 10:33

8 Smámynd: TómasHa

Þetta er nú ekki öfundsverð staða sem þú ert í Ingi. 

TómasHa, 19.5.2007 kl. 11:22

9 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Jón Sigurðsson er heiðarlegur maður - vandaður maður, eins og þú segir réttilega. Hann féll í þá gryfju, sem heiðarlegir og bláeygir menn lenda gjarnan í, að treysta fólki helst til vel. Þegar hann sagði að ekki væri neinn trúnaðarbrestur milli hans og Geirs Haarde, þá vissi hann ekki betur. Var í góðri trú, eins og sagt er. Daginn eftir vissi hann betur. Ekki sérlega flókið.

Hlynur Þór Magnússon, 19.5.2007 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband