Argentína?

Eru Argentína og Ísland svipuđ? Lára Hanna segir mikla hćttu á ţví og hefur nokkuđ til síns máls.

Argentína merkir silfur-landiđ enda voru ţađ silfurnámurnar sem Spánverjar ásćldust sem gáfu landinu nafn. Samkvćmt Njall Ferguson var Argentína eitt af tíu ríkustu ríkjum veraldar áriđ 1913. Erlend fjárfesting var á ţeim tíma svipuđ og í Kanada og vöxtur meiri en í Bandaríkjunum og í Ţýskalandi. Harrods verslanirnar voru á ţessum tíma tvćr; önnur í London en hin í Buenos Aires.

Síđan ţá hefur margt fariđ til verri vegar. En hvađ eigum viđ sameiginlegt?

Fyrir ţađ fyrsta ţá var tveggja stafa verđbólga í Argentínu algeng og endađi svo međ óđaverđbólgu undir lok 20. aldar. Á Íslandi hefur verđbólgan veriđ algeng ţó međ ţeirri undantekningu ađ hún var frekar lítil síđasta áratug síđustu aldar. Nú hefur hún komiđ aftur ásamt systur sinni gengisfallinu.

Hitt sem gerđist í Argentínu var ítrekađ greiđslufall erlendra skulda. Ţađ leiddi til einangrunar og hárra vaxta. Hćtta er á slíku hér ekki síst ef íslenska ríkiđ tekur á sig of miklar skuldir (svo sem vegna Icesave).

Eina af ástćđunum fyrir hruninu má rekja til ţess ađ stjórnmálamenn í Argentínu freistuđust til ađ "leysa málin" međ meiri útgjöldum en tekjur voru til. Halli sem á mannamáli er ekkert annađ en botnlaus taprekstur endađi međ gengisfellingum, verđbólgu og greiđslufalli. Sennilegast er stćrsta hćttan á Íslandi einmitt fólgin í ţví ađ ríkiđ eyđi langt um efni fram međ tilheyrandi afleiđingum. Ţótt margt megi misjafnt segja um AGS ţá leggja ţeir áherslu á ađ fjárlög verđi rekin hallalaus til lengri tíma. Sagan hefur sýnt okkur ađ botnlaus hallarekstur ríkis verđur á endanum aldrei leystur međ skattheimtu en leiđir hratt til hárra vaxta og frekara hruns.

Eitt sláandi dćmi er varđandi erlenda krónu eigendur sem hafa veriđ ađ fara úr "jöklabréfum" og yfir í ríkisskuldabréf. Ríkiđ fjármagnar sig sem sagt hjá erlendum ađilum í krónum. Ţegar gjaldeyrishöftunum verđur aflétt er hćtta á ađ erlendir eigendur ríkisskuldabréfa vilji fara út. Ţá selja ţeir ríkisskuldabréfin međ einhverjum afföllum og ţá getur ţađ leitt til lćkkunar krónu og ríkisskuldabréfa. Vandinn viđ jöklabréfin verđur ţá orđinn tvöfaldur.

Vonandi lćra menn af reynslu Argentínu og varast vítin. Ekkert bendir ţó til ţess ađ viđ séum međ skýra stefnu í ađ ná endum saman. Allt kapp ríkisstjórnarinnar er á ađ ganga í ESB og auka skuldir ríkisins. Á endanum ţarf ađ borga ţessar nýju skuldir međ einum eđa öđrum hćtti.

ESB umsóknin hefur ekki breytt miklu og afar ólíklegt verđur ađ teljast ađ Ísland geti gengiđ í ESB og eru fyrir ţví margar ástćđur. Hćttan viđ ESB áhersluna er ađ menn gleymi ađalatriđunum í ţeirri von ađ ESB bjargi Íslandi međ einhverjum hćtti. Ađalatriđiđ er ađ auka gjaldeyris- og verđmćtasköpun og minnka sóun. Hér eigum viđ silfur hafsins og auđlindir sem ţarf ađ nýta, vernda og verja. 
-  Annars er mikil hćtta á krónískri kreppu međ argentínskum tangó.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Steinn Sigurđsson

Góđ grein hjá ţér Eyţór, já ţađ er rétt sem ţú segir ástand Argentínu er víti til varnađar mađur vonar bara ađ ráđamönnum beri gćfa til ađ leysa úr málum ţannig ađ ţađ fari ekki eins fyrir okkar ţjóđ, ţó fátt virđist benda til ţess eins og málum er háttađ.

Heldur veđur Ríkisstjórnin í villu og svima og fátt eitt kemst ađ nema ESB sem ađ allavega leysir ekki vanda okkar ţessi misserin.

Góđar stundir.

Pétur Steinn Sigurđsson, 8.8.2009 kl. 14:37

2 Smámynd: Sigurjón

Já, góđ grein.  Ţađ ber ađ varast vítin...

Sigurjón, 8.8.2009 kl. 18:09

3 Smámynd: Björn Birgisson

Athyglisverđur pistill. Takk fyrir.

Björn Birgisson, 8.8.2009 kl. 18:33

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Góđir puntar hjá ţér Eyjólfur!

Hćttan viđ ESB áhersluna er ađ menn gleymi ađalatriđunum í ţeirri von ađ ESB bjargi Íslandi međ einhverjum hćtti

Tilhvera eiga Međlimaríki EU í innri samkeppi ađ borga skuldir Íslands ţegar ţćr skila hámarks ávöxtum í vasa ţeirra?

Samkeppni grunnur EU byggir á hráefnum og 1.stigs úrvinnslu ţeirra, hvers verđ eru lámörkuđ og háđ verđlaginu undir eftirliti og í samráđi viđ Umbođiđ [Commision sem lćtur framkvćma m.a.] .

Allir međlimir EU eiga ađ vera jafnir hvađ grunninn varđar sem lýtur ekki lögumálum markađarins innan EU. Međ skírskotun til laga EU sem byggja á milliríkja samningum undirrituđum ađ Međlima ríkjunum.

Júlíus Björnsson, 8.8.2009 kl. 18:44

5 Smámynd: Guđbjörg  Hrafnsdóttir

Argentína varđ fyrir Illuminati- economic- hitman- samsćri međ ađstođ heimamanna.

Ćtli eithvađ sviđađ komi upp úr kanínuhattinum hér!

http://www.economichitman.com/

http://members.iimetro.com.au/~hubbca/eu_exposed.htm

Guđbjörg Hrafnsdóttir, 8.8.2009 kl. 22:03

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Góđir puntar hjá ţér Eyţór!

Júlíus Björnsson, 9.8.2009 kl. 03:09

7 Smámynd: Haraldur Baldursson

Fullt tilefni er til ađ lćra af misbresti annarra landa í ađ synda út úr efnahgsvanda. Fram komu skemmtilega greinar á eyjunni fyrir helgi, ţar sterk rök voru leidd ađ ţví ađ risa-lánin, sem ekki á ađ nota, séu alls ekki jafn brýn og af er látiđ. Fólk spyr ţá og hvađ á ţá ađ gera ? Ég reyni ađ svar ţví í pistli hér :
http://haddi9001.blog.is/blog/haddi9001/entry/927466/

Eyja greinarnar eru hér (Ţórlindur Kjartansson+Jón Steinsson) :
http://eyjan.is/blog/2009/08/07/jon-steinsson-hagfraedingur-allt-of-mikid-gert-ur-mikilvaegi-erlendu-lananna/
Jón Daníelsson tekur síđan undir ţau sjónarmiđ í Vísi :
http://www.visir.is/article/20090808/FRETTIR01/296838643/-1

Haraldur Baldursson, 9.8.2009 kl. 11:29

8 Smámynd: Eiríkur Sjóberg

Eyţór,

Athyglisvert innlegg hjá ţér.

Eiríkur Sjóberg, 10.8.2009 kl. 10:42

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband