Sinn er siður í landi hverju

Síðustu daga hafa ýmsir stjórnmálamenn faðmast á Íslandi. Ekki síst þeir sem koma úr sömu flokkum, en þó eru dæmi um að Sjálfstæðismenn hafi faðmað Samfylkingarfólk. Og jafnvel smellt kossi á kinn eins og dæmin sanna.

Þetta þætti vart sæmandi í Pakistan ef marka má frétt af visir.is en þar faðmaði ráðherra leiðbeinanda sinn kappklædd og með fallhlíf.

Faðmlagið kostaði ráðherradóminn.

"Ráðherra ferðamála í Pakistan tilkynnti í dag um afsögn sína vegna faðmlags. Ráðherrann, Nilofar Bakhtiar, tók þátt í söfnun til handa fórnarlömbum jarðskjálftans sem skók landið fyrir tveimur árum síðan. Til þess að safna áheitum fór hún í fallhlífastökk og eftir að hafa lent heilu og höldnu faðmaði hún leiðbeinanda sinn.

Þetta olli mikilli reiði á meðal klerka í höfuðborginni Islamabad sem sökuðu ráðherrann um að vera í óviðurkvæmilegum stellingum og fyrir að brjóta íslamskar hefðir...."

Mynd af faðmlaginu sem kostaði stólinn:

faðmlag pakistan

Kannski hefur ferðamálaráðherrann ferðast "of mikið" til frjálslyndra ríkja?

Hér er svo mynd af íslenskum stjórnmálaleiðtogum sem standa í stjórnarmyndunarviðræðum:

geir og ingibjörg

Það er gott að búa á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

Mér fannst ágætt hjá Geir að smella einum koss á Sollu.Þetta var góð vísbending um gang viðræðnanna.Ég efast ekki um það,að þau gangi heil til þessarar tilraunar til stjórnamyndunar

Kristján Pétursson, 21.5.2007 kl. 23:02

2 Smámynd: Sigurjón

Það er gott að búa á Íslandi.  Skál!

Sigurjón, 22.5.2007 kl. 01:16

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

  Það er ekki mikið varið í að kyssa einu sinni, - en tvisvar, það er annað mál.

Þorkell Sigurjónsson, 22.5.2007 kl. 07:06

4 Smámynd: Svanur Guðmundsson

mér sýndist þetta vera Steingrímur joð. að faðma samfesting.

En auðvitað fer Geir í skrúfusleik við fallegustu konuna af balinu.

Svanur Guðmundsson, 22.5.2007 kl. 08:56

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Var þetta ekki bara koss á munn/en svona á að koma fram,allir eiga ser betri mann og konur og hafi eitthvað bjátað á aður er það gleimt!!!!!/Kveðja Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 22.5.2007 kl. 11:20

6 Smámynd: halkatla

vá hot mynd!!! íslendingar er svo fallegir að það er erfitt að hemja sig í návist þeirra!

halkatla, 22.5.2007 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband