RES hf.

Heyrði þessa sögu í dag:

"Ef hluthafafundur REI stendur óhaggaður og nýi meirihlutinn telur sig bundinn af honum er bara eitt ráð; að stofna Reykjavik Energy Services. Segja upp öllum sérfræðingum OR og ráða þá til RES hf. Þar með væri samningur REI við OR rammi utan um tóma mynd. Eftir stæðu svo auðlindirnar og lagnirnar í OR"

Þetta var reyndar sagt í gríni (no pun intended) en samt er rétt að muna hvernig opinberar stofnanir (og valdamiklar nefndir) hafa verið lagðar niður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það virðast sífellt fleiri komast á þá skoðun að Villi hafi verið blekktur við þetta samningaferli og hafi orðið fórnarlamb viðskiptarefa. Það er þá spurning hvort beita eigi gagnkvæmum refshætti til að leiðrétta þetta ólánsmál ef ekki fæst bakkað út úr þessari vitleysu með góðu.

Haukur Nikulásson, 22.10.2007 kl. 17:30

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Þegar öllu er á botninn hvolt þá er þessi "saga ekki svo galin"

Einnig er mikið til í því sem Haukur segir

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 22.10.2007 kl. 22:15

3 Smámynd: Óttarr Makuch

Þetta er ekki bara góð saga heldur ágætis hugmynd.

Óttarr Makuch, 22.10.2007 kl. 23:26

4 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Villi var ekkert blekktur.  Hann var hafður með í ráðum frá upphafi.  Virðist hins vegar skorta bæði sjón og heyrn, hvað þá enskukunnáttu og því er kannski bara eins gott að hann sé ekki lengur borgarstjóri.  Ágætiskarl og besta skinn en virðist hafa verið gjörsamlega óhæfur í starfi borgarstjóra.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 23.10.2007 kl. 12:31

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Kvitt góð hugmynd/Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 23.10.2007 kl. 16:33

6 Smámynd: Björn Heiðdal

Villi viðutan er betri golfari en borgarstjóri.  

Björn Heiðdal, 23.10.2007 kl. 21:21

7 Smámynd: Auðbergur Daníel Gíslason

Helvíti er Villhjálmur þá góður í golfi!

Auðbergur Daníel Gíslason, 23.10.2007 kl. 21:47

8 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Það er sagt að flugslys verði oft vegna röð rangra ákvarðana. Það kemur eitthvað óvenjulegt og þá hefst atburðarrásin. Það rétta er að hugsa málið upp á nýtt. Ólöglegir samningar eru ógildanlegir eða jafnvel ógildir. Höfðu þeir sem sömdu umboð. Vogu brotin lög. Umboðsmaður spyr ýmissa spurninga. Hann gerir það ekki af ástæðulausu. Þegar við höfum svarað við því gæti verið að við gætum byrjað upp á nýtt og fundið leið til þess að koma hugviti orkuveitunnar í verð án þess að almenningi finnist sér misboðið.

Jón Sigurgeirsson , 24.10.2007 kl. 01:08

9 Smámynd: Auðbergur Daníel Gíslason

Þessi atburðarrás var ekki eins og Vilhjálmur vildi hafa hana svo að það sé alveg á hreinu. Hann játaði að hafa gert mistök og sér eftir því. Vilhjálmur hafði umboð borgarbúa til að skrifa undir þetta, en það hafði Björn Ingi svo sannarlega ekki með lítið fylgi á bakvið sig. Ég verð að segja að mér þótti mikið koma til drenglyndis Sjálfstæðismanna að skipta 35:65 á milli sín þegar að meirihlutinn var 1:7 og mér þótti ótrúlegt að Björn skyldi sína Sjálfstæðismönnum í borgarstjórninni svona mikla óvirðingu með að stinga rýtingi í bak þeirra. Hann er spilltasti stjórnmálamaður Íslands og ég vona svo sannarlega að þessi maður komist aldrei á þing. Eyþór ætti hins vegar að fara á þing enda maður sem kemur hreint fram.

Björn Ingi er ekkert annað en hreinn og beinn spillIngi.

Það er gott að það er til nóg af góðu fólki í Sjálfstæðisflokknum okkar sem hefur svo sannarlega staðið sig vel enda stærsti stjórnmálaflokkur Íslands með um 30.000 skráða meðlimi.

Auðbergur Daníel Gíslason

14 ára Sjálfstæðismaður

Auðbergur Daníel Gíslason, 24.10.2007 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband