Evrópa vaknar

Alain Lipietz og Eva Joly voru með sterka og skýra framsetningu vegna Icesave. Þeim finnst augljóst að ríkið eigi ekki að axla byrðarnar og reyndar sagði Alain að Bretar og Hollendingar bæru í raun meiri lagalega ábyrgð á reikningunum en Ísland.

Þetta framlag er hluti af mikilli bylgju vakningar í Evrópu um raunverulega stöðu Íslands. Það er með ólíkindum að það hafi ekki gerst fyrr en nú árið 2010 löngu eftir hrun.

Ögmundur og Ólafur Ragnar eiga hrós skilið fyrir sitt framlag í því að knýja umræðuna fram.

Ég trúi ekki öðru en Íslendingar standi nú saman og svo verði fenginn sáttasemjari til að leysa þetta á sanngjörnum nótum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég benti á það á sínum tíma að Íslenska túlkunin á franska textanum væri bandvitlaus.

Frakkar og þjóðverjar gefa ekki út  leiðbeiningar [kallast á lagamáli Tilskipanir] til þess að þær misskiljist. Laga enska er hinsvegar ekki öllum gefin, sem hafa ekki heldri manna undirbúning.

Hinsvegar er hægt að kaupa mat hjá lögfræðingi  til að komast hjá að stefna Bretum t.d. gegn tryggingu að mat verði aldrei sannað rangt.

Insularity er gefa sér það að lagagrunnur stofnannasamfélaga geti verið dregin í efa. Til dæmis er ekki gert ráð fyrir að stofninn bregðist eða hrynji fyrir lögunum sem á honum byggja. 

Hræðsla við City Breta gæti skýrt það.

Júlíus Björnsson, 11.1.2010 kl. 03:48

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég óska þess innilega að þetta sé eins og þau segja. En ég er fullur efasemda, þó það hentaði geði mínu núna að gleypa við öllu sem hljómar vel án þess að vita hvað ég er að gleypa. Það er ástæða til að fara varlega í fagnaðarlátum sem hugsanlega gæti reynst tálsýn ein.

Finnur Bárðarson, 11.1.2010 kl. 17:17

3 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Enga samninga fyrr en þjóðin hefur sameinast um að fella Icesave og styrkir þannig stöðu sína gagnvart nýlenduveldunum.

ÁFRAM ÍSLAND, EKKERT Icesave, Við segjum NEI !

Ísleifur Gíslason, 12.1.2010 kl. 00:53

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ef við hefjum gagnsókn vegna þess að Bretar mismunuðu samkeppni aðilum á heimamarkaði um allavega, nema að þeir sanni annað, eftirlit sem hefði getað komið t.d. í veg fyrir þensluna frá 2005.  Vörn hér gæti byggst á því að alt hefði verið í lagi með höfuðstöðvarnar á Íslandi hvað varðaði Íslandsmarkað og lánstraust í formi krónubréfa frá Deutche Bank hefðu verið bestu hugsanlegu meðmæli um góða og trausta banka starfsemi.

Allir verða að sætta sama eftirliti og gildir á sérhverjum markaði, gestir eiga ekki að fá sérmeðferð. Heldur ekki þegar heima bönkum er rétt hjálparhönd í aðstæðum sem ganga jafnt yfir alla.

Þá eiga gestir enga möguleika gegn heimamönnun í framtíðinni. Þegar neytendur gera sér grein fyrir að heimabankar eru öruggari. Eftirlit gerir banka traustan. 

Júlíus Björnsson, 12.1.2010 kl. 03:34

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 12.1.2010 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband