Slæm könnun - spyrjum að leikslokum

Könnun Stöðvar 2 í Suðurkjördæmi sýnir verri stöðu Sjálfstæðisflokks en Gallup. Þótt vikmörk séu talsverð, er rétt að taka þessa könnun alvarlega. Nú þegar mánuður er til kosninga má búast við því að buddan og heimilsreksturinn verði ofar á dagskránni. Vinstri grænir fá mjög góðan byr miðað við þessa könnun. Umræðan fyrir alþingiskosningarnar 2007 hefur hingað til snúist mest um umhverfismál. Það hefur haft áhrif á áherslur allra framboða, en nú kann að verða breytt um takt.

Ríkisstjórnin hefur gert margt vel og er skemmst að minnast lækkun matarskattsins sem kemur heimilunum vel. Þá liggur nú fyrir frá því í dag ákvörðun um útboð tvöfaldun Suðurlandsvegar. Því ber að fagna. En betur má alltaf gera og þá er spurningin: Hverjum treystum við best til þess? Vilja kjósendur fá sósíalista við stjórnvölinn? Vilja þeir ganga í ESB? Ég trúi því ekki að þessar tölur verði þær sem við sjáum að kvöldi dags 12. maí. Ég trúi því ekki að aðeins 30,4% kjósenda kjósi Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi. Þó hann verði aftur stærsti flokkurinn í kjördæminu á hann að vera 40%+ flokkur eins og í sveitarstjórn. Svarhlutfall er ekki hátt, en engu að síður er úrtakið stórt.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst á morgun. Þá hefst sókn Sjálfstæðisflokksins og verður spennandi að heyra ræðu formanns flokksins Geirs H. Haarde. Það verður fróðlegt að bera saman landsfundina tvo og merkja viðbrögð í kjölfar þeirra. Eitt er víst: Því fleiri sem umræðuþættirnir verða, þess skýrari verða kostirnir og gallarnir. Stjórnarandstaðan er sammála um fegurð náttúrunnar. Það erum við flest - sem betur fer. En þegar kemur að málum eins og efnahagsmálum og utanríkispólítík flækist málið og hver höndin er upp á móti annari. Þetta kom vel í ljós í Kastljósinu í gær og svo á Stöð 2 í kvöld, en báðir þættir voru sýndir beint frá Selfossi. Egill Helgason var að ota "nýju" stjórnarmynstri að stjórnarandstöðu og Framsókn: VBS og nefndi ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar sem dæmi. Sjálfsagt væri slík ríkisstjórn heppileg fyrir þáttastjórnendur, en vill þjóðin þetta? Það efast ég um. 

En þessi könnun er góð aðvörun.   


mbl.is Stóraukið fylgi VG í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þú segir að nú megi búast við því að buddan og heimilsreksturinn verði ofar á dagskránni, en umhverfismálin.

Ertu að segja að þið Sjálfstæðismenn ætlið að halda áfram gegndarlausri áherslu ykkar á hagvöxt á kostnað umhverfisins, eins og þið hafið gert hingað til?

Theódór Norðkvist, 12.4.2007 kl. 09:50

2 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Það voru svolítið áhugaverðar sveiflur á milli þessara kannana Gallpups og Félagsvísindastofnunar. Mest sveiflan hjá Sf. og VG þar sem Sf. fer mikið upp en VG mikið niður.

Ragnar Bjarnason, 12.4.2007 kl. 10:28

3 identicon

Er þetta bara eðlilegt , þið eruð menn slakan mann í fyrsta sæti ,sem þorði ekki að taka slaginn í sínu kjördæmi og hrökklaðist yfir í suðurkjördæmið . Svo er maðurinn i öðru sæti mjög svo umdeildur.   Því fer fjarri að almenningur telji að hann hafi fengið eða tekið út nægilega refsingu. það er því furðulegt að hann skuli hafa náð svona hátt í prófkjörinu. Segir það eitthvað um flokkinn í kjördæminu?? Fylgið á eingöngu eftir að síga þegar nær dregur að kosningum og kastljósinu beint meira að Árna. Það er ekki hægt að fela hann endalaust.

Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 11:11

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Flottur pistill Eyþór. Mér finnst nú þesar skoðanakannir voðalega lítið koma á óvart, styrkist bara það útlit sem hefur verið hefur undanfarnar vikur.

Sigfús Sigurþórsson., 12.4.2007 kl. 11:31

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Græt ekki fylgi grænna af skiljanlegum ástæðum.  Mér hefur þótt hin pólitíska umræða fram að þessu verið nokkuð einsleit.  Ekki að umræður um umhversis- og innflytjendamál séu ekki nauðsynlegar.  Frjálslyndi flokkurinn fær bara alltof mikla athygli út á innflytjendamálin.  Ekkert var tam rætt um Írak á Kastljóssfundinum í fyrradag né önnur utanríkismál.

Reikna eins og þú með að þetta fari að breytast.  Takk fyrir pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.4.2007 kl. 12:28

6 Smámynd: Jóhann H.

Ef Sunnlendingar ætla að passa budduna þá hljóta þeir að verða að kjósa eitthvað annað en Árna Johnsen og okurhagkerfi Sjáftæðisflokksins...

Jóhann H., 12.4.2007 kl. 12:56

7 Smámynd: Ólafur Als

Hagkerfi hagsældar og uppbyggingar í stað fjallagrasahagfræði, það er spurning morgundagsins. Skynsamleg nýting auðlinda, til lands og sjávar, með sjálfbærni og hag landsmanna að leiðarljósi er að veði. Kjósum allt, ALLT, annað en vöggustofusósíalisma Vg.

Ólafur Als, 12.4.2007 kl. 13:16

8 Smámynd: Stefán Sig.Stef

Guð almáttugur forði landsmönnum öllum frá því að hér starfi vinstri stjórn eftir kostningarnar,sú stjórnarómynd mundi setja allt á höfuðið á 1-2 árum og þá tækju þau til fótanna og kenndu einhverjum öðrum um.

Stefán Sig.Stef, 12.4.2007 kl. 15:21

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sósíalismi er að vísu skammaryrði í dag. Engir fordæma hann meira en þið sjálfstæðismenn svokallaðir. Sá sósíalismi sem við Íslendingar þekkjum best er sá sósíalismi sem þið hafið innleitt og gert að átrúnaði. Það er sá sósíalismi sem birtist í því að leysa atvinnumál með því að stjórnvöld ákveði hvaða vinna sé í boði og nú eru það álver. "Frelsi einstaklingsins til athafna" þessi trúarjátning ykkar er enn í gildi í flokknum þó ekkert íslenskt stjórmnálaafl hafi sýnt henni meiri fyrilitningu en þið. Þið tókuð atvinnuréttindin, sjálfsvirðinguna og jafnframt að nokkru verðmæti fasteigna fólksins í dreifðu sjávarbyggðunum eignarnámi og færðuð þetta vinum ykkar að gjöf. Frelsi einstaklingsins er í ykkar augum frelsi til að vera ánauðugur þræll spákaupmanna sem skipta með sér auðlindum þjóðarinnar eins og matadorpeningum. Fáið þið sjálfstæðismenn aldrei andstyggð á ykkur sjálfum. Þá andstyggð sem nú hreiðrar um sig í hugum kjósenda á Suðurlandi og breiðist vonandi hratt út?

En ég gæti alveg hugsað mér að búa ykkur trúboðum frjálshyggjunnar það frelsi sem það praktiska fyrirbæri hefur innleitt í dreifðar byggðir þessa lands. 

Árni Gunnarsson, 12.4.2007 kl. 16:34

10 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Góðir punktar hjá þér Árni.

Tómas Þóroddsson, 12.4.2007 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband