Vinstri lausnir; "sérinnpakkað og sérunnið lambakjöt"

Það er virkilega hollt og gott og skemmtilegt að lesa pistla Guðmundar Magnússonar sagnfræðings. Hann fer hreinlega á kostum þar sem hann rifjar upp bakkabræðrasögur af vinstri mönnum. Það er nú svo að fólk er fljótt að gleyma og því er ekki verra að hafa góða sagnfræðinga til að rifja upp söguna.

Myndirnar segja líka mikið. Hér er ein sem ég sá á bloggsíðu Guðmundar og ég vona að hann fyrirgefi mér endurbirtinguna. Hér eru þeir Steingrímur J. þá landbúnaðarráðherra, Jón Sigurðsson núverandi ráðgjafi Samfylkingarinnar í hagstjórn og Ólafur Ragnar Grímsson nú forseti að kynna kjöttilboð vinstri stjórnarinnar. Þetta átti að vera sérpakkað og sérunnið lambakjöt á tilboðsverði eins og það var orðað sem átti að friða almenning. Þetta var hagstjórnaraðgerð gegn verðbólgu!

Þvílíkt miðaldamyrkur. Nú eru sömu menn og þá sátu í ríkisstjórn að boða fagnaðarerindið á ný. Sjálfsagt sérpakkað og sérunnið ofan í kjósendur.

 kjötkaupmenn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Bráðfyndið! Flott barn síns tíma.

Axarsköft eru á alla kanta og nauðsynlegt að benda á frá fleiri hliðum til að gæta hlutleysis. Myndin minnir mig nefnilega á mynd af Birni Bjarnasyni, þar sem hann stendur yfir einhverju byssusafni. Og glottir. Það eru nefnilega ekkert minni axarsköftin þó sumir séu í eigin flokki. Önnur mynd er forsíða MBL að því mig minnir í Janúar 2004, þar sem lýst er yfir að Íslendingar hafi fundið efnavopn í Írak. Ráðherra bregst við eins og lottóvinnningshafi.
Svo þetta er á alla kanta og um að gera að rifja upp kjánaskap. Svo getum við flokkað undir hvort miklu máli skipti eða ekki og tekið hátíðlega því sem þarf að taka með alvöru.

Kveðja frá Ameríku

Ólafur Þórðarson, 23.4.2007 kl. 22:12

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Nema þetta séu vaacum-pakkaðir framsóknarmenn! Tilbúnir í stjórnarsamstarf!

Auðun Gíslason, 23.4.2007 kl. 22:57

3 Smámynd: Hlynur Hallsson

Þetta snýst meira um umbúðirnar núna. Sjálfstæðisflokkurinn kominn innpakkaður í glansandi gjafapappír lofandi öllu fögru sem þeir gleymdu að gera fyrir aldraða, láglaunafólk, barnafjölskyldur.... og alla nema hátekjumenn, síðustu 16 árin :) Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 23.4.2007 kl. 23:08

4 Smámynd: Sigurður Karl Lúðvíksson

BWWHAHAHA þessir vinstrimenn, alveg til fyrirmyndar. Kostulegur hópur þarna að bogra yfir landspólitíkinni. Ætli þeir séu búnir að þvo blóðið af höndunum sínum eftir óstjórnina.

Sigurður Karl Lúðvíksson, 23.4.2007 kl. 23:35

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ótrúlega skondið.   baráttukveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 24.4.2007 kl. 00:28

6 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Já það var alveg kostulegt þegar ráðherrar sjálfstæðisflokks fögnuðu því að íslendingar hefðu fundið efnavopn. Hvað var þetta aftur sem þeir fundu?

Tómas Þóroddsson, 24.4.2007 kl. 01:12

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Nokkuð skondið Eyþór.

Auðvitað sjálfsagt að hafa vit fyrir almenningi hvernig kjötið skyldi vera he he...

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.4.2007 kl. 01:13

8 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Annars er góð þessi mynd af forseta Íslendinga hr Ólafi Ragnari Grímssyni, hann var alltaf svo skemmtilegur og er reyndar ennþá. Alveg ótrúlega klár maður.

Tómas Þóroddsson, 24.4.2007 kl. 01:15

9 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Þetta virðist virka enþá eins og hægt er að sjá hér að ofann...

Hlynur Jón Michelsen, 24.4.2007 kl. 09:39

10 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Ja há! Tómas það vantar bara á myndina vinstrimanninn

Steingrím Hermannsson sem ráðlagði landsmönnum að

elda grjónavelling ef ekki væri ráð á því að kaupa kjöt,

það skeði í denn, þegar hann var búinn að setja verð-

bólguna í þriggja stafa tölu, með ríkisstjórn sem átti að

kljúfa íhaldið í eitt skipti fyrir allt.

Ó.R.G. er jú klár og skemmtilegur, sérlega þegar hinn

gamli öreigabaráttumaður hraðar sér heim frá skíða-

paradís heimsmillana til að stöðva skítlegt eðli.

Leifur Þorsteinsson, 24.4.2007 kl. 09:50

11 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Alltaf áhugaverð umræðan um landbúnaðinn. Fyrir ekki margt löngu heyrði ég tillögu frá vini mínum heiðbláum um það hvernig mætti redda rolluveseninu. Hún fólst í því að sleppa skjátunum lausum og selja svo veiðileyfi á herlegheitin. Skotglaðir auðmenn frá USA og öðrum byssuhreiðrum heimsins myndu flykkjast til landsins og kaupa sér rándýrt veiðileyfi með tilheyrandi þjónustu á íslensku kindina, láta mynda sig með hana á húddinu á Rovernum, síðan yrði Surtla gamla stoppuð upp og henni komið fyrir inní stofu. Milla fyrir rollu lágmark. Það gleddi trúlega millanna sem eru í þessum töluðu orðum að kaupa upp landið.

Pálmi Gunnarsson, 24.4.2007 kl. 10:00

12 Smámynd: Tryggvi H.

og ekki má gleyma minkabúunum, búbót í boði ríkisins

Tryggvi H., 24.4.2007 kl. 12:13

13 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Erlingur -stórgóður punktur. Málið er nefnilega að ríkisspenarnir eru margir og mikið kappsmál að komast á einn slíkann eða fleiri. Þarna er mikil spilling, áður hét það Sambandið, ... guess what?

Ólafur Þórðarson, 24.4.2007 kl. 18:50

14 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Ja há Vefari er sennilega svo ungur að hann (hún) man ekki eftir,

þegar Englendigar settu á innflutningsbann á íslenskan fisk og

Rússa markaðurinn opnaðis skyndilega, þá hættu allir vinstri

menn að tala um heildsala stéttina en heilsalar og heildsala

maffían, voru mest prentuðu orð í Þjóðviljnum, því nú fengu allir

kommarnir Rúsnesk umboð.

Leifur Þorsteinsson, 28.4.2007 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband