Fagra Ísland

Í dag var mikið um að vera í Árborg í kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningar. Frambjóðendur og sveitarstjórnarfólk heimsóttu fyrirtæki og stofnanir. Ég fór með Árna Mathiesen, Björk Guðjónsdóttur, Unni Brá og Kjartani Ólafssyni á Heilbrigðisstofnun Suðurlands en þar er nú að rísa mikilvæg viðbygging sem brýnt er að komist í rekstur sem fyrst.

Síðdegis skrifuðu menntamála- og fjármálaráðherrar undir menningarsamning við Suðurland. Staðurinn var vel við hæfi; Húsið á Eyrarbakka. Þessi samningur ætti að verða lyftistöng fyrir menningarlíf á Suðurlandi og er útlit fyrir að fjármagnið nýtist vel og milliliðalítið.

Um kvöldið var opinn fundur með forystumönnum Sjálfstæðisflokksins á hótel Selfossi. Þar voru ýmsar spurningar, en merkilegast fannst mér að heyra í manni sem hefur búið í 60 ár erlendis. Hann stóð upp til að þakka forsætisráðherra fyrir hvað landinu væri vel stjórnað. Hann sæi ótrúlegan mun á hag landsmanna, aðbúnaði og svo færi allt hér svo fagurt og hreint.
Þarna stóð upp maður ættaður af Suðurlandi sem búið hefur í Noregi og Danmörku. Hann er fluttur heim og sér fagra Ísland. Glöggt er gests augað og heimkominn sér hann hlutina skýrt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hvet alla eindregið til að lesa þetta blogg þar sem virkni heilbrigðiskerfisins gagnvart veikum þegnum þessa lands kemur skýrt fram. Allar tölur og fagurgalar hafa ekkert að segja í raunveruleikann sem blasir við venjulegu g'fólki sem hefur ekki efni á að halda sér á lífi vegna lyfjakostnaðar og fáránlegs kerfis..Er þetta sem þið eruð svona stolt og hreykin af??? Maður spyr sig...í hvers konar sýndarveruleika lifir svona fólk eins og sumir stjórnmálamenn og konur.

www.gjonsson.blog.is

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 07:36

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Gaman væri að fá álit frambjóðandans sem hér bloggar á þessu heilbrigðismáli!  Snjallast væri að hann sæi sér fært að gefa komment á bloggi Guðmundar svo fólk fái lesið hver hans skpðun á þessu sé. Bara svona af því að það eru að koma kosningar og heilbrigðismálin hafa einhvernveginn orðið svolítið útundan í umræðunni.Þarna gefst gott færi á að útskýra og skoða..ekki satt?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband