Gamla krónan í fullu verđgildi?

Ţađ var löngum lenska á Íslandi ađ krónan félli á ári hverju. Gengisfellingar einkenndu peningastjórnina enda fór svo ađ krónunni var kastađ og svokölluđ "nýkróna" tekin upp sem var 1/100 af ţeirri gömlu. Í ţá gömlu daga ţegar mynt var notuđ í fleira en stöđumćla var svo álkrónan tekin upp og var eftir ţví tekiđ ađ hún flaut á vatni. Ţađ ţótti ekki traust, enda voru gjaldmiđlar lengi vel tengdir viđ silfur og gullfćtur eins og gulldalurinn og pundiđ sem kennt var viđ Sterling.

Nú ber svo viđ ađ krónan flýtur á ný ţó ţađ sé ekki á vatni. Frjálst flotgengi krónunnar hefur veriđ í nokkur ár og ţrátt fyrir andstreymi hefur krónan sjaldnast veriđ eins "sterk". Ţađ er ađ segja gengi hennar er hátt og gengisvísitalan í 112 sem er međ lćgsta móti. Háir stýrivextir halda krónunni "á floti" og ţá er stóra spurningin hvađ gerist ţegar vextir lćkka.

Ţađ sem vekur síđan athygli manna er ađ á sama tíma og krónan styrkist hafa margar neysluvörur hćkkađ. Ţegar tímarnir voru ađrir og gengislćkkun var landlćg var talađ um ađ vara vćri á "gamla verđinu" og ţví ódýrari. Nú ber svo viđ ađ verđ á innfluttum vörum lćkkar ekki í takt viđ gengi eins og dćmin sanna á samanburđi á neysluvísitöluni annars vegar og gengisvísitölunni hins vegar.

Er kannski erfiđara ađ lćkka vörur en ađ hćkka?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Jökulsson

Ţađ fer svo fyrir brjóstiđ á söluađilum ađ lćkka vöruverđ, ţađ ţýđir minni peningur í vasann.. jafnvel ţó ţeir fá sama peninginn í vasann ţótt ţeir lćkki verđiđ. 

Sigurđur Jökulsson, 29.5.2007 kl. 18:49

2 Smámynd: Sigurjón

Ţetta eru allt meira og minna krimmar!

Sigurjón, 30.5.2007 kl. 00:38

3 Smámynd: Helga Guđrún Eiríksdóttir

Ţađ er fullkomlega viđ hćfi ađ gengisvísitalan sé sú sama og Neyđarnúmeriđ í landinu. Verđlag á vöru og ţjónustu er orđiđ ţannig ađ mađur furđar sig stundum á ađ ţarna skuli ennţá hafast viđ fólk.

Helga Guđrún Eiríksdóttir, 5.6.2007 kl. 02:50

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband