Til hamingju Sunnlendingar - til hamingjar Íslendingar

Landþráðu marki er náð. Þetta er stærsta framfaraspor á Suðurlandi í marga áratugi. Allir þeir sem hafa komið að þessu verki eiga miklar þakkir skyldar.
mbl.is Tvöföldun hefst 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ekki fagna strax minn kæri.

Möllerinn er að tala um stutta spotta, svo ekki þurfi að fara í umhverfismat.

Býst við, að þeri spottar verði skop-stuttir.

ÞEtta er gert til að koma Vaðlaheiðarvitleysunni í gegn án þess að krafist verði veggjalda.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 13.3.2008 kl. 12:00

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

hlustaðu á fréttirnar á Bylgjunni!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Bjarni Kjartansson, 13.3.2008 kl. 12:01

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hrokafullt innlegg... landsbyggðin er ekki afgangur höfuðborgaríhald

Jón Ingi Cæsarsson, 13.3.2008 kl. 12:49

4 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Jón, ég hef reynt að segja það í innleggjum mínum, að EÐLILEGAR framkvæmdir á landsbyggðinni séu í forgangai, tenging byggða svosem milli svæða á Vestfjarðakjálkanum, færsla vega niður að sjóvarmáli, þar sem ekki er nægur mokstur

Einnig að tengja beri byggðir á Austfjörðum sem best en Vaðlaheiaðgöng eru EKKI ein af slíkum framkvæmdum öðru nær.

Allt í fína að ábyrgjast lán fyrir einkaaðila til að bora þetta og rukka fyrir umferðina líkt og gert er í Hvalfjarðargöngum en þetta er OF mikið að kyngja

Bjarni Kjartansson, 13.3.2008 kl. 13:33

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Vissulega eiga þeir miklar þakkir SKILIÐ

Heimir Lárusson Fjeldsted, 13.3.2008 kl. 14:51

6 Smámynd: Elías Theódórsson

Skilja eftir spottan frá Bláfjalla afleggjara til Kaffistofu. Það er versti spottinn og flestar útafkeyrslurnar.

Elías Theódórsson, 13.3.2008 kl. 20:49

7 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ef þetta er ekki refskák,hvernig er hún þá????Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 14.3.2008 kl. 00:06

8 Smámynd: Íris Mjöll  Valdimarsdóttir

Í fávisku minni hélt ég að það væri löngu búið að réttlæta breikkun vegarins. Margir hafa dáið þarna á þessum vegi. Ég tel að nú sé tímabært að hætta að tala og fara að vinna þetta af einhverri alvöru !!!

Breikkun á svona vegi kostar offjár eins og allir vita en spurning er hreinlega hversu dýrara það yrði að bora göng undir heiðina. Hefur enginn skoðað það af alvöru ? Ég veit að vegirnir haldast mun betur í göngunum því ekki er svona mikið veðrabarningur á þeim þar. Til langs tíma litið væri þetta ekki bara hagkvæmari lausn.

Ég óska hér með eftir einkaaðilum til að bora göngin. Ég væri alveg sátt við að greiða 1000 krónur pr bíl í þau. Við gætum einnig leyst vandamálið fyrir Vestmanneyjar í leiðinni og látið göngin skiptast á miðri leið"gatnamót" sem leiða menn til eyja og þá er það vandamál leyst einnig. Væri nú kannski til í að borga 500 krónum meira til að styrkja Árna vin minn Johnsen og hans félaga. Enda eru Vestmanneyjar falleg eyja sem mætti alveg virkja meira.

Kveðja Mjallan sem er sko með lausnir á öllu

Íris Mjöll Valdimarsdóttir, 14.3.2008 kl. 08:58

9 Smámynd: Hrannar Magnússon

Þetta er náttúrulega eins heimskuleg framkvæmd og hugsast getur. Þarna er verið að rífa upp þann hluta vegarins sem er orðinn öruggur með 2+1 vegi og eyða dýrmætu vegafé í ónauðsynlega breykkun, einungis til að slá sig pólitískt til riddara.

Hættulegu kaflar suðurlandsvegar sitja á hakanum eftir sem áður.

Eru menn í alvöru svo skyni skroppnir að fagna þessum skrípaleik?

Hrannar Magnússon, 14.3.2008 kl. 11:18

10 Smámynd: Hrannar Magnússon

það er líka heimskulegt að setja y í breikkun.

Hrannar Magnússon, 14.3.2008 kl. 11:19

11 Smámynd: Heimir Tómasson

Mikið er fólk hrikalega vitlaust. Bora göng??? Undir Helisheiði sem er háhitasvæði? Eitt er víst, ekki myndi ég vilja ferðast um þau og hef þó unnið við jarðgangnagerð. Þess utan er það einhver arfavitlausasta hugmyndsem um getur að bora göng undir fjall sem lokast kannski 4til6 daga - í slæmu ári. Þeim peningum væri betur varið annarsstaðar.

Og með vitleysuna um að ekki þurfi að breikka... kommon! Mér er svosem sama hvar sé byrjað, bara að það sé byrjað. Það er erfitt að hætta framkvæmdunum seinna. En ég er sammála því að það hefði mátt byrja með Rauðavatn - Litla kaffistofa.

Mér er sama hverjir eru að slá sig til pólitískra riddara, skortur á tvöföldum suðurlandsvegi er eitthvað sem hefur kostað mörg mannslíf.

Heimir Tómasson, 15.3.2008 kl. 02:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband