Öld hrávörunnar?

Síðustu ár hafa hrávörur þótt minna mikilvægar en þjónusta og tækni hjá mörgum. Orðið "commodity" hefur gjarnan verið notað víðar en sem hefðbundið samheiti hrávöru.

Dæmi: "...this service is now a commodity". Hér er átt við að viðkomandi þjónusta sé þess eðlis að aðrir geti leyst hana af hólmi án vandkvæða. Hún sé "substitute" þjónusta. "this service has been commoditisised". Vörumerki hafa náð að verða aðalverðmæti sumra fyrirtækja en hráefnið verið minniháttar kostnaðarliður. Þetta kann sumstaðar að breytast.

Nú hefur það gerst að hrávaran hefur snarhækkað í heiminum. Þetta á við um matarhrávöru, málma og olíu, en jafnframt fisk, kol sem og velflest önnur hráefni.

Hvað veldur?

Aðalástæðan sem nefnd er hér í fréttinni er stóraukin eftirspurn.
Hin ástæðan er sú að lágt verð á hrávörum hefur skilað sér í minni framleiðslu og því minna framboði.

Nú er spurningin hvort hrávöruframleiðendur haldi þessari stöðu á næstu árum. Það myndi hafa mikil áhrif á valdajafvægi, auð og fátækt ríkja.

21. öldin hefur oft verið nefnd "Öld Asíu".

Kannski verður hún líka "Öld hrávörunnar" 


mbl.is Þriðja olíukreppan komin til að vera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þarna erum við sammála drengur minn/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 7.5.2008 kl. 11:24

2 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Umhugsunarvert.

Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann. Kínverjar eru að vingast við Afríkubúa, olíuframleiðsla talin hafa náð hámarki og deilur eru um nýtingu heimskautasvæða.

Þegar hrávaran hækkar græða sumir og aðrir tapa. Þeir sem svelta eru líklegir til alls. Þetta verður viðfangsefni næstu áratuga ef ekki aldar.

Jón Sigurgeirsson , 7.5.2008 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband