Meirihlutaskipti og málskotsréttur íbúanna

Nú er komiđ ađ fjórđa meirihlutanum í Reykjavík á ţessu kjörtímabili. Borgarstjórar hafa veriđ 3 síđustu 2 árin. Allir starfađ stutt og í raun er enginn ađ fara vel út úr svona sveiflum. Í öllu falli ekki íbúarnir.

Ţó Reykjavík hafi veriđ mest í umrćđunni ţá hefur veriđ bent á ađ sjaldan hafi veriđ eins mikiđ um ađ meirihlutasamstarf í sveitarstjórn springi eins og á ţessu kjörtímabili.

Í Árborg hafa 3 bćjarstjórar veriđ á launum ađ hluta síđustu 2 árin. Sá meirihluti sem nú situr hefur átt erfitt međ ađ taka ákvarđanir og lítiđ hefur gerst frá ţví ađ hann tók viđ stjórnartaumunum fyrir nítján mánuđum síđan. Segja má ađ ţar sé í raun sá meirihluti B og S lista sem var hafnađ í síđustu kosningum en fékk framhaldslíf međ stuđningi VG. Ţađ má virđa ţađ viđ meirihlutann í Árborg ađ ţađ er sjálfsagt erfitt ađ ná saman um mál ţegar VG, Framsókn og Samfylking koma ađ málum. Meirihlutinn hefur til ađ mynda 2 bćjarráđsmenn af 3 en frambođin eru jú einu fleiri eđa ţrjú sem standa ađ meirihlutanum í dag.

Sumir hafa bent á nýveriđ ađ kannski sé lýđrćđinu hollara ađ hćgt sé ađ bođa til kosninga viđ meirihlutafall. Ţingrofsrétturinn er hjá forsćtisráđherra en í sveitarstjórn er engum slíkum rétti til ađ dreifa. Ţađ hlýtur ađ vera lýđrćđislegt ađ hćgt sé ađ skjóta málinu til kjósenda eins og ţingrofsrétturinn býđur upp á.

Dćmi um málskot er ađ finna til dćmis í Kalíforníu en ţar geta íbúar krafist aukakosninga um ríkisstjóra eins og frćgt varđ ţegar Gray Davis var felldur af Arnold Schwarzenegger.

Ţessir atburđir sem nú hafa átt sér stađ á kjörtímabilinu kunna ađ verđa til ţess ađ menn hugi ađ málskoti til kjósenda međ rétti til nýrra kosninga.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héđinn Björnsson

Einnig mćtti hugsa sér ađ borgastjóri vćri kosinn sérstaklega og vćri svo á ábyrgđ hans ađ ná saman meirihluta (ísraelska leiđin). Ţannig vćri róti og hnífstungum haldiđ í lágmarki án ţess ađ kjósa ţurfi meira en einu sinni á kjörtímabili.

Héđinn Björnsson, 19.8.2008 kl. 09:57

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband