Fjölmiðlalög fyrir jól?

Menntamálaráðherra hefur frumvarpið enn og nú hefur berlega komið í ljós að full þörf var og er á því frumvarpi. Frumvarpið var reyndar samþykkt af Alþingi þann 22. júlí 2004 með 32 atkvæðum stjórnarliða, en þingmenn stjórnarandstöðu sátu hjá. Engin mótatkvæði voru. Framhaldið þekkja menn þegar forseti synjaði lögunum staðfestingar.

Alþingismenn hafa kvartað yfir því að hafa ekki nóg fyrir stafni og fá of lítið af upplýsingum. Hér er kjörið tækifæri fyrir kjörna fulltrúa að drífa nú fjölmiðlalög í gegn fyrir jól.

Að óbreyttu stefnir í einokun ofan á allt annað.


mbl.is Fjölmiðlar í heljargreipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þessi eylífu boð og bönn á fjölmiðla eru mer ekki að skapi/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 18.11.2008 kl. 11:20

2 identicon

Eru ekki önnur verkefni brýnni hjá ríki og sveitarfélögum en spá í fjölmiðlalög? Ertu ekki á kafi að verja velferðarmálin í Árborg?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 11:29

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er afar brýnt að stöðva trilljóna manninn.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.11.2008 kl. 11:31

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Sammála Heimir L. Fjeldsted að það er afar brýnt að stöðva trilljóna manninn.

Frændi vertu Guði falinn.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.11.2008 kl. 11:46

5 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Eyþór og þið hinir getið kannski upplýst lesendur um þetta: Eftir höfnun fjölmiðlalaga Davíðs og Halldórs var ný og þverpólitísk fjölmiðlanefnd sett á laggirnar og hún skilaði niðurstöðu. Hvers vegna rötuðu þær niðurstöður ekki í frumvarp og lög? Af hverju var málið sett til hliðar, loks þegar þverpólitísk niðurstaða fékkst?

Friðrik Þór Guðmundsson, 18.11.2008 kl. 12:34

6 identicon

það verður að setja lög fyrir þennan gerning sem á að kýla í gegn núna Lillo. Það er litið að marka fjölmiðla þessa dagana.

Best væri að þessir miðlar fengju að fara á hausinn núna og við fengjum miðla sem eitthvað mark væri takandi á. Á sínum tíma áttu samkeppnislög að draga langt. Ég held að endalaust sé hægt að rína í hvað Óli hafi gert eða ekki.

Það verður hins vegar að setja lög fyrir þennan gerning Jóns Ásgeir. Reyndar hefur hann nú margbrotið skilorð ekki satt með stjórnarsetu sinni þannig hann fer líklega bara í jailið

sandkassi (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 20:21

7 identicon

finnst þér mikið atriði Guðlaugur að þessi blöð séu svona dýr í rekstri? Mér finnst óþarfi að dagblað sé með annað eins umfang og overhead eins og þessi blöð.

Það eina sem þarf til að halda úti fjölmiðli er nokkrar tölvur og nokkrir blaðamenn. En ef að málið er að halda úti einhverri atvinnusköpunarstarfssemi þá geta menn gert það á eigin ábyrgð fynnst mér.

sandkassi (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 22:00

8 Smámynd: Atli Hermannsson.

"Eftir höfnun fjölmiðlalaga Davíðs og Halldórs var ný og þverpólitísk fjölmiðlanefnd sett á laggirnar og hún skilaði niðurstöðu."

Hverjir höfnuðu gamla fjölmiðlafrumvarpinu? Var það ekki einfaldlega dregið til baka vegna þess að Ólafur Ragnar "hótaði" því að þjóðin fengi að segja álit sitt og það gátu þeir Davíð og Halldór ekki sætt sig við? Segið mér ef þetta er rangt hjá mér. 

Atli Hermannsson., 19.11.2008 kl. 00:36

9 identicon

þetta er rangtúlkun, frumvarpinu var aflað fylgis og fór í gegnum eðlilega atkvæðagreiðslu. Andstæðingar frumvarpsins (fjölmiðlar) bjuggu síðan til múgæsing í aðdraganda þess að Ólafur undirritaði lögin og hann lét undan.

Eftir það var málið búið spil og enginn grundvöllur fyrir frekari málarekstri með þetta frumvarp. Nú sitja menn uppi með fjölmiðla sem engin á og engin hirðir um.

sandkassi (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 01:38

10 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Ertu nú viss um að þú hafir þetta rétt, Gunnar minn. Tók ekki við ný fjölmiðlanefnd, útvíkkuð og þverpólitísk, sem skilaði nýjum tillögum og allt tilbúið undir nýtt fjölmiðlafrumvarp, sem eðli málsins var mun meiri sátt um? Ég man ekki betur. Og hef spurt hvers vegna því nefndarstarfi var ekki fylgt eftir með frumvarpi. Kannski Eyþór muni þetta, detti honum í hug að líta hingað inn.

Friðrik Þór Guðmundsson, 19.11.2008 kl. 01:42

11 identicon

ég tjáði mig svo sem ekki um hvað varð með framhaldið Lillo. Ég gæti spurt hins sama. Það veitir ekkert af að þessi mál fáist afgreidd, hvað finnst þér?

sandkassi (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 01:50

12 identicon

Fyrst og fremst myndu lögin vernda starfsumhverfi og sjálfstæði blaðamanna, það er nú ekki slæmt

sandkassi (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 12:29

13 identicon

Það á ekki að setja lög á það sem spjarar sig ágætlega sjálft.

Það er getur leitt til minni fjölbreytni til lengri tíma að setja lög.  Tímarnir breytast.

Það er auðveldara að setja lög en afnema.

Jósep Húnfjörð (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband