Kjúklingabringur og evrur á fullveldisdegi

Það er bara eitt ár síðan að ESB átti að leysa af hólmi mikinn hluta landbúnaðar á Íslandi sem sagður var baggi á þjóðinni. "Kjúklingabringur á evrópuverði" voru ekki síst notaðar sem rök fyrir því að ganga í Sambandið. Jú og svo vorum við með svo stóra banka að við þurftum að ganga í ESB til að verja þá. Nú hefur reyndar komið á daginn að Seðlabanki Evrópu er ekki að bjarga bönkunum í Evrópu. Það gera ríkisstjórnir og seðlabankar landanna sjálfra. Nokkrir stærstu banka Evrópu eins og Royal Bank of Scotland, UBS í Sviss og Commerzbank hafa þurft að taka á sig miklar búsifjar og er þjóðríkin orðin aðal bankaeigandinn í Evrópu í dag.

Nú eftir bankahrunið á Íslandi er því haldið fram að ESB leysi vandamálin. Margir eru orðnir svartsýnir á krónuna í opnu hagkerfi og vilja því fá nýjan gjaldmiðil. Vandamálið við evruna er samt ekki síst ESB því þar á bæ vilja menn ekki að við fáum að taka evruna upp fyrr en við erum komin í Sambandið. Í fljótu bragði virðist því valið helst vera milli krónu og dollars.

En ef ESB færir okkur ekki ódýrari kjúklingabringur (sem eru núna ódýrari á Íslandi) og ekki heldur evru á ögurstundu. Hvað færir ESB þá? Þessu þurfa ESB sinnar að svara.

 

 


mbl.is Lykilorusta um ESB-aðild háð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Síðustu vikur hafa kennt okkur að ESB hefur lítið að bjóða. Þá á ég ekki bara við hvernig sambandið hefur komið fram við Ísland, heldur er Evrópa ekki í neitt mikið betri málum en ísland. Gjaldmiðillinn er að vísu ekki hruninn, þótt hann hafi lækkað mikið undanfarið, en hér er líka verið að pumpa hundruðum milljarða inn í kerfið og ríkisvæða banka. Þýskaland var að setja einhverja milljarða í Opel, og Volvo og Saab krjúpa við þröskuld fjármálaráðuneytisins í Svíþjóð, svo það eru ekki bara bankar sem eru að hrynja.

Grasið er alltaf grænna hinum megin. Ég bý í ESB og ég sé grænna gras heima, því hér er allt grátt.

Villi Asgeirsson, 1.12.2008 kl. 20:24

2 Smámynd: Haraldur Baldursson

Er ESB ekki hlaðið gnægtarbúr, sem býður okkur :
-tímabundnar aðlaganir fiskveiðstefnunar sem að vísu renna svo sitt skeið,
-landbúnaðarstyrki menn mæra meira að segja styrkina að það muni koma íslenskum landbúnaði svo vel því að við teldumst til jaðarsvæða...það er farið að halla alvarlega á skynsemina, þegar styrkir eru orðnir freistandi
-Ervan sem svo mjög er að hjálpa Spánverjum að aðlagast á erfiðum tímum, að þeir fá að mæta þessu með 14% atvinnuleysi sem færist enn upp á við
-sameinaða stefnu Evrópuríkja eftir margra ára pólitíska baráttu náðist loks að finna mál sem sameinaði þessi lönd sem aldrei fyrr. Framtíðin er því björt innan ESB samhugur ríkir. Að vísu var það leiðinlegt fyrir okkur að málið sem sameinaði þá var andstaða við Ísland í deilunni um innistæður Icesave og Kaupthing-Edge reikninga. En viðmótið hlýtur að breytast ef við náum að gráta okkur inn í þetta dásamlega bandalag þjóða. Látum ekki barsmíðar fæla okkur frá.

Haraldur Baldursson, 1.12.2008 kl. 22:19

3 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég hef séð marga ESB dásamara tala máli hinnar einu sönnu Evru og hins mikla Seðlabanka Evrópu sem á að standa við bakið á okkur og prenta fyrir okkur hina gullnu mynt.  Aðspurðir hafa þeir hinsvegar ekki nein rök fyrir því hvernig eigi að viðhalda gengi krónu innan marka þennan tíma sem hún er í "aðlögun" þar sem hún hefur nú ekki stöðuga sögu að baki.  Þrátt fyrir örar gengisfellingar og efnahagsaðgerðir.  Einnig virðist svo vera að þessir aðilar hafi nægan tíma til að bíða, því ég hef ekki séð neinar tillögur þess efnis hvernig forða á litlum/meðalstórum fyrirtækjum og almenning frá gjaldþroti.  Sem bíður handan við hornið.  Hvernig eigi að blása súrefni í atvinnulífið, draga úr verðbólgu, koma í veg fyrir fólksflótta o.s.frv. 

Ef einhver hefur skoðað atvinnuauglýsingar þá eru svotil engar stöður sem standa til boða hér á landi.  En það er eitthvað um stöður í Noregi (sem ekki er í ESB).  Leikskólar eru ekki að auglýsa.  Ekki elliheimilin.  Ekki pizzastaðirnir.

Getið þið, áhugamenn um Evrópusambandið og Evru (kannski) eftir 10 - 12 ár komið með tillögur að lausn á þessu ástandi - sem gæti orðið á næsta ári í seinasta lagi?

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 1.12.2008 kl. 22:37

4 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Eyþór

Vel orðað

En fórnirnar hverjar eru þær?

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 2.12.2008 kl. 01:16

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Jón, þú segir að danir séu að fara að kjósa um evru. Er þetta annað eða þriðja skiptið? Það verður kosið þangað til rétt niðurstaða fæst, eins og með það sem uberhaubt er kosið um innan ESB, sem er ekki margt. Þegar niðurtöður kosninga eru stórtap fyrir evrópusinna, eins og með stjórnarskrána, breyta þeir nafninu á plagginu í eitthvað fallegt eins og Lissabon Sáttmálinn og kjósa aftur. Og aftur. Og aftur. Því lengi lifi lýðræðið.

Villi Asgeirsson, 2.12.2008 kl. 09:57

6 Smámynd: A.L.F

Heyr Heyr Eyþór. Það er orðið greinilegt að ef mig vantar upplýsingar þá eru þær að finna á blogginu þínu.  Ég er fyrir löngu komin á það að dollar sé líklega það eina í stöðunni.

Þið ESB sinnar ættuð að endurskoða hug ykkar, en þar fyrir utan þá finnst mér "íslendingar" sem búa erlendis og hafa jafnvel gert í fjölda ára ekki hafa eins mikið um það að segja hvort við göngum í ESB eða ekki.

A.L.F, 2.12.2008 kl. 19:17

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þegar Nýfundnaland gaf sjálfstæði sitt til sambandsríkis Kanada árið 1949 þá var veifað með barnabótatékkum og ávísunum á ellilífeyri framan í kjósendur. 52% kusu já en 48% nei. Þeir sem vita nefi sínu lengra en eina uppblásna og útpínda kjúklingabringu frá vesturevrópskum landbúnaði í austurevrópu, þeir vita hvað svona shoppingtúr með grunngildi þýddi fyrir Nýfundnaland. Hvernig skyldi þessum 48% líða núna? Hið nýja sambandsíki ESB í Evrópu er alltaf að verða fátækara og fátækara miðað við Ísland og Bandaríkin. Af hverju skyldi Íslendinga langa til að verða fátækari?

Þessutan þá er Evrópusambandið er ekki gjaldmiðill. Það er nýtt ríki í smíðum.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.12.2008 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband