Bæjarmálin í forgang - framboðsfrestur til prófkjörs rennur út á morgun

Mikil umræða hefur verið um mögulega frambjóðendur til þings - ekki síst hér í Suðurkjördæmi. Fyrr í vikunni ákvað ég í samráði við mitt heimafólk að gefa ekki kost á mér í prófkjörinu 14. mars næstkomandi. Framundan eru sveitarstjórnakosningar á næsta ári og mikil þörf á endurnýjun í bæjarstjórn Árborgar.

Krafan um endurnýjun á þingi er viðvarandi og nú hafa margir fv. ráðherrar á borð við Björn Bjarnason, Sturlu Böðvarsson, Geir H. Haarde og nú Árna M. Mathiesen hafa dregið sig í hlé. Í Suðurkjördæmi eru nokkrir nýir frambjóðendur og svo fjórir sitjandi þingmenn sem gefa kost á sér þau Björk Guðjónsdóttir, Kjartan Ólafsson, Árni Johnsen og Ragnheiður Elín sem er úr kraganum.

Framboðsfrestur rennur út á hádegi á morgun...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Hverjir eru þá eftir á Suðurlandi, Kjartan og Árni Johnsen?

Gestur Guðjónsson, 26.2.2009 kl. 16:58

2 identicon

Skyldi krafan um endurnýjun ná til Vestmannaeyja?  Það er ekki beint hægt að segja að Árni Johnsen sé tákn breyttra tíma og breyttrar hugsunnar í pólitík.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 21:57

3 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Sæll Eyþór,

Ef þessi áskorunarlisti til Davíðs er til, þá vil ég fá að skrifa á hann - þótt ekki sé ég kjósandi á Suðurlandi, er það ekki í lagi ??

Sigurður Sigurðsson, 27.2.2009 kl. 12:22

4 Smámynd: Viktor Borgar Kjartansson

Þú ert ljóta draslið, alveg eins og klíkan sem þú elskar að sleikja alla daga.

Hefur nákvæmlega ekkert fram að færa, heldur þú virkilega að þú verðir bæjarstjóri ef þú hættir við framboð?

Keyrðu á staur bjáninn þinn.

Viktor Borgar Kjartansson, 28.2.2009 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband