Verum ekki sammála um að vera ósammála

Á erfiðum tímum er þörf fyrir samstöðu. Á endanum erum við nefninlega á sama báti - eða að minnsta kosti á sömu eyjunni.

ESB er nú enn og aftur að spretta upp sem klofningsmál enda ganga sjónarmið manna þvert á flokkslínur. Mikil hætta er á að nú fari í hönd óvissa í úrlausnum á meðan tekist er á um ESB málin. Á sama tíma eru fyrirtækin og heimilin að brenna. Vonandi geta stjórnmálamenn í öllum flokkum sammælst um góð mál eftir kosningar.

Heiftin sem einkennir umræðuna núna skilar engu góðu. Það er vel skiljanlegt að margir séu reiðir enda hafa allflestir lent í miklu tjóni. Sjálfstæðismenn eru margir svo reiðir að þeir ætla að skila auðu.

Reiðin er hins vegar varasöm enda gera menn margt í bræði sem þeir annars myndu ekki gera. Það er því mikilvægt að við reynum að vera sammála um það sem við getum verið sammála um en einblínum ekki um of á það sem sundrar íslenskri þjóð.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Granni,  ég festi kaup á osammala.is í gærkvöldi og er að vinna í að koma henni í loftið...

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 10:47

2 identicon

Flottur pistill hjá þér. Ég er þér gjörsamlega sammála.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband