Nú er rétti tíminn til að ráðast í verkið

Ekkert samgönguverkefni er jafnarðbært þegar reiknað er út frá tjónum. Þá eru dýrustu skaðarnir þó ómetnir með öllu enda óbætanlegir.
Nú er atvinnuleysi og niðursveifla en á sama tíma allt fullt af vélum og tækjum svo ekki sé minnst á verkefnalaus fyrirtæki með reynslu og þekkingu.

AGS lánið, Icesave samningar og ESB umsókn skila sér ekki í umsvifum eins fljótt og ákvörðun um tvöföldun Suðurlandsvegar. Ákvörðun sem full samstaða er um hjá sveitarfélögum á Suðurlandi og fólki í öllum flokkum. Já og eins og sést vel á þessari könnun: Hjá landsmönnum.

Er eftir einhverju að bíða?


mbl.is Telja tvöföldun Suðurlandsvegar brýnasta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Þór Bragason

Hvernig væri að sætta sig við 2+1? Það er öruggara.

Birgir Þór Bragason, 2.8.2009 kl. 20:12

2 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæll Birgir,

2+1 hentar vel í Svíþjóð. Hér erum við að tala um fjallveg á Íslandi.

Eyþór Laxdal Arnalds, 2.8.2009 kl. 20:16

3 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Sammála þér Eyþór.

Ísleifur Gíslason, 2.8.2009 kl. 20:20

4 Smámynd: Birgir Þór Bragason

Vegurinn á milli Hveragerðis og Selfoss er kannski fjallvegur í ykkar huga. Viljið þið ekki bara göng þar á milli?

Birgir Þór Bragason, 2.8.2009 kl. 20:40

5 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Og hvar á að taka peningana í þessar framkvæmdir?

Jón Bragi Sigurðsson, 2.8.2009 kl. 21:22

6 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæll Birgir, þú kannast við Hellisheiðina trúi ég.

Jón Bragi: Peningar eru af skornum skammti og einmitt þess vegna þarf að forgangsraða rétt. Samgönguráðherra vill ráðast í Vaðlaheiðagöng, enn er unnið að Tónlistarhöll og svo mætti lengi telja. Jú og hallinn af rekstri ríkissjóðs er gengdarlaus og lítið sem ekkert verið sparað. Það er því ekki skortur á peningum sem virðist vera aðalvandinn heldur í hvað þeir eru settir. Þá vil ég minna á gríðarlega fjármuni sem teknir eru í skatta af bensíni, dísel og bifreiðum undir þeim formerkjum að þeim sé varið í samgöngumál. Þessir peningar eru "teknir" Jón Bragi á degi hverjum.

Tvöföldun Suðurlandsvegar er arðbær fjárfesting ekki bara með tilliti til tjóna eins og ég nefndi hér að ofan, heldur ekki síður þar sem Suðurland (vestra) verður þá hluti af atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins. Ferðamenn fara þessa leið bæði erlendir og innlendir meira en nokkurn annan veg. Rökin eru mörg en það er sláandi í þessari könnun hversu yfirþyrmandi hlutfall Íslendinga er sammála um forgang í samgöngumálum. Hér er Suðurlandsvegurinn lang, lang mikilvægastur. Gleymum því ekki að það eru íbúarnir sem greiða vegaféð.

Eyþór Laxdal Arnalds, 2.8.2009 kl. 21:52

7 Smámynd: Soffía Sigurðardóttir

Það hefur verið reiknað út að fyrir sömu upphæð og tvöföldun og lýsing Reykjanesbrautar kostar, hefði mátt leggj 2+1 veg frá Reykjavík til Keflavíkur, Borgarness og Selfoss. Og, verið búin að því!

Munurinn á umferðaröryggi á 2+1 og 2+2 vegi er sáralítill.

Hvernig er þá hægt að reikna það út, hvort heldur er með fjárhagslegum eða mannlegum rökum, að tvöfaldur vegur sé arðbærari en 2+1?

Sem ábyrgur bæjarfulltrúi í Árborg ættirðu að senda Umferðarstofu og Vegagerðinni skriflega fyrirspurn um það hvað hæft sé í þessarri fullyrðingu og hversu mörgum mannslífum þeir þeir telji að hægt hefði verið að forða og miska að afstýra, ef þessir þrír vegakaflar hefði verið lagðir með 2+1 í stað núverandi ástands.

Soffía Sigurðardóttir, 2.8.2009 kl. 23:52

8 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæl Soffía. Þakka innlitið. Núverandi vegur er að verða fjörutíu ára og ég vona að menn hafi gæfu til að gera nýjan og endurbættan Suðurlandsveg þannig að hann endist að minnsta kosti í 40 ár. Það er hægt að koma með ýmis rök í þessum málum og reikna þetta með mörgum mismunandi forsendum. Eitt er víst að samstaða er nú um tvöföldun en lengi var það einmitt það sem tafði málið hvað lengst að ólíkar áherslur voru uppi. Ég man að árið 2006 voru sumir á því að byrja á lýsingu, aðrir á 2+1 og svo var hugmynd um göng (í gegnum háhitasvæðið á Hellisheiði). Á meðan það var gat ríkið tafið málið áfram. Frá lokum ársins 2006 náðist órofa samstaða um tvöföldun meðal fólks á Suðurlandi sem endurspeglaðist í 27 þúsund undirskriftum sem skilað var til Alþingis í desember 2006. Sveitarstjórnarmenn í öllum sveitarfélögum sem þar koma nálægt tóku þátt í þessu með okkur Hannesi Kristmundssyni. Það sem þarf að tryggja nú er að vegafé sér forgangsraðað rétt og þar vilja landsmenn tvöfaldan Suðurlandsveg.

Eyþór Laxdal Arnalds, 3.8.2009 kl. 08:33

9 Smámynd: Birgir Þór Bragason

Ætli þessi samstaða hafi ekki náðst vegna þess að fólki var ranglega kynnt að 2+2 svo miklu betri lausn en 2+1? Mig grunar það. Því viljið þið ekki hlusta á rök?

Birgir Þór Bragason, 3.8.2009 kl. 09:05

10 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

55% vilja tvöföldun Suðurlandsvegar. 8% Vesturlandsveg. Nokkuð skýr "þjóðarvilji".

Eyþór Laxdal Arnalds, 4.8.2009 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband