20.3.2007 | 14:01
og nú Róbert
20.3.2007 | 00:16
Laberinto del fauno
Var að koma af þessari dásamlegu mynd. Hún verkar á allar tilfinningaflóruna. Falleg, ævintýraleg og sorgleg. Saga lítillar stúlku. Saga þjóðar. Þjóðsögur og borgarastríð. Barn og móðir, systir og bróðir, fæðing og dauði. Ævintýri fyrir fullorðna. Ég vissi ekki á hverju ég átti von, hafði heyrt að þetta væri góð mynd. En hún er það ekki. Hún er frábær.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.3.2007 | 20:38
Verður Lúðvík Geirsson næsti formaður Samfylkingarinnar?
Stóriðjustopp eða stóriðjuhlé er óframkvæmanlegt að mati bæjarstjórans í Hafnarfirði. Í fréttum Stöðvar2 í kvöld segist hann "ekki skilja alveg þessa umræðu þegar menn halda því blákalt fram að það sé hægt að leggja fram einhverja einhliða ákvörðun um stöðvun eða frestun á slíkum málum." og mótmælir því ekki að þetta séu innihaldslausar yfirlýsingar.
Förum aðeins yfir þetta:
Pólítískur bæjarstjóri í Hafnarfirði er Lúðvík Geirsson (S)
Samfylkingin er með hreinan meirihluta í einu sveitarfélagi: Hafnarfirði
Lúðvík Geirsson hefur lagt áherslu á íbúalýðræði í meiriháttar ákvörðun sem þessari.
33.grein bæjarmálasamþykktar Hafnarfjarðar kveður séstaklega á um að leggja beri mjög þýðingarmikil mál í hendur kjósenda með sérstakri kosningu
Framtíð álversins er mjög þýðingarmikið mál fyrir alla Hafnfirðinga
Formaður Samfylkingar lýsti yfir andstöðu Samfylkingarinnar við álver í Hafnarfirði á Alþingi þ. 6. febrúar sl
Lúðvík Geirsson aftekur stopp- og hléstefnu og segist ekki skilja hvernig slíkt eigi að ganga upp
Lúðvík Geirsson er sigurvegari
Formaður bæjarráðs er Gunnar Svavarsson og er hann efsti maður á S lista í SV kjördæmi.
Verður Lúðvík Geirsson næsti formaður Samfylkingarinnar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.3.2007 kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.3.2007 | 16:34
Sáttmáli hinna óviljugu?
Eitthvað hefur undirskriftarsöfnun "Framtíðarlandsins" farið úr skorðum á fyrstu metrunum. Um er að ræða áskorun á netinu, en einhverjir óprúttnir aðilar hafa skráð einstaklinga án þeirra vilja eða vitundar. Markmið Framtíðarlandsins er göfugt og hefur höfðað til stórs hóps. Því hlýtur að vera mikilvægt fyrir samtökin að þau séu trúverðug í baráttu sinni. Sáttmáli er samningur.
Samkvæmt heimildum Mannlífs var Magnús Þór Hafsteinsson skráður, en hann er þó ekki að finna þar lengur. Hins vegar er Jónína Bjartmarz, Steingrímur J. Sigfússon og Jón Sigurðsson skráð. Vita þau af þessu? Er þetta með þeirra vilja
Þetta gæti minnt á umræður um annan lista sem hægt er að skoða hér
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.3.2007 kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2007 | 18:57
Æi..á nú að kenna Mogganum fylgistapið?
Guðmundur Steingrímsson hefur nokkurt nef fyrir því spaugilega og skemmtilega sem er að ske hverju sinni. Ég les oft bakþanka hans sem eru smellnir. Nýjasta aðhlátursefnið eru fréttaskýringar Moggans. Um allnokkurt skeið hefur fylgi Samfylkingarinnar farið minnkandi. Margir hafa leitað skýringa á fylgistapinu og hefur það kannað og greint. Helst eru það konur sem hafa ákveðið að kjósa stóra vinstri flokkinn, frekar en Samfylkinguna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur komið með skýringar á vanda Samfylkingarinnar við hin ýmsu tilefni og nefnt þá þingflokkinn til sögunnar. Ennfremur að Samylkingin sé of pólítísk. Jón Baldvin Hannibalsson hefur lýst því yfir að Samfylkingunni hafi mistekist. Kannanir staðfesta loks ítrekað að flokksbrotið VG er stóri vinstri flokkurinn á Íslandi.
Ingibjörg hefur verið erlendis undanfarið bæði þegar stjórnarskrármálið var í kreppu og svo eins á síðustu dögum þingsins þegar 50 mál voru á dagskrá. Össur er kemur þar í staðinn, þó ekki sé hann vara-formaður. Hún sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu með fyrirsögninni "Slúður á forsíðu" sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar er hún þó ekki ekki að grínast þar sem hún átelur Morgunblaðið fyrir "ómálefnanlegar árásir á Samfylkingarfólk" og sér ekki skoplegu hliðar málsins sem aðrir samflokksmenn hennar hafa skemmt sér yfir.
Agnes Bragadóttir er reyndur blaðamaður og sá hún um fréttaskýringu Morgublaðsins um stjórnarskrármálið. Greinar Agnesar vekja oft eftirtekt, enda hefur hún stundað rannsóknarblaðamennsku umfram marga aðra í stétt sinni. Vegið er að heiðri Agnesar með aðdróttunum Ingibjargar Sólrúnar. Mæli með Reykjavíkurbréfi dagsins í dag fyrir Samfylkingarfólk í leit að skýringum á stöðunni, fremur en að reyna að skjóta sendiboðann.
Nú er það svo að Morgunblaðið er nokkuð lýðræðislegt blað. Þar geta allir komið að greinum, bæði lesendabréfum, aðsendum greinum (sem og dánarfregnum og afmæliskveðjum). Þar geta allir menn bloggað á vef blaðsins eins og á gummisteingrims.blog.is og það hefur stutt við bakið á málum óháð flokkslínum. Þar má nefna umdeilda atkvæðagreiðslu um álver í Hafnarfirði á vegum Samfylkingarinnar. Þar er kosið um notkun Alcan á lóð sem bæjarfélagið hafði selt Alcan. Hafnarfjörður er í SV kjördæmi, einmitt sama kjördæmi og Guðmundur Steingrímsson, en hann skipar að eigin sögn baráttusætið: 5. sætið, en Samfylkingin er með um 20% í kjördæminu.
Skemmtilegt!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.3.2007 kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
18.3.2007 | 12:35
Vatnajökulsþjóðgarður (6x stærri en Luxembourg)
Eitt af stóru málunum sem Alþingi samþykkti á síðasta þingdegi fyrir kosningar voru lög um Vatnajökulsþjóðgarð. Með þessu erum Íslendingar að stíga stórt skref í átt að skipulegri friðun víðernis, en jafnframt að tryggja skipulegt aðgengi sem raskar ekki náttúru um of. Þjóðgarðar hafa verið gerðir víða um lönd og á engan er hallað þegar rifjað er upp stórvirki Teddy Roosevelt fyrir rúmum 100 árum. Þá var náttúruvernd komin skammt á veg, en Teddy var mikill náttúruunnandi og framsýnn. Með þessum lögum er Ísland komið á heimskortið með einn af stærri þjóðgörðum heims, reyndar þann stærsta í Evrópu. Landsvæðið er sex sinnum stærra en stóhertogadæmið Luxembourg, en þar býr hálf milljón manna.
Gott er að muna það fyrir kosningarnar í vor að það er ríkissjórn hægrimanna sem náði þessu máli í gegn um Alþingi. Full samstaða var um málið á þingi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2007 | 21:12
Björgólfur gegn Baugi?
Baráttunni um Króníkuna lauk kl. 17 í dag, þegar eigendur hennar tilkynntu DV mönnum að ekki yrði af kaupum. Pétur Gunnarsson vék að þessu á blogginu hér áðan. Sagt er að klukkan 15 hafi eigendur Króníkunnar verið tilbúin í söluna, en Björgólfur eigandi Ólafsfells ehf. hafi komið í veg fyrir það. Ólafsfell sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar og á ennfremur 8% hlut í Árvakri hf. og 82% í Vöku Helgafelli hf. Ástæðan er sögð sú að ekki var fallist á að framselja lán upp á rúmar tuttugu milljónir. DV menn hafi þó verið tilbúnir að bæta það upp að fullu.
Má segja að í dag hafi átakalínan í fjölmiðlum legið um þetta vikurit sem rekið er með tapi.
Stjórnarformaður DV er Hreinn Loftsson...en Árvakur sér um prentun og dreifingu þess
. . . .já þetta er lítið land. . .
p.s.
bæði Ólafsfell og Helgafell eru á ferðaáætlun Ferðafélags Íslands...
http://www.fi.is/files/FI2007_1312766787.pdf
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.3.2007 | 17:49
Magnaðar myndir
Engin tvö snjókorn eru alveg eins þegar grannt er skoðað. Hér eru nokkuð magnaðar myndir af snjókristölum eins og falla í dag í milljarðatali á suðurlandi.






Bókin Critical Mass sem er fjallað um hér að neðan tekur dæmi um snjókorn. Þau myndast við ákveðið hitastig, en minnstu breytur hafa áhrif á hvernig þau þróast. Eins og fólkið.
Nokkar gamlar myndir af snjókornum
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2007 | 16:54
50 mál á dagskrá Alþingis í dag!
![]() |
Fyrningarfrestur á kynferðisafbrotum gegn börnum afnuminn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2007 | 23:20
Átta vikur til kosninga: Straumurinn liggur til Sjálfstæðisflokssins
Í síðustu viku var haldinn neyðarfundur með kosningastjórum Samfylkingar. Ekki er ólíklegt að Framsókn haldi sinn eftir helgi.
Nýja Capacent könnunin er gerð 8.-13. mars, eða skömmu áður en stjórnarskrármálið var flautað af velli og sett aftur í nefnd. Sjálfstæðisflokkurinn bætir verulega við sig og er nú í 40% fylgi. Tveir "stóru" flokkana koma skuggalega illa út: Framsókn og Samfylking og eru ekki svipur hjá sjón. Framsókn er að fá 6,9% og tapa því meira en helmingi þingmanna sinna. Verða örflokkur ef svona fer. Það sem er verra er að "trendið" er niður á við. Ekki er staðan miklu betri hjá Samfylkingunni sem er með 20% fylgi, en þar hefur 1 af hverjum 3 kjósendum flokksins snúið sér annað. Frjálslyndir eiga á hættu að þurrkast út, eru með minna en 5%. Umhverfisframboðið virðist andvana fætt.
"Stóra stjórnarskrármálið" virðist hafa skaðað þá mest sem mest og harðast beittu sér í slagnum. Lítið heyrist í Siv þessa dagana, en hún var herská á flokksþinginu. (...hvernig var það var hún ekki að hóta stjórnarslitum?)
Samfylkingin veit ekki í hvern fótinn hún á að stíga; vildi fyrst hjálpa til við að koma á ákvæðinu, var svo á móti því og er nú með þá kenningu að þetta hafi verið plott hjá ríkisstjórninni!? Því miður er ekki verið að kanna trúverðugleika Alþingis, en hann ku vera í sögulegu lágmarki í nýlegri könnun. Ekki hefur það batnað. ´
Vika getur verið langur tími í pólítík. Átta vikur eru það líka. Framsókn, Samfylkingin, Frjálslyndir og Óstofnaður "Íslandsflokkur" geta sjálfsagt lyft grettistaki, en eitt er víst að draumurinn um tveggja flokka vinstri stjórn er úti. Stóri vinstri flokkurinn getur ekki treyst á að Samfylkingin skili nægjanlegu fylgi úr þessu.
Valkostirnir eru skýrir:
Tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðisflokk, eða þriggja flokka vinstristjórn kaffibandalagsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.3.2007 | 15:49
Er fasteignaverð að rjúka upp?
Eftir kyrrstöðu á síðasta ári bendir fernt til þess að nú sé breyting að verða á fasteignamarkaðnum:
1) Veltan hefur nær tvöfaldast síðustu mánuði...
2) Meðalverð á m2 hefur náð sér á strik og er á uppleið...
3) Íbúðalánasjóður og bankarnir hafa komið með útspil á síðustu dögum - eftir að þessar mælingar voru gerðar sem að ofan greinir.
4) Væntingavísitala Gallup hefur aldrei verið hærri á Íslandi frá upphafi mælinga......
(línurit fengin af www.fmr.is)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.3.2007 | 14:10
Öldruðum á ekki að refsa fyrir vinnu sína
Um helmingur fólks á aldrinum 65-71 hefur áhuga á að vinna. Skortur er á vinnuafli og sýnir mikil fjölgun erlends vinnuafls það hvað gleggst. Samt er það svo að eldri borgarar hika við að taka að sér störf, þar sem svo örlítið situr eftir þegar upp er staðið.
Í dag mega eldri borgarar aðeins vera með 25 þúsund krónur á mánuði, eða 300 þúsund á ári áður bætur eru skertar. Þykir mér þetta lág skattleysismörk og þó var þetta enn verra hér áður fyrr, en lágmarkið var hækkað í vetur. Þetta fyrirkomulag gerir það að verkum að fólk hefur oft ekkert upp úr því að taka að sér störf á efri árum. Í landi þar sem skortur er á vinnuafli og annar hver maður á aldrinum 65-71 vill vinna á að hvetja og auðvelda fólki að leggja sitt af mörkunum. Það er enda margsannað að maður er manns gaman og gildir það ekki síður við störf en leik. Hér þarf ríkið að sjá að sér.
Refsum fólki ekki fyrir að vinna, þó það sé komið á eftirlaunaaldur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.3.2007 | 11:30
Er dr. Guðbjörg hætt í Háskólanum?
16.3.2007 | 00:36
Hvernig gæti vinstri stjórnin litið út?
Ýmsar skoðanakannanir benda til vinstristjórnar. Hverjir munu skipa þessa ríkisstjórn? Formenn, varaformenn og sitjandi þingmenn ganga sjálfsagt fyrir, en fáir þeirra hafa setið áður í ríkisstjórn.
Þetta væri því talsverð nýliðun, enda langt um liðið síðan vinstri menn voru við stjórn.
Svona gæti þetta litið út eftir kosningar, en ég læt lesendum um að eyrnarmerkja embættin:
Rétt er að geta þess þó að Ingibjörg Sólrún taldi einboðið að stærsti kaffibandalagsflokkurinn fengi forsætisráðuneytið. Þetta kom fram í Kryddsíldinni. NB: VG er nú stærsta framboð stjórnarandstöðunnar samkvæmt könnunum og á því líta á Steingrím J. sem forsætisráðherraefni bandalagsins?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.3.2007 | 20:00
Suðurströndin á haf út
Ég hef fengið mikil viðbrögð við myndum úr gervitungli NASA sem ég birti hér á blogginu á mánudag en þær eru frá árinu 2002. Brúnn sandfláki liggur tugi kílómetra á haf út. Einhverjar efasemdar raddir hafa heyrst um að þetta geti verið í raun og veru. Myndir NASA hafa ítrekað sýnt þetta ástand. Hér að neðan er ein ansi skýr frá 2004 sem sýnir þetta ansi vel:
Vísindi og fræði | Breytt 16.3.2007 kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.3.2007 | 19:39
Skúbbið sem ekki varð. . .
Bloggið er lifandi miðill og stundum fyrstur með fréttirnar...eða orðróm.
Tveir öflugir bloggarar, þeir Pétur Gunnarsson og Jón Axel Ólafsson voru þó full fljótir á sér í dag þegar þér gáfu undir fótinn með að forstjóraskipti yrðu hjá Símanum og þetta yrði tilkynnt kl 17 í dag á aðalfundi félagsins. Skemmst er frá því að segja að ekkert varð af þessu, þótt aðalfundurinn væri að öðru leyti fróðlegur, enda Síminn í mikilli þróun.
Hitt er svo annað mál að í dag var Páll Magnússon ráðinn útvarpsstjóri Ríkisútvarpssins Ohf., en hann var áður útvarpsstjóri hjá Ríkisútvarpinu (ekki-ohf)
Bloggar | Breytt 16.3.2007 kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2007 | 23:36
Abramovich og Ólafur Ragnar á CNN...en hver fær Chelsea?
Ein helsta fréttin á CNN núna er skilnaður Abramovich og konu hans Irinu. Þetta er sagður "dýrasti skilnaður sögunnar", enda er Abramovich í 16. sæti yfir ríkustu menn heims hjá Forbes með yfir 18 milljarða dollara. Abramovich á meðal annars knattspyrnuliðið Chelsea og er að byggja stærstu snekkju í heimi, en hún er 550 fet.
Það sem vakti athygli mína var þó myndefnið sem CNN valdi í fréttinni um skilnaðinn, en á eina myndskeiðinu með þeim hjónum var forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson ásamt Dorrit í London. Þetta fannst mér athyglisverð myndskreyting á fréttinni, þar sem fátt gerist fyrir tilviljun eina á fréttastofu CNN.
Hér er svo mynd af þeim félögum í Grindavík í fyrra:
Dægurmál | Breytt 15.3.2007 kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.3.2007 | 22:10
Þingað í eldhúsinu - Háskóli í stað herstöðvar?
Eldhúsdagsumræður gefa ágæta mynd af áherslum þingflokkanna. Ekki síst skömmu fyrir kosningar.
Að venju voru sumir ræðumenn yfirlýsingaglaðir og á engan er hallað þótt Steingrími J. Sigfússyni sé hrósað fyrir kröftuga ræðumennsku.
Samfylkingin var ekki eins skemmtilegt, enda kannski ekki eins skemmtilegt að vera í Samfylkingunni þessa dagana.
Framsókn varaði við dýrum kosningaloforðum. . . (jú, jú það er vissara)
Frjálslyndir lögðu mjög mikla áherslu á landmærin og íslenskukennsluna...
Geir, Þorgerður og Árni lögðu áherslu á framfarir án öfga þar sem tækifærin nýttust og fólkið fengi að njóta sín....
.....Og boðuðu alþjóðlegan háskóla í stað yfirgefinnar herstöðvar á vallarsvæðinu.
Það væru góð skipti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)