Haítí

Skelfilegt ástand á Haítí er eitthvað sem erfitt er fyrir okkur á Fróni að ímynda okkur. Miklar hörmungar hafa gengið yfir þessa eyju og nú er það þessi risa skjálfti. Nú er verið að safna hér á landi sem og annars staðar. Við eigum að styðja hjálparstarfið eins og kostur er á og utanríkisráðherra á hrós skilið fyrir að hafa tekið ákvörðun um að senda rústabjörgunarlið samstundis. Vandamál hversdagsins eru lítil miðað við það helvíti á jörðu sem ríkir á eyjunni Haítí.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ursus

Gott hjá þér. Íslands vandi er hverfandi miðað við vanda Haíti búa. Okkar vandi er ómerkilegur. Bara peningar. Peningar spilla þeim sem eiga þá. Miklu betra að gefa þá til góðgerðarmála. Gerum það.

Ursus, 18.1.2010 kl. 23:20

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll frændi minn.

Í Biblíunni stendur: Gefið og yður mun gefið verða. Ég trúi því að Guð muni blessa okkur þegar við viljum af miklum fúsleik hjálpa þeim sem minna mega sín.

Vertu Guði falinn.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.1.2010 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband