Klukkan tifar

Sú lenska að taka erlend lán var útbreiddari hér en víðast annars staðar. Þótt slík húsnæðislán hafi verið nógu erfið er auðveldara að lengja í slíkum lánum enda húsnæði afskrifað á löngum tíma og lóðir halda sér enn lengur eðli máls samkvæmt. Þessu er ekki til að dreifa varðandi bílana. Þeir endast einfaldlega ekki svo unnt sé að lengja í bílalánunum nema að mjög óverulegu leyti. Þess vegna er svo erfitt að leysa greiðsluvanda vegna bílalána án þess að afskrifa.

Mikið er talað um að koma "hjólum atvinnulífsins" af stað. En ef heimilin eru mörg illa stödd er hætta á að "hjólin" stöðvist á ný. Af þessum sökum einum á að skoða almennar afskriftir og þótt fyrr hefði verið. Réttlætissjónarmiðin eru svo annar kapítuli út af fyrir sig.


mbl.is Lög sett um bílalán náist ekki samkomulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Pálsson

Auðvitað þarf að fara í almennar afskriftir en það hefði átt að gerast strax við hrunið. Núna er útilokað að beita einhverju jafnræði í þessu dæmi. Margir hafa eytt söfnunarsjóðum svo sem viðbótarlífeyrissparnaði (meðal annars til að greiða niður höfuðstól stökkbreyttra lána), tapað eigum sínum eða lent í öðrum hörmungum.

Niðurskrift skulda núna er samt bráðnauðsynleg en bætir ekki óbætanlegt tjón svo margra.

Það má skrifa algjörlega á reikning ríkisstjórna frá október 2008! Það vantaði ekki fólkið sem lagði strax til aftengingu lánskjaravísitölu við íbúðalánin. En nei, aðrir eins og Jóhanna, Steingrímur og Árni Páll ákváðu að berja höfðinu við steininn og horfa frekar upp á efnahagslegt hrun svo margra alsaklausra fjölskyldna.

Davíð Pálsson, 11.4.2010 kl. 16:39

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Erlend húsnæðislán má almennt telja hagstæðari en innlend, jafnvel þótt gengið hafi hrunið og reiknað sé með að það rétti sig ekki af.

Það er hins vegar rétt að bílalánin eru mun óhagstæðari í samanburðinum (þ.e. verðtryggð bílalán í íslenskum krónum eru mun hagstæðari en lengri tíma verðtryggð lán).

Til að afskriftir eigi sér stað verða hins vegar lánveitendur að hafa svigrúm til þeirra. Það er ekki hægt að ætlast til að almennir skattgreiðendur standi undir þeim.

Þorsteinn Siglaugsson, 12.4.2010 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband