Spilaborg

Náði mér í eintak hjá Bjarna bóksala og er búinn að lesa hana talsvert. Mér sýnist nefndin hafa skilað góðu og mjög ítarlegu starfi enda skýrslan er efnismeiri en margir áttu von á.

Nú er spurning um næstu skref og fær næsta þingnefnd ærin starfa. Ekki má útiloka að Landsdómur komi saman. Þá er greinilegt að eigendur bankanna misnotuðu aðstöðu sína með slíkum hætti að það hlýtur að fara í sögubækurnar og mörgu verður vísað til sérstaks saksóknara. Bankahrunið íslenska er þegar búið að skipa sér sess ásamt South Sea Bubble, Túlípanaæðinu og Enron. Þegar á móti blés voru þeir álíka traustir og spilaborg.

Á sama tíma og við tökumst á við stórkostlegt hrun bankakerfisins er rétt að við vörumst að hér verði haftaríki um ókomna tíð. Gjaldeyrishöft, háir skattar og eftirlit með öllu mögulegu er ekki lausnin. Lesum skýrsluna og metum mistökin án þess að gera önnur og ólík - en engu verri mistök - í núinu. Lærum af reynslunni án þess að snúa því góða við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ae

Sæll EA.

Ég ætla að vona að dagurinn í dag verði þá ekki í líkingu við næstu daga þar sem þeir menn sem hafa verið bornir ásökunum eru í sömu tuggunni! ; þetta var öðrum að kenna!!

Menn eru ekki tilbúnir, ennþá, til að þó bera ábyrgð á sínum hluta þó að hlutur annarra hafi kannski verið stærri.

Vona að menn beri vit til þess að bera ábyrgð á sínum hlutum og einnig flokkar, annars þarf aðra byltingu til að viss hreinsun eigi sér stað sem er nauðsynleg.

kveðja AE

ae, 13.4.2010 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband