Vond tíðindi - viðspyrnu er þörf

Vaxtahækkunin er vond tíðindi fyrir mörg fyrirtæki. Á Selfossi hefur vaxið öflugur hópur iðnaðar- og þjónustufyrirtækja sem nú þarf að kljást við samdrátt á sama tíma og fjármagnskostnaður fer fram úr hófi. Það er morgunljóst að þessar aðstæður ganga ekki til lengdar og jafnvel ekki til skamms tíma litið.

Við aðstæður sem þessar þarf að koma til öflug viðspyrna ríkis og sveitarfélaga þar sem áhersla er lögð á mannfrekar og arðbærar fjárfestingar og ráðdeild í rekstri. Því er mikilvægt að lágmarka öll óþarfa útgjöld og fara vel með þá fjármuni sem til eru. Tímabundinn halli á rekstri hins opinbera er því réttlætanlegur í svona þungu árferði en jafnframt þarf að fara enn betur með hverja krónu.


mbl.is 50 manns sagt upp á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já ég er sammála þér með að þarf að leggja áherslu á mannfrekju framkvæmda. En það þarf líka að hreinsa til hjá hinu opinbera. Leggja áherslu á það sem bætir ástandið. Lækka laun í yfirbyggingu og hjá sumum sérfræðingum. Það væri líka ágætt að skoða hverjir mútuðu stjórnmálaflokkum fyrir kosningar og rannsaka síðan viðskipti ríkisins við þá.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 29.10.2008 kl. 20:30

2 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Sæl Jakobína. Við í minnihlutanum í Árborg lögðum til að bæjarfulltrúa laun lækkuðu um 25%. Því var vísað til fjárhagsáætlunar. Það væri gott ef ráðamenn almennt legðu til launalækkun hjá sér. Í Kópavogi er talað um 5% lækkun.

Eyþór Laxdal Arnalds, 29.10.2008 kl. 22:42

3 identicon

Gott að við höfum núna digra sjóði til að leita í hjá sveitarfélögunum eftir öll þessi velmegunarár.  Það hefði verið miklu verra ef sveitarfélögin hefðu t.d. framkvæmt umfram efni með lánsfé og væru stórskuldug einmitt núna. hjúkk!

Jósep Húnfjörð (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 01:28

4 Smámynd: Kárinn

Þegar allt virðist ætla um koll að keyra getur maður ekki lengur orða bundist. Öll lögmál sem keyrt er eftir í efnahagssjórn Íslendinga ganga út á að miða við nágrannaríki "Vinaþjóðirnar" sem í flestum tilfellum eru mun stærri en íslenska þjóðin og öll lögmál og viðskiptasiðir miðast við það hvernig hlutirnir eru gerðir hjá þeim. Er ekki kominn tími til þess að skoða aðrar lausnir sem önnur smáríki hafa farið og náð verulegum árangri með.

Við höfum allt til þess að gera að ná því að verða ein auðugasta þjóð heimsins á mjög stuttum tíma.

Við höfum mannvitið, skólana, kerfið, fyritækin, orkuna og álframleiðslu og hugsanlega uppbyggingu í henni. Síðast en ekki sýst höfum við fólkið og það megum við ekki missa.

Þau efnahagskerfi sem ég tel að við eigum að horfa á eru lönd eins og Dubai, Qatar. Þeir eru eins og við litlar þjóðir með takmarkaðar auðlindir en hafa náð þeim árangri að olían er í dag einungis 6% af þjóðarframleiðslu Dubai. Fjármálastarfsemi er mjög stór hjá þeim og á þessum tímapunkti tel ég ekki að íslendingar hafi neitt fram að færa á því sviði á næstu árum, en það er iðnaðurinn sem er spennandi hjá þeim og á þeirra reynslu og aðferðafræði gætum við lært.

Þetta kemur líklega mörgum á óvart en staðan er bara þannig að þeirra markmið er að nýta orkuna innanlands eins og kostur er og byggja upp öflugt samfélag fyrir sitt fólk.  

Dubai er lítið land einungis ca 800 þúsund íbúar en samt eru 4,8 milljónir manna í landinu. Megnið af erlendu starfsfólki kemur frá Indlandi og Filipseyjum og meðallaun hins vinnandi manns eru mjög lág á íslenskan mælikvarða en aðbúnaður starfsfólks er góður. Þeir hafa hins vegar útbúið mjög öflugt velferðarkerfi fyrir sína ríkisborgara sem tryggir öllum góða afkomu.

Dubai er í dag með mjög gott heilbrigðiskerfi, skólakerfi og erlendir aðilar þurfa að vera tryggðir til þess að fá þjónustu á sjúkrahúsum aðra en neiðarþjónustu. Lágir skattar eru einnig í Dubai.

Ef þessu yrði breytt á þann máta að Íslensk fyrirtæki gætu verið með ódýrt vinnuafl af heimsmarkaðinum og skattar væru lágir og aðgengið að Evrópu og öðrum mörkuðum væri eins og það er í dag er ekki nokkur spurning að okkur gæti tekist að laða gríðarlega fjárfestingu til landsins og gætum einnig fullunnið þær vörur sem framleiddar eru á Íslandi. Fólksfjölgun yrði mikil við það að opna kerfið okkar á þennan máta en eitt er víst að þetta mundi skila sér í velmegun á Íslandi þegar til lengri tíma er litið.

Það er ekki náttúrulögmál að þegar álver er byggt á íslandi að það þurfi nánast að framleiða allt erlendis í það en til þess að halda peningunum innanlands verður að gera einhvað róttækt sem hindrar það að fjármagnið streymi frá Íslandi. Það gerum við með lægri framleiðslukostnaði.

Það sem við þyrftum einnig að gera væri að takmarka rétt erlends fólks til ríkisborgararéttar. Það eru mörg smáríki sem nú þegar gerir þetta með ágætis árangri.

Þetta væri hægt að framkvæma á mjög stuttum tíma og það er ljóst að uppbygging í iðnaði yrði mikil um allt land.

Við þyrftum aftur á móti að mennta okkar fólk til stjórnunarstarfa og klárlega einfalda allt sem heitir hagsmunapólitík. Við getum rekið okkar land eins og fyirtæki og það eigum við að gera og hætta að sólunda peningunum okkar í vitleysu.

Kárinn, 30.10.2008 kl. 09:36

5 Smámynd: Johann Trast Palmason

Sættum okkur ekki við þetta. það voru til aðrar leiðir.

svo eg vitni í  

Lilju Mósesdóttir doktor í hagfræði

Bent hún á að norsk stjórnvöld hefðu í sinni bankakreppu á síðustu öld gripið til vaxtahækkunar sem hefði leitt til fleiri gjaldþrota og meira atvinnuleysis en ella.

Malasía og Chile hefðu hins vegar valið gjaldeyrishöft með skattlagningu í stað vaxtahækkunar og það hefði leitt til grynnri kreppu.

Við eigum ekki að sætta okkur við svona meðferð þegar aðrar leiðir eru í boði og það ætti Hagfræðingurinn Geir Haarde að vita manna best.

Meðvirkni eða mótmæli. Mætum á Hlemmi á laugardaginn 1. Nóv kl 14:00 og göngum á Austurvöll - Ekki vera þolandi, vertu þátttakandi - Krefjumst ábyrgðar, kosningar strax!

Johann Trast Palmason, 30.10.2008 kl. 10:11

6 Smámynd: Máni Ragnar Svansson

 Sjálfstæðismenn til lands og sveita

Nú er kominn tími til að vera sjálfstæður

 Meðvirkni eða mótmæli. Mætum á Hlemmi á laugardaginn 1. Nóv kl 14:00 og göngum á Austurvöll - Ekki vera þolandi, vertu þátttakandi - Krefjumst ábyrgðar, kosningar strax!

Máni Ragnar Svansson, 30.10.2008 kl. 15:16

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir það Eyþór. Gott þegar menn vilja bera hluta vandans á eigin baki.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.10.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband