Nýtt eftirlaunafrumvarp - lækkun launa stjórmálamanna

Það er gott að nú eigi að gera breytingar á lögum um eftirlaun þingmanna og ráðherra. Þetta mál hefur farið illa í fólk en nú eftir efnahagshrunið hefur þó keyrt um þverbak.

Ákvörðun um tímabundna lækkun launa stjórnmálamanna er líka af hinu góða enda erfitt að réttlæta annað á sama tíma og verið er að segja upp starfsfólki á sjúkrastofnunum.

Réttast væri að afnema nýjan sið um aðstoðarmenn alþingismanna líka.

Í Árborg lögðum við fulltrúar D-listans til 25% lækkun launa bæjarfulltrúa, 20% lækkun nefndarlauna og að bæjarstjóri verði ekki á bæjarfulltrúalaunum ofan á bæjarstjóralaunin. Þessu var vísað til fjárhagsáætlunar og verður vonandi samþykkt samhljóða.  


mbl.is Óska eftir launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þessi ákvörðun er smjörklípa.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.11.2008 kl. 23:58

2 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Þetta virkar á mig eins og slökkustjórinn vaðinn svellkaldur inn í brennandi húsið kveikir á eldspýtu, blási á hana og segi, sjáið bara ég slökkti eldinn. !

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 22.11.2008 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband