Obama og Alþingi

Í dag kemur Alþingi saman að nýju eftir jólafrí. Þá verður nýr forseti Bandaríkjanna settur í embætti í dag. Í báðum löndum eru efnahagsmálin efst á baugi og eru gríðarlegar væntingar í garð Obama svo ekki sé meira sagt. Spurningin sem margir spyrja sig er; "stendur hann undir væntingunum?" Önnur spurning er hvort væntingarnar sjálfar geti veitt þá trú á efnahagslífið sem nú þarf frá almenningi og viðskiptalífinu.

Alþingi hefur lækkað í áliti að undanförnu og þarf núna að endurheimta traust. Eitt stærsta verkefnið framundan er einmitt að auka von og trú fólks á landi og þjóð. Nákvæmlega eins og í Bandaríkjunum en kannski enn frekar hér á Fróni.

Það verður spennandi að fylgjast með Obama....og Alþingi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Sammála þer að alþingi þurfi að vinna ser inn stórt traust hjá landanum,eg er mjög spennt hvernig obama muni standa sig

Sædís Hafsteinsdóttir, 20.1.2009 kl. 12:52

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta "Alþingi" vinnur sér ekki traust Eyþór. Til þess er það of skaplaust, dómgreindarlaust (sbr. "neyðarlögin") og gagnrýnislaust á foringja sína. Þeir sem sitja Alþingi núna mega hugsa um það til hvers í fjandanum þau voru kosin. Þau hafa ekki haft minnstu áhrif á stjórn þessa lands. Núverandi staða ríkisins er með öllu óviðunandi og slíkt fólk er alls staðar annars staðar bara rekið fyrir slælega frammistöðu.

Þínir menn (mínir fyrrverandi) virðast ekki vera neitt annað en framlengdir lúðrar Davíðs Oddssonar.

Þar sem lítið er um að stjórnmálamenn Sjálfstæðisflokksins taki orðið við athugasemdum fólks á blogginu skal ég virða við þig að vera ennþá með eyru Eyþór. Fyrirgefðu leiðindin!

Haukur Nikulásson, 20.1.2009 kl. 13:01

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Framsókn með sína galla (sem hverfa ekki svo léttilega) voru öflugir um helgina í kynningarmálum sínum með því að endurnýja efsta lagið í flokknum. Ég er farinn að hallast að því aðþað verði óhjákvæmilegt að fleiri flokkar gerðu slíkt hið sama.

Haraldur Baldursson, 20.1.2009 kl. 13:19

4 Smámynd: Hallur Magnússon

Haraldur!

Ekki gleyma því heldur að Obama er Framsóknarmaður!

Framsóknarstemming í Bandaríkjunum!

Hallur Magnússon, 20.1.2009 kl. 18:22

5 identicon

Hallur M

Nú er Framsóknarflokkurinn einnig í Council on Foreign Relations eins og Obama ha og allur að berjast fyrir New World Order(NWO)? Já ESB og fyrir Asíu-sambandinu Afríku-sambandinu og öllum þessum NWO samböndum.

Hallur,  hann Bilderberger Henry Kissinger (Í EU Elítunni ) er segja að núna sé þetta tímabil  fyrir Obama að koma á NWO, sjá á Youtube Kissinger calls on Obama to create a New World Order

Og verður New World Order ekki á stefnuskrá Framsóknarflokksins rétt eins og ESB?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 20:47

6 identicon

Hallur

Sjá einnig á Youtube. com America's Secret Foreign Policy Exposed

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband