Ofurvextir á Íslandi

Nú þegar verðbólgan er illmælanleg og síðasta stöðutaka sýndi verðhjöðnun eru litlar röksemdir eftir til að réttlæta ofurvexti á Íslandi. Helst geta menn týnt til gengi krónunnar en það virðist reyndar stjórnast af allt öðrum þáttum en vaxtamun um þessar mundir. Gjaldeyrishöftin hafa nú verið hert og er í dag óheimilt að flytja út vörur frá Íslandi og þiggja fyrir þær íslenskar krónur sem gjaldmiðil. Tvöfalt gengi krónunnar hefur leitt til þess að viðskiptamenn hafa nýtt sér misgengið í hagnaðarskyni. Haftastefna leiðir alltaf af sér einhvers konar hjáleiðir og er mér sagt að næst verði farið í vöruskipti og fólk flytji út krónur með því að flytja út lausafjármuni eins og báta, flugvélar, bíla og hesta.

Háir vextir eru að ganga af atvinnulífinu (og mörgum heimilunum) dauðum. Mikil umræða er á þingi um greiðsluaðlögun, vægari gjaldþrot og lengingu lánalína. Miklu mikilvægar er þó að ráðasta að rótum vandans frekar en að einblína um of á einkennin. Lenging lána kann að létta sársaukann en getur í sumum tilfellum frestað vandanum frekar en að leysa hann. Skuldir hafa hækkað vegna verðbólgu, gengisfalls og ekki síst ofurvaxta.

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 1% og eru þeir nú gríðarlega háir enn eða 17% þrátt fyrir að verðlag hafi lækkað milli mánaða í síðustu mælingu. Mismunur verðlags og vaxta - raunvaxtastigið - hefur aldrei verið hærra. Mikið lá á að skipta um Seðlabankastjóra en eitthvað virðist liggja minna á að ná niður okurvöxtunum sem hafa aldrei verið hærri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er bara ga ga þessi vaxtastefna. 17 % vextir í mínus verðbólgu.

Það var hávaxtastefna Seðlabankans sem orsakaði innflæði Jöklabréfanna og hélt gengi krónunnar uppi. Það sagði Geir Haarde eiginlega á landsfundinum. Það er því hávaxtastefnan sem ber ábyrgð á ástandinu eins og það er núna. Mér finnst þetta bara vera ga ga allt saman. Ríkisstjórnin öllsömul . Skrif  Eyðigarðs í Mogga skildi ég alls ekki. Skildir þú þau ?

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 13:25

2 Smámynd: Þorsteinn Guðnason

Á meðan stjórnvöld stjórna mikilvægum breytum í efnhagslífinu með höftum og reyna með því að fínstilla gengi þá munar þau ekkert að ákveða vaxtastigið líka, þau gætu lækkað vexti verulega. Hitt er svo annað að stjórnvöldum eru yfirleitt mislagðar hendur við fínstillingar (http://en.wikipedia.org/wiki/Fine-tuning) eins og dæmin sanna.

Þorsteinn Guðnason, 2.4.2009 kl. 20:54

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Algjörlega sammála þér Eyþór!

Ég skil ekki fullrúa AGS og þennan nýja seðlabankastjóra.

Ég var nú ekki sammála öllu sem Davíð Oddsson sagði á fundinum, þótt ég hafði vissulega hlegið að nokkrum bröndurum, en þessi orð hans fannst mér hitta naglann á höfuðið:

Við værum bæði með belti og axlabönd. Við búum í kjallaranum og þið heimtið að við göngum með fallhlíf.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 3.4.2009 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband