Bílalánin

Bílaflotinn á götunum blekkir þá sem hingað koma enda erfitt að ímynda sér kreppu þegar jeppar og sportbílar eru um allar götur. Á bak við bílana eru oft himinhá lán sem hafa snarhækkað í verðbólgu og gengisfallinu. Mjög margir eiga yfirskuldsetta bíla og eru þessi lán kannski einn erfiðasti myllusteinninn þegar kemur að því að ná endum saman.

Húsnæðislán má lengja enda afskrifast hús á löngum tíma. Bílar eru eðli máls samkvæmt með stuttan lífaldur og því verða lánin að greiðast upp á tiltölulega fáum árum.

Erlend bílalán hafa mörg hver tvöfaldast og sum þrefaldast (Yen og CHF). Þegar hugað er að niðurskrift höfuðstóls þarf að huga að bílalánunum ekki síður en húsnæðislánunum. Þessi lán geta farið illa með heimili og fjölskyldur og því þarf að skoða hvort ekki borgi sig fyrir hagkerfið að afskriftin fari fram núna áður en ástandið versnar enn meira.

Eitt er víst að ef ekkert er gert versnar ástandið.
Engin ákvörðun er ákvörðun.


mbl.is Ástandið getur versnað hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Ég held að allir  hafi samúð með þeim sem lent hafa í hremmingum hrunsins og hafa tekið lán  til hóflegra fjárfestinga í húsnæði  eða jafnvel fjölskyldubíl, - lán sem skráð  eru í erlendum myntum og hafa eins og þú bendir á  tvöfaldast eða þrefaldast.

Ég hygg að flestir hafi mesta  samúð sem  ungum fjölskyldum sem  keypt hafa húsnæði af hóflegri stærð, en standa nú ekki lengur   undir  afborgunum  m.a. vegna atvinnumissis.Þeim á að hjálpa  Eins er  hægt að hafa  samúð  með ungu  fólki sem  staðið  hefur í skilum með  bilalán upp á  rúmlega  þrjár milljónir   en getur ekki farið með  bílinn úr landi því  lánveitandinn er skráður eigandi, bílsins og lánið ekki uppgreitt eins og fram kom í sjónvarpsfréttum.

En í sannleika  sagt þá á ég mjög  erfitt með að hafa  samúð með  annarri manneskju sem  sýnd var í fréttum og  hafði   snemma árs 2008  tekið níu milljónir króna að láni  til að kaupa  Land Cruiser 200  jeppa. Lánið er  nú 18 milljónir. Á að nota fé  skattborgara til að  bjarga þessu bílamáli. Nei ,auðvitað ekki. 

Ef það er rétt að 40 þúsund Íslendingar hafi keypt 70 þúsund  bíla  fyrir 115 milljarða  í erlendum gjaldeyri (þykist hafa heyrt þessar tölur) þá  er  það rík sönnun þess að í fjármálum kunnum við ekki fótum okkar forráð.

Það er reyndar öllum ljóst núna.

Eiður Svanberg Guðnason, 26.8.2009 kl. 23:12

2 Smámynd: Nostradamus

Mikið rétt Eiður. Það á alls ekki að bjarga þeim sem fjárfestu óskynsamlega með rándýrum bílalánum í erlendri mynt. Sjálfur er ég leigubílstjóri og keypti fyrir rúmum 2 árum lítið ekinn bíl á 2.5 millj á erlendu láni. Núna, eftir að hafa borgað af því mánaðarlega í þennann tíma skulda ég enn 3.2 millj í bíl sem er að nálgast 300 þús keyrslu. Verðlaus eins og nokkuð getur orðið verðlaust. En mistökin voru mín og ég bít bara á jaxlinn og borga... Þeim sem þurftu að fjárfesta í Lexus eða Landcruiser er engin vorkun. Leiðréttið húsnæðislánin og þá er ég sáttur...

Nostradamus, 26.8.2009 kl. 23:28

3 Smámynd: Arnar Bergur Guðjónsson

Ég yfirtók bílalán sem var upp á 590 þús á Skoda bíl, það var í jenum og frönkum.

afborganir voru 16-19 þús á mánuði. í dag eru þær 38 þús, finnst mér það eðlilegt? nei.

ég réði vel við fyrri greiðslur, en ræð ekkert við þær núna þegar ég hef misst vinnunna og varla vinnu að fá. það geta ekki allir unnið allar vinnur.

ég er til í að fá leiðréttingu á mínu láni í upphaflega upphæð...

Arnar Bergur Guðjónsson, 27.8.2009 kl. 00:07

4 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

Stóra spurningin í þessu er að meta mögulegt tjón ríkisins. Ef lán hafa verið flutt á milli gamla og nýja banka með afföllum er svigrúm. Þá er líka rétt að meta tjónið af gjaldþrotum, minnkandi greiðsluvilja og greiðslugetu ef ekkert er gert.

Engin ákvörðun er ákvörðun.

Eyþór Laxdal Arnalds, 27.8.2009 kl. 09:07

5 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Það verða bílalán sem endanum fella fólk.

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 27.8.2009 kl. 09:33

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Lastu viðtalið á visir.is við Guffa í gær?

Ásdís Sigurðardóttir, 27.8.2009 kl. 11:36

7 Smámynd: Eyþór Laxdal Arnalds

nei Ásdís - ertu með link?

Eyþór Laxdal Arnalds, 27.8.2009 kl. 11:52

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Samúð með þeim öllum sem eru í fjárhagsvandræðum í dag - ef fella á niður hluta skulda þá verður að fella jafnt á alla - sé ekki fyrir mér hvernig á að draga fólk í dilka - hvort sem þú vinnur við þrif í banka eða ert  bankastjóri í sama  banka þá kostar hádegisverðurinn það sama þó svo að launamunur sé eflaust mikill

Jón Snæbjörnsson, 27.8.2009 kl. 13:26

10 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Í þessari umræðu  gleymist sú einfalda staðreynd  sem Davíð Oddsson benti á. Þeir sem ekki hafa  tekjur í erlendum gjaldeyri eiga ekki að taka lán í erlendum gjaldeyri. Þetta ættu allir að geta skilið.

Þeir sem tóku lán í erlendum myntum voru að  veðja á að gengið mundi þróast þeim í hag þannig að lánin mundu lækka í íslenskum krónum. Þeir  töpuðu veðmálinu og hver á að bera skaðann af því nema sá sem  veðjaði ? Ég endurtek að ég hef  ríka  samúð með þeim sem   keyptu það sem ég  kalla  venjulegar íbúðir og  venjulega  fjölskyldubíla. Það verður að gera  ráðstafanir til að hjálpa  þúsundum  fjölskyldna . Það er  deginum ljósara.

 En, samúð mín   með  þeim sem  keyptu sér  einbýlishús um  efni fram , dýrustu gerðir   Range Rovera, Audia,Lexusa Land krúsera, Hömmera  og hvað þetta nú heitir  allt  saman  eða  3 tonna  tryllipallbíla ,  er engin. Alls  engin.  Þeir  veðjuðu og  töpuðu. Þeir verða sjálfir að borga tapið. Þannig  er það  þegar maður veðjar.

Eiður Svanberg Guðnason, 27.8.2009 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband