Góður Ari Trausti - "Á skal að ósi virkja"

Ari Trausti Guðmundsson er með fróðlega og skemmtilega þætti um vísindi. Þegar ég var lítill strákur fannst mér Nýjasta tækni og vísindi bera af öðrum þáttum og horfði á þá árum saman. Fyrst var Örnólfur Thorlacius með þá en svo tók Sigurð H. Richter við. Þættir Ara Trausta minna á gömlu þættina en eru þó með áherslu á íslensk vísindi og því er meiri vinna við þáttagerðina.

Í fyrsta þættinum var meðal annars fjallað um mögulegar virkjanir sem nota osmósu og þar var sýnt fram á möguleika á að nýta Ölfusárósa. Hugmyndin fellst í því að nota osmótíska krafta sem liggja í muni á saltmettun sjávar og árinnar. Samkvæmt rannsóknum er unnt að ná miklum fallþunga með því að virkja þrýstinginn. Þetta er dæmi um auðlind sem ekki hefur verið rannsökuð og getur því verið ein af duldum verðmætum Íslands.

Hugmyndafræðin hefur helst verið þróuð í Noregi og vil ég benda á ágæta grein Þorsteins I. Sigfússonar frá því í ársbyrjun 2008 sem ber heitið "Á skal að ósi virkja":

http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1183226


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hrafn Guðmundsson

Jamm, þú varst semsagt ekki nemandi hjá Ara þegar hann heimtaði að kenna eigin bók um jarðfræði í MS.  Hef aldrei getað litið jarðfræði sömu augum síðan og reyni að loka augunum þegar ég keyri um landið svo þessar endurminningar nái ekki yfirhöndinni með tilheyrandi svitabaði, kvíðakasti og minnimáttarkennd.

Vona að hann sjái þetta. 

Snorri Hrafn Guðmundsson, 6.10.2009 kl. 15:23

2 Smámynd: Heimir Tómasson

Gekk þér semsagt eitthvað illa í áfanganum Snorri minn og kennir öðru um en þér sjálfum.

Þetta er alveg típýskt dæmi um smásálarháttinn á Íslandi. Einhver hefur eitthvað á móti manninum sem að kemur fram með hugmyndir og því er hugmyndunum varpað út á hafsauga og ekki gefinn frekari gaumur.

Ísland á langa ferð fyrir höndum út úr kreppunni með svona mannskap innanborðs.

Osmósu ætti alvarlega að líta á sem valkost við núverandi hugmyndir, burtséð frá hver kemur með hugmyndina.

Heimir Tómasson, 8.10.2009 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband