Góði hirðirinn

Kíkti í "Góða hirðinn" í Reykjavík, en þar er hægt að fá margt fyrir afar lítið. Erfitt er að hugsa sér betri endurvinnslu en að nota einfaldlega húsbúnað á nýjan leik. Svona endurvinnsla kallar ekki á mölun og þjöppun. Hluturinn fær einfaldlega nýjan eiganda. Eins og í gamla daga.

Þetta framtak SORPU er til fyrirmyndar, enda rennur hagnaður til líknarmála.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þetta er mjög gott framtak. Mörg góð og ódýr húsgögn er líka að finna í smáauglýsingum netmiðlanna.

Theódór Norðkvist, 22.5.2008 kl. 20:16

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég hef eignast marga flotta hluti i Góða hirðinum.  Þar er ekki verið að okra á okkur.  Ég kem þar við alltaf þegar ég er í þessu hverfi  Ein sparsöm

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.5.2008 kl. 00:26

3 identicon

Sæll´

Satt segir þú,ótrúlegt hvað hægt er að fá og sjá.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 06:07

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Góð nýting er gulls ígildi!!!!Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 23.5.2008 kl. 13:59

5 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

þetta er uppáhaldsbúðin mín. Eins og mér finnst leiðinlegt að versla þá er gaman að koma þangað. Hef gert mjög góð kaup þar.

Úrsúla Jünemann, 23.5.2008 kl. 14:14

6 Smámynd: Bumba

Halló Halló, ég er að safna gömlum hrærivélum og þvottavélum ekki sjálfvirkum, einnig raritets eldavélum. Ef þið vitið um eitthvað slíkt látið mig vita. Netfang: tonhus@internet.is. Með beztu kveðju.

 P.S, hef keypt margar hrærivélar í Góða Hirðinum og eldavélar og annað sem við erum að safna. Söfnum gömlum rafmagns heimilis áhöldum.

Bumba, 23.5.2008 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband