Veitir ekki af...

Þessi styrking er verulega góð fyrir alla þá sem eru með erlend lán, verðtryggð lán, hafa áhyggjur af háum vöxtum eða þurfa á innfluttri vöru að halda; Íslendinga

Í öldudal þar sem slæmar fréttir eru nær einu fréttirnar eru þetta kærkomin tíðindi. 

Ekki veitir af. 

Gjaldeyrislögin umdeildu eru sem betur fer að virka og ef svo fer sem horfir verða áramótin mun skárri en við blasti fyrir nokkru. Gott væri að fá greiningu bankanna á horfum miðað við gengi krónunnar í 150, 200 og 250 þar sem ólík staða krónunnar hefur gríðarleg áhrif á afkomu fyrirtækja og heimila.

 

----

Í vefkönnun síðunnar hafa 200 greitt atkvæði með gjaldmiðli og er USD efstur með 38,5%

Spurt er "Hvaða gjaldmiðil viltu hafa?"
EUR 26,0%
USD 38,5%
ISK 21,0%
NOK 9,5%
Fjölmyntasamfélag 5,0%
200 hafa svarað

 


mbl.is Krónan styrkist áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aradia

Já sæll, mitt verðtryggða lán er búið að hækka um 3 milljónir á einu ári takk fyrir, og það lækkar ekkert aftur, fyrir utan að íbúðaverð er að lækka, svo rýrnunin hleypur á milljónum hjá mér og flestum öðrum með verðtryggð lán þannig að já já þetta eru góðar fréttir en það breytir því ekki að maður tapar umtalsvert á því að hafa keypt sér fasteign.

Aradia, 5.12.2008 kl. 11:02

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ef krónan styrkist áfram,sem mér finnst ekki ólíklegt,þá getur orðið verð hjöðnun,þá lækka bæði verðtryggð og gengistryggð lán þá verður þetta alt bærilegra,fyrir þá sem skulda. Maður er bara dálítið bjartsýnn.

Mér finnst líklegt þeir sem eiga gjaldeyrir vilji selja hann núna fyrir íslenskar krónur,áður en hún hækkar meira,við það styrkist krónan.

Ragnar Gunnlaugsson, 5.12.2008 kl. 11:52

3 Smámynd: Róbert Viðar Bjarnason

Er ekki IMF búinn að segja að við fáum ekki meiri gjaldeyri frá þeim þangað til gjaldeyrishöftum er lyft?  Svo við erum að tala um í mesta lagi í nokkra mánuði þar sem hægt er að styrkja krónuna svona með höftum.  Þetta hlýtur að valda mjög mikilli óvissu fyrir þá sem eru með lán í erlendum myntum, t.d. á fólk að reyna að losa sig útúr erlendum lánum meðan krónu gengi er haldið svona sterku áður hún fellur aftur þegar krónubréf eru leyst út?  Og þó að það sé náttúrlega gaman að sjá krónuna styrkjast er 10%-20% styrking á nokkrum dögum of mikill sveifla til að búa til einhvern trúverðuleika, það er of greinilegt að þessu er ennþá öllu handstýrt með höftum og ekkert eiginlegt markaðsflot heftur átt sér stað.

Ég bý í London og fékk sjokk þegar ég las gjaldeyrislögin fyrst, sá að öllum Íslendingum er bannað að eiga gjaldeyrir í meira en tvær vikur, en létti aðeins þegar ég sá að það var undantekning fyrir fólk sem hefur fast aðsetur erlendis.  Samt eru lögin ekkert það skýr svo kannski á gjaldeyrislöglegan eftir að bíða eftir mér á Leifsstöð þegar ég mæti heim fyrir jólin til að taka Breska debet kortið mitt og krefja mig um pin númer ;)

Róbert Viðar Bjarnason, 5.12.2008 kl. 13:39

4 Smámynd: Diesel

Róbert, hvernig er krónan skráð í London? Kannski töluvert lægra en hér á skerinu?

Diesel, 5.12.2008 kl. 14:20

5 Smámynd: A.L.F

Þetta hlýtur já að vera jákvætt þó ég hafi varann á mér. Mögulega gera þessi gjaldeyrishöft það að verkum að hægt er að styrkja krónuna nægilega mikið svo fólk með erlendlán geta skipt þeim út í íslenskt lán. Besta væri samt ef hægt er að ná krónunni upp þokkalega og skipta henni svo út fyrir annan gjaldmiðil, gengiskiptingin væri þá hagstæð fyrir íslendinga og lán þeirra.

En ég fylgist spennt með framvindu mála.

A.L.F, 5.12.2008 kl. 14:22

6 Smámynd: Róbert Viðar Bjarnason

D - Ég held að bankar í London sýsli ekki mikið lengur með krónur, er ekki einu sinnu á lista yfir alþjóðlegar myntir lengur hér hjá NatWest, mínum banka:
http://www.natwest.com/tools/personal/currency_rates/default.asp

Hér er skráning hjá ECB fyrir Evru á 290, en síðan 3. desember:
http://www.ecb.int/stats/exchange/eurofxref/html/index.en.html

Róbert Viðar Bjarnason, 5.12.2008 kl. 14:32

7 Smámynd: Róbert Viðar Bjarnason

Fann reyndar þetta núna, Barclays segir að Evra sé núna 138 meðan visir.is segir, frá Seðlabanka, 154.  Semsagt krónan er hefur styrkst 15% meira hjá Barclays heldur en Seðlabanka!  Maður er alveg hættur að botna í þessu...

https://www.business.barclays.co.uk/BRC1/jsp/brcscontrol?site=bbb&task=ExchangeRatesDetail&currencyCode=EUR

Róbert Viðar Bjarnason, 5.12.2008 kl. 14:58

8 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Bráðum förum við að sjá bankastjóra Seðlabankans berja sér á brjóst og hæla sér fyrir frábæra stjórn peningamála. Ég veit betur, því að fátt er jafn skaðlegt fyrir efnahag þjóðar en að lúta duttlungum seðlabanka. Eina ráðið til að skapa stöðugleika er að koma á fót Myntráði. Hvernig það skapar stöðugleika, má lesa um hér:

http://altice.blog.is/blog/altice/entry/731502/

Loftur Altice Þorsteinsson, 5.12.2008 kl. 22:06

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll frændi minn.

Vona að þetta sé byrjunin að betri tíð.

Megi almáttugur Guð miskunna okkur.

Vertu Guði falinn.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.12.2008 kl. 23:56

10 Smámynd: Júlíus Björnsson

Styrkingin er vísbending í rétta átt. Þegar 1 USD kostar 100 kr.  þá fyrst held að menn selji krónur sáttir. 

Júlíus Björnsson, 6.12.2008 kl. 01:33

11 Smámynd: Stefanía

Ég virðist ekki geta kosið...en ...Dollar er málið !

Stefanía, 6.12.2008 kl. 01:55

12 Smámynd: Tori

Krónan er okkar vara, til að við fáum eitthvað fyrir hana þurfum við að hafa trú á henni. Sanngjörn vöruskipti fyrir USD.

Stjórnmálamenn okkar hafa talað hana til helv,,,,,,,,,,,,,,. Bandaríkjamenn segja alltaf "strong dollar" þrátt fyrir að þeir hafa sótt í að veikja hann til að flytja framleiðslustörf heim.

Tori, 7.12.2008 kl. 03:12

13 identicon

Eins og þetta handafl á gengi sé eitthvað marktækt.

Haftaár framundan með rotið kommalið úr sjálfstæðisflokknum um borð.  Ekki gæfuleg framtíðarsýn.

Jósep Húnfjörð (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband