Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.8.2009 | 14:56
Svona gerast kaupin á (bresku) eyrinni...
Sagt er frá því í Times í dag að það hafi verið olíuhagsmunir sem réðu því að dæmdur hryðjuverkamaður var látinn laus af bresku ríkisstjórninni. Um er að ræða eina manninn sem dæmdur hefur verið vegna Lockerbie fjöldamorðanna.
Þetta er sama breska ríkisstjórnin og beitti hryðjuverkalögum á Ísland.
Finnst engum þetta öfugsnúið?
28.8.2009 | 10:23
Er krónan að styrkjast?
Eftir mikla veikingu á fyrri hluta ársins (um -10%). Nú er Eyjólfur að hressast og stendur evran í 179 krónum í morgun og dalurinn kominn undir 125 krónur.
Háar upphæðir hafa safnast fyrir í bönkunum ekki síst í erlendum gjaldeyri. Vera kann að þetta hafi áhrif.
Vonandi er þetta raunveruleg styrking.
26.8.2009 | 22:38
Bílalánin
Bílaflotinn á götunum blekkir þá sem hingað koma enda erfitt að ímynda sér kreppu þegar jeppar og sportbílar eru um allar götur. Á bak við bílana eru oft himinhá lán sem hafa snarhækkað í verðbólgu og gengisfallinu. Mjög margir eiga yfirskuldsetta bíla og eru þessi lán kannski einn erfiðasti myllusteinninn þegar kemur að því að ná endum saman.
Húsnæðislán má lengja enda afskrifast hús á löngum tíma. Bílar eru eðli máls samkvæmt með stuttan lífaldur og því verða lánin að greiðast upp á tiltölulega fáum árum.
Erlend bílalán hafa mörg hver tvöfaldast og sum þrefaldast (Yen og CHF). Þegar hugað er að niðurskrift höfuðstóls þarf að huga að bílalánunum ekki síður en húsnæðislánunum. Þessi lán geta farið illa með heimili og fjölskyldur og því þarf að skoða hvort ekki borgi sig fyrir hagkerfið að afskriftin fari fram núna áður en ástandið versnar enn meira.
Eitt er víst að ef ekkert er gert versnar ástandið.
Engin ákvörðun er ákvörðun.
![]() |
Ástandið getur versnað hratt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.8.2009 kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.8.2009 | 08:28
Vanhugsuð lausn
Kannski var greiðsluaðlögun einfaldlega kynnt á röngum forsendum. Þegar frumvarpið var lagt fram var gert ráð fyrir að hundruð þyrftu á þessu "úrræði" að halda en nú hefur annað komið í ljós. Þá voru allt of miklar væntingar gerðar til þess að greiðsluaðlögun leysti mál fólksins. Skjaldborg. Eftir því sem ég fæ best séð er gjaldþrotameðferð betri fyrir suma. Frestur er á illu bestur segir orðskviður en ég er ekki viss um að það eigi við um skuldir heimilanna.
Ég var því sammála Lilju Mósesdóttur í sjónvarpinu í gær um almenna niðurfellingu. Sértæk úrræði (eins og greiðsluaðlögun) verða alltaf seinvirk, huglæg og kostnaðarsöm. Almenn úrræði eru fljótvirk hlutlæg og kosta lítið í framkvæmd. Eina spurningin er hvort að afskrift núna sé dýrari en afskrift í gjaldþrota og greiðsluaðlögunarferlum. Ef svarið er nei er augljóst að það ber að fara í almennar aðgerðir.
![]() |
Á vanskilaskrá í greiðsluaðlögun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.8.2009 | 12:57
Skuldamál hin síðari
Niðurfelling skulda er ekki óeðlileg leið þegar skuldir eru að verða óbærilegar. Gjaldþrotaleiðin kann að vera mannúðlegri en skuldafangelsi 19. aldar en það sem nú þarf að tryggja er greiðsluvilji. Það verður ekki gert með gjalþrotum einum saman þótt einhverjir fari í greiðsluaðlögun.
Nú hefur félagsmálaráðherra ljáð máls á því að fella niður skuldir sem ella hefðu ekki innheimts. Hann sér eins og aðrir að nýju bankarnir hafa fengið kröfurnar með afslætti sem réttast er að gangi áfram til fólksins. Í anda jafnaðarstefnunnar vill ráðherra að þeir sem verst standi fái eingöngu leiðréttingu. Hættan er hins vegar sú ef menn ætla að meta hvern og einn huglægt að tvennt gerist:
a) Mismunun eigi sér stað þar sem erfittt er að meta endanlegt greiðsluhæfi.
Dæmi: Er 22 ára maður ekki líklegri til að borga á starfsævinni en 55 ára maður í sömu eiginfjárstöðu? Á þá að fella niður skuldir þess sem er 55 ára en ekki þess 22?
b) Greiðsluviljinn minnki þar sem þá verður sérstakur hvati hins opinbera að fólk uppfylli kröfur þess um að vera ekki greiðslufær. Þeir sem ekki standa í skilum verða þá hugsanlega líklegri til að fá fyrirgreiðslu. Ekki getur það verið jákvæður hvati.
Ég er af ofangreindum ástæðum hallari undir þá leið sem framsóknarmenn hafa lagt áherslu á. Þetta mál er reyndar þverpólítískt (og ætti því að vera ópólítískt) enda eru þingmenn eins og Lilja Mósedóttir á svipuðum nótum.
Einfaldar, skjótvirkar og hlutlægar leiðréttingar á skuldahækkunum er það eina sem ég sé í stöðunni.
22.8.2009 | 17:55
Jákvætt skref
Aðeins tvö ár eru síðan samningar voru undirritaðir um Aflþynnuverksmiðju Becromal og samhliða var gengið frá raforkukaupum við Landsvirkjun. Hér hefur starfssemi fyrsta græna stóriðjan sem jafnframt framleiðir hátæknivörur.
Það er magnað að þetta hafi tekist þrátt fyrir heimskreppu og hrunið á Íslandi. Nú mun þessi verksmiðja bæta vöruskipti Íslands næstu árin og áratugina.
Ekki veitir af jákvæðum fréttum.
![]() |
Aflþynnuverksmiðja gangsett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 12:00
VG stóðu að einkavæðingu HS
Nokkur sveitarfélög seldu hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Geysis Green Energy, en nú hefur hluti þess hlutafjár verið selt Magma Energy. Á síðustu dögum hafa forsvarsmenn VG (og einhverjir Samfylkingarmenn) sett sig á móti sölu á hlutabréfum í HS orku sem er annar helmingur Hitaveitu Suðurnesja og telja nú að þetta sé glapræði.
Það er því rétt og skylt að halda því til haga að bæjarstjórn Árborgar stóð einhuga að sölu á öllum hlutabréfum sveitarfélagsins til Geysis Green og þar meðtalinn Jón Hjartarson oddviti VG í Árborg og forseti bæjarstjórnar.
Ekki hafa komið fram gagnrýnisraddir frá forystu VG vegna þessarar einkavæðingar. Gott væri að einhver fjölmiðill spyrði Steingrím J. Sigfússon og Svandísi Svavarsdóttur um hvort þeim hafi hugnast þessi einkavæðing VG í Árborg.
Eða er ekki sama Jón og séra Jón?
19.8.2009 | 19:35
Þekkingargarður byggður á sandi?
Í Sunnlenska Fréttablaðinu er sagt frá því í dag að fyrirætlanir um byggingu þekkingargarðs í miðbæ Selfoss séu endanlega komnar í salt. Nú er það svo að hugmyndir um miðbæ á Selfossi hafa verið í skötulíki lengi enda voru deilur um miðbæjarskipulagðið miklar. Nú er búið að tyrfa yfir miðbæjarreitinn og litlar líkur til að þar verði byggt eins og til stóð. Hér er hins vegar annað mál þar sem bæjarstjórnarmeirihlutinn blés til sóknar á sérstökum blaðamannafundi eftir bankahrunið og lofaði 200-300 störfum. Þessum hugmyndum var tekið fagnandi eins og sjá má af fréttum frá blaðamannafundinum. Nú eru þessar hugmyndir lagðar til hliðar eftir því sem Sunnlenska segir frá.
14.8.2009 | 07:31
Álið komið yfir 2000 dali
Þau tíðindi urðu í morgun á London Metal Exchange að álverð fór yfir 2000 dali í fyrsta sinn í mjög langan tíma eins sjá má hér. Í niðursveiflunni fór álverð niður fyrir 1300 dali og höfðu margir áhyggjur af því að þetta gæti haft alvarlegar afleiðngar fyrir eldri og nýrri orkuverkefni. Álverð hefur líka mikil áhrif á gjaldeyrisbússkapinn sem nú er mikið ræddur.
Hvað sem mönnum finnst um ál yfirhöfuð þá er það mikilvægt fyrir Ísland að ál skuli vera búið að hækka svona hressilega. Lán frá erlendum aðilum (IMF, kære nordiske venner, Rússar og AGS) þarf að borga en tekjur eru undirstaðan til að hér sé búandi.
Sem sagt góð frétt.
13.8.2009 | 11:26
Hallarekstur ríkisins grefur undan stöðugleikanum
Stöðugleikasáttmálinn er sagður í hættu meðal annars vegna verðbólgu og hárra vaxta. Krónan hefur ekkert styrkst þrátt fyrir gjaldeyrishöft og umsókn í ESB.
Tapreksturinn ríkisins var óumflýjanlegur strax eftir hrunið en viðvarandi halli grefur undan trausti á framtíðinni, krónunni og ríkisbréfum. Hallarekstur ríkisins er fjármagnaður með skuldabréfum sem keppa við lántökur fyrirtækja og heimila. Í slíku umhverfi verður lánsfé áfram dýrt. Í erfiðri stöðu hefur markaðurinn takmarkaða trú á að ríkið geti endalaust hlaðið á sig nýjum skuldum (þó sumum stjórnmálamönnum þyki þeir endalaust geta á sig blómum bætt). Það er þekkt úr hagsögunni að þau ríki sem fjármagna sig til lengri tíma með skuldabréfum grafa undan gjaldmiðlinum og hækka vexti og verðbólgu.
Icesave og ESB hefur heltekið alla umræðu en á sama tíma virðast ríkisfjármálin hafa gleymst. Háir vextir eru heimatilbúið vandamál þegar allur heimurinn er með stýrivexti í algjöru sögulegu lágmarki. Eina leiðin til að lækka vexti er að ríkið dragi sig úr samkeppninni um það litla lánsfé sem er í boði. Það verður ekki gert nema með því að draga úr hallarekstrinum á sannfærandi hátt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)